2. nóvember 2011
Knattspyrnusamband Íslands stefnir á að halda þrjú 3. stigs þjálfaranámskeið í nóvember, tvö helgina 18 .- 20. nóvember og eitt helgina 25. - 27. nóvember. Annað námskeiðið helgina 18. - 20. nóvember er eingöngu opið konum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.
2. nóvember 2011
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 27. október síðastliðinn nýja reglugerð fyrir leyfiskerfi KSÍ og tekur hún gildi frá og með leyfisferlinu sem hefst formlega þann 15. nóvember næstkomandi, þ.e. í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2012.
1. nóvember 2011
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í knattspyrnuhúsinu í Kórnum og hefur Kristinn valið 21 leikmann á þessar æfingar.
1. nóvember 2011
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 62 leikmenn til æfinga um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni og eru valdir tveir hópar, leikmenn fæddir 1995 annars vegar og 1996 hinsvegar.
31. október 2011
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 27. október sl. breytingar á reglugerðum KSÍ.  Samþykkt var ný leyfisreglugerð KSÍ sem tekur þegar gildi og gildir því fyrir næsta ferli leyfiskerfis.  Í samræmi við nýja leyfisreglugerð voru gerðar breytingar á reglugerðum um knattspyrnumót og aga- og úrskurðarmál.  Þá voru einnig samþykktar breytingar á reglugerð um knattspyrnudómara og eftirlitsmenn.
31. október 2011
Verkefnið "Fótbolti fyrir alla" fer aftur stað sunnudaginn 13. nóvember.  Æfingar hefjast klukkan 11:30 og verða í stóra salnum í Ásgarði í Garðabæ.  Æfingarnar eru ætlaðar öllum börnum sem geta ekki nýtt sér hefðbundið barna- og unglingastarf vegna fötlunar eða þroskafrávika og er markmiðið að allir njóti boltans með sínu lagi.
31. október 2011
Helgina 11. - 13. nóvember er fyrirhugað að halda KSÍ I þjálfaranámskeið á Akureyri. Unnið er að dagskrá námskeiðsins og verður hún auglýst um leið og kostur gefst.
31. október 2011
Helgina 4.-6. nóvember heldur KSÍ endurmenntunarnámskeið fyrir KSÍ A/UEFA A gráðu þjálfa. Námskeiðið ber yfirskriftina "Þjálfun eftir leikstöðum" og er kennsla alfarið í höndum þeirra Dick Bate og John Peacock.
31. október 2011
Kristinn Jakobsson verður í eldlínunni næstkomandi fimmtudag, 3. nóvember, þegar hann dæmir leik Vaslui frá Rúmeníu og Sporting frá Portúgal. Leikurinn er í D riðli Evrópudeildar UEFA og fer fram í Rúmeníu. Þá eru þeir Þorvaldur Árnason og Birkir Sigurðarson að störfum í Lúxemborg þessa dagana
28. október 2011
Þær Írunn Þorbjörg Aradóttir og Lára Kristín Pedersen voru valdar í lið mótsins eftir úrslitakeppni EM U17 kvenna en úrslitakeppnin fór fram í Sviss í sumar. Það er tækninefnd UEFA sem sér um að velja lið mótsins og birtir niðurstöðurnar í skýrslu sem kom út á dögunum.
26. október 2011
Kvennalandsliðið lék sinn síðasta leik á árinu þegar liðið mætti Norður Írum í kvöld. Leikið var í Belfast og var leikurinn í undankeppni EM. Lokatölur urðu 0 -2 eftir að Íslendingar höfðu skorað bæði mörkin í fyrri hálfleiknum.
26. október 2011
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Kórnum og í Egilshöll.  Þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið hópa fyrir þessar æfingar.
26. október 2011
Strákarnir í U19 gerðu jafntefli í dag í lokaleik sínum í undankeppni EM en leikið var á Kýpur. Lokatölur urðu 2 - 2 eftir að staðan hafði verið 1 - 1 í leikhléi. Sigur hefði nægt liðinu til þess að tryggja sér sæti í milliriðlum en liðið hlaut tvo stig í leikjunum þremur.
26. október 2011
Strákarnir í U19 leika í dag síðasta leik sinn í undankeppni EM en riðill Íslands er leikinn á Kýpur. Ísland mætir Noregi í dag og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma. Ísland verður að vinna þennan leik til þess að eiga möguleika á sæti í milliriðlum en önnur úrslit þýða að Ísland situr eftir.
25. október 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Norður Írum á morgun, miðvikudag, í undankeppni EM.  Leikið verður á Oval vellinum í Belfast og hefst leikurinn kl. 18:30 að íslenskum tíma.
24. október 2011
Guðrún Fema Ólafsdóttir verður með flautuna á morgun, þriðjudaginn 25. október, þegar hún dæmir leik Noregs og Svíþjóðar en þarna leika U23 kvennalið þjóðanna.  Þá munu þeir Þorvaldur Árnason og Birkir Sigurðarson vera að störfum í Lúxemborg en þar verður leikinn riðill í undankeppni EM U17 karla.
24. október 2011
U19 landslið karla gerði á sunnudag 1-1 jafntefli við Kýpur í undankeppni EM 2012, en riðillinn er leikinn þar í landi.  Staðan er ekki ósvipuð og hjá U17 karla fyrir skömmu, þar sem Ísland er í neðsta sætinu fyrir lokaumferðina, en kemst áfram í milliriðla með sigri á Noregi í lokaleiknum.
23. október 2011
Strákarnir í U19 leika í dag annan leik sinn í undankeppni EM en leikið er við heimamenn í Kýpur.  Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla. hefur tilkynnt byrjunarliðið