15. nóvember 2011
Kristinn Jakobsson mun í kvöld, þriðjudaginn 15. nóvember, dæma vináttulandsleik Dana og Finna en leikið verður í Esbjerg. Kristni til halds og traust í leiknum verða aðstoðardómararnir, Sigurður Óli Þorleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson.
15. nóvember 2011
Eins og kynnt var í frétt hér á síðunni í fyrri frétt hófst leyfisferlið fyrir keppnistímabilið 2012 einmitt í dag, 15. nóvember.  Keflvíkingar biðu ekki boðanna og skiluðu sínum leyfisgögnum, öðrum en fjárhagslegum, og eru þar með fyrstir til að skila í leyfisferlinu í ár.
15. nóvember 2011
Í dag var dregið í milliriðla EM hjá U17 og U19 kvenna en Ísland var í pottinum hjá báðum aldursflokkum.  Hjá U19 er Ísland í riðli með Frakklandi, Rúmeníu og Hollandi. Hjá U17 er Ísland í riðli með Sviss, Englandi og Belgíu.
15. nóvember 2011
Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ hafa þeim félögum sem hyggjast sækja um þátttökuleyfi í Pepsi-deild og 1. deild karla 2012 verið nauðsynlegar upplýsingar, áður en vinna við leyfisumsókn hefst. Leyfisferlið telst því formlega hafið!
15. nóvember 2011
Í dag var dregið í undankeppni hjá U17 kvenna en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Sviss.   Íslenska U17 liðið er í riðli með Tékklandi, Eistlandi og Slóveníu. Stelpurnar í U19 eru í riðli með Danmörku, Moldavíu og Slóvakíu.
15. nóvember 2011
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verða tveir hópar í gangi hjá U17.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöllinni og hafa þjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið hópa fyrir þessar æfingar.
15. nóvember 2011
Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 25.-27. nóvember. Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.
14. nóvember 2011
Dregið verður í milliriðla hjá U17 og U19 kvenna í höfuðstöðvum UEFA, þriðjudaginn 15. nóvember.  Ísland er í pottinum hjá báðum aldursflokkum en milliriðlarnir verða leiknir í apríl á næsta ári.  Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu af drættinum á heimasíðu UEFA.
11. nóvember 2011
Knattspyrnudeild HK óskar eftir því að ráða þjálfara fyrir 8. flokk starfsárið 2011-2012. Óskað er eftir þjálfara með góða menntun og reynslu.
10. nóvember 2011
U21 landslið karla tapaði með fimm marka mun fyrir jafnöldrum sínum frá Englandi, en leikið var á Weston Homes vellinum í Colchester í kvöld. Sigurinn var fyllilega verðskuldaður, en heldur stór, enda komu 3 síðustu mörk heimamanna á síðustu 5 mínútum leiksins.
10. nóvember 2011
Strákarnir í U21 eru nú í Colchester í Englandi en liðið mætir heimamönnum í undankeppni EM í kvöld, fimmtudaginn 10. nóvember, kl. 19:30.  Leikið verður á  Weston Homes Community vellinum og er uppselt á leikinn en völlurinn tekur 10.000 manns.
9. nóvember 2011
Strákarnir í U21 eru nú í Colchester í Englandi en liðið mætir heimamönnum í undankeppni EM á morgun, fimmtudaginn 10. nóvember.  Leikið verður á  Weston Homes Community vellinum og er uppselt á leikinn en völlurinn tekur 10.000 manns.
9. nóvember 2011
Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ II þjálfaranámskeið á Reyðarfirði helgina 18.-20. nóvember.  Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig tímanlega.   Námskeiðsgjald er kr. 15.000.
8. nóvember 2011
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og verða æfingarnar í Kórnum og Egilshöllinni.  Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar og má sjá hópana hér að neðan.
7. nóvember 2011
Um síðastliðna helgi stóð KSÍ fyrir endurmenntunarnámskeiði fyrir þjálfara sem hafa svokallaða UEFA A þjálfaragráðu. Hingað til lands komu þeir Dick Bate og John Peacock en báðir starfa þeir hjá enska knattspyrnusambandinu.
7. nóvember 2011
Þann 8. nóvember næstkomandi verður opinber baráttudagur gegn einelti. Þrjú ráðuneyti ásamt mörgum félagasamtökum koma að deginum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er eitt af þeim og í tilefni dagsins er boðið til fræðsluerindis. Fundarstaður er á 3. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í fundarsal E.
7. nóvember 2011
Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik Makedóníu og Færeyja í undankeppni EM U21 karla en leikið verður föstudaginn 11. nóvember í Skopje.  Með Þóroddi verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Áskell Þór Gíslason og fjórði dómari verður Gunnar Jarl Jónsson.
4. nóvember 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn er mætir Englandi í undankeppni EM næstkomandi fimmtudag.  Leikið verður í Colchester og hefur Eyjólfur valið 19 leikmenn í hópinn og þar af eru fjórir leikmenn sem hafa ekki leikið með U21 liðinu áður.