Search
SÍA

21. mars 2012

Úrslitakeppni EM U17 kvenna haldin á Íslandi 2015

Framkvæmdastjórn UEFA ákvað á fundi sínum á þriðjudag að samþykkja umsókn KSÍ um að halda úrslitakeppni EM hjá U17 kvenna. Mun hún því fara fram hér á landi árið 2015.  UEFA hefur ákveðið að stækka úrslitakeppnina í þessum aldursflokki og verða þjóðirnar 8 sem leika þar frá og með 2014 en þá verður keppnin haldin í Englandi. Íslendingar verða svo gestgjafar 2015 og Hvíta Rússland 2016.

Landslið

20. mars 2012

U17 kvenna - Byrjunarlið Íslands gegn Dönum í kvöld

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í kvöld er mætir Dönum í vinnáttulandsleik. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst kl. 18:00. Þetta er síðari leikur þjóðanna en Ísland vann fyrri leikinn 2-1.

Landslið

20. mars 2012

U17 karla - Fyrsti leikur Íslands í milliriðlinum í kvöld

Strákarnir í U17 eru nú í Skotlandi þar sem þeir leika í milliriðli EM U17 karla. Fyrsti leikur Íslands er gegn Dönum í kvöld kl. 19:30 að íslenskum tíma. Á sama tíma leika hinar þjóðirnar í riðlinum, Skotar og Litháar. Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í kvöld.

Landslið

20. mars 2012

U17 karla - Jafntefli í hörkuleik gegn Dönum

Strákarnir í U17 hófu í kvöld leik í milliriðli EM en leikið er í Skotlandi. Fyrsti leikur liðsins var við Dani og lyktaði leiknum með jafntefli, 2 - 2, eftir að markalaust hafði verið í leikhléi.  Daði Bergsson og Gunnlaugur Birgisson skoruðu mörk Íslendinga í leiknum.  Næsti leikur Íslendinga í riðlinum verður gegn Skotum á fimmtudaginn

Landslið

20. mars 2012

U17 kvenna - Markalaust jafntefli gegn Dönum

Stelpurnar í U17 gerðu í kvöld markalaust jafntefli gegn stöllum sínum frá Danmörku en leikið var í Egilshöllinni. Þetta var annar vináttulandsleikur þjóðanna í þessum aldursflokki en fyrri leiknum, sem leikinn var síðastliðinn sunnudag, lauk með 2 - 1 sigri Íslendinga.

Landslið

20. mars 2012

Tveir nemar úr Háskóla Íslands í vettvangsnámi hjá KSÍ

Þær Ellen Agata Jónsdóttir og Þórunn Þrastardóttir eru þessa dagana í vettvangsnámi hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Þær stunda nám í Tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og eru á 2. ári.

Fræðsla

19. mars 2012

U16 kvenna - Úrtaksæfingar um komandi helgi

Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari hefur valið útakshóp til æfinga hjá U16 kvenna. Æfingarnar fara fram í Egilshöll og Kórnum og verða 24. og 25. mars næstkomandi. Æfingarnar áttu upphaflega að vera um nýliðna helgi en var frestað vegna vináttulandsleikja hjá U17 kvenna við Danmörku.

Landslið

19. mars 2012

Héraðsdómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ 26. mars

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ mánudaginn 26. mars kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.

Dómaramál

19. mars 2012

Þinggerð 66. ársþings KSÍ

Hér að neðan má sjá þinggerð 66. ársþings Knattspyrnusambands Íslands, sem haldið var á Hilton Nordica Hótel 11. febrúar síðastliðinn.

Ársþing

19. mars 2012

Hamar óskar eftir þjálfurum

Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði auglýsir eftir knattspyrnuþjálfara fyrir 1 – 2 yngri flokka deildarinnar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Þessa dagana er æft innahúss í íþróttahúsi bæjarins, en í vor færast allar æfingar út á gras-æfingasvæði.

Fræðsla

18. mars 2012

U17 kvenna - Danir lagðir að velli

Stelpurnar í U17 lögðu stöllur sínar frá Danmörku í dag í vináttulandsleik sem fram fór í Egilshöll. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir Ísland eftir að heimastúlkur leiddu 1 - 0 í leikhléi. Þjóðirnar mætast aftur á þriðjudaginn.   Aftur verður leikið í Egilshöll og hefst leikurinn kl. 18:00.

Landslið

16. mars 2012

Athygliverð rannsókn tengd vímuvarnasamningi hjá Völsungi

KSÍ vill vekja athygli á rannsókn sem gerð var á síðasta ári er tengist vímuvarnarsamningi sem Völsungur gerði við sína iðkendur og hefur verið í gangi frá árinu 2004. Rannsóknin var unnin af Kjartani Páli Þórarinssyni.

Fræðsla

16. mars 2012

Fyrirhuguðu dómaranámskeiði fyrir konur frestað

Fyrirhuguðu dómaranámskeiði fyrir konur, sem halda átti mánudaginn 19. mars, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Námskeiðið hafði verið auglýst hér á heimasíðu KSÍ. Námskeiðið verður auglýst síðar þegar af verður.

Dómaramál

16. mars 2012

FIFA styrkleikalisti kvenna - Ísland í 15. sæti

Íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Þetta er sama sæti og á síðasta lista en sem fyrr eru það Bandaríkin sem tróna á toppi listans en Þjóðverjar eru skammt undan.

Landslið

15. mars 2012

U17 kvenna - Breyting á hópnum fyrir Danaleikinn á sunnudaginn

Þorlákur Árnason hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Dönum í vináttulandsleik á sunnudaginn í Egilshöll. Bergrún Linda Björgvinsdóttir úr ÍBV kemur í stað Hildar Antonsdóttur úr Val, sem er meidd. Bergrún er einnig í hópnum fyrir leikinn á þriðjudaginn.

Landslið

15. mars 2012

Ólöglegir leikmenn með KB

Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Sigmar Egill Baldursson, Hrannar Bogi Jónsson og Freyr Saputra Daníelsson léku ólöglegir með KB gegn KFR í Lengjubikar karla, þann 10. mars síðastliðinn.

Lög og reglugerðir

15. mars 2012

Ólöglegur leikmaður með BÍ/Bolungarvík

Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Pétur Georg Markan lék ólöglegur með BÍ/Bolungarvík gegn Breiðabliki í Lengjubikar karla, þann 25. febrúar síðastliðinn. Leikmaðurinn var skráður í Víking. BÍ/Bolungarvík er því sektað um 30.000 krónur og skulu úrslit leiksins standa óbreytt.

Lög og reglugerðir

15. mars 2012

Unglingadómaranámskeið í Verkmenntaskóla Austurlands 22. mars - Frestað

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Neskaupstað í Verkmenntaskóla Austurlands á Norðfirði fimmtudaginn 22. mars og hefst kl. 17:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.

Dómaramál