Search
SÍA

17. nóvember 2009

Landsdómararáðstefna var haldin um helgina

Þriðja Landsdómararáðstefna ársins 2009 var haldin síðastliðinn laugardag og fór hún fram í höfuðstöðvum KSÍ.  Aðalfyrirlesarinn á ráðstefnunni var Thor Aage Egeland sálfræðingur norska Knattspyrnusambandsins

Fræðsla
Dómaramál

16. nóvember 2009

Leyfisferlið fyrir 2010 hafið

Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ er leyfisferlið fyrir keppnistímabilið 2010 nú formlega hafið.  Félög sem leika í Pepsi-deild karla og 1. deild karla hefja nú vinnu við leyfisumsóknir sínar.  Reyndar hefur eitt félag, ÍR, þegar skilað leyfisgögnum sínum.

Leyfiskerfi

14. nóvember 2009

Jafntefli í vináttulandsleik við Lúxemborg

Íslendingar gerðu jafntefli í kvöld við Lúxemborg en leikið var á Josy Barthel vellinum í Lúxemborg.  Lokatölur urðu 1 -1 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Það var Garðar Jóhannsson sem skoraði mark Íslendinga í leiknum.

Landslið

14. nóvember 2009

Byrjunarliðið tilbúið er mætir Lúxemborg

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Lúxemborg í vináttulandsleik í kvöld kl. 18:00.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 17:50.

Landslið

13. nóvember 2009

Strákarnir klárir fyrir Lúxemborg

Karlalandsliðið leikur á morgun vináttulandsleik við Lúxemborg og er leikið ytra á Josy Barthel vellinum.  Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en útsending hefst kl. 17:50.

Landslið

13. nóvember 2009

Öruggur sigur í San Marínó hjá U21 karla

Strákarnir í U21landsliðinu unnu í kvöld öruggan sigur á jafnöldrum sínum frá San Marínó.  Lokatölur urðu 0 - 6 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 0 - 4.  Íslenska liðið hefur nú hlotið 12 stig eftir 5 leiki og eru með jafnmörg stig og Tékkar sem hafa leikið einum leik minna.

Landslið

13. nóvember 2009

U21 karla leikur við San Marínó - Byrjunarliðið tilbúið

Strákarnir í U21 leika í kvöld kl. 19:30 við San Marínó og er leikið ytra.  Leikurinn er í undankeppni fyrir EM 2011 en Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins.  Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt  í leiknum.

Landslið

13. nóvember 2009

Kvennalandsliðið fær viðurkenningu Jafnréttisráðs

Í gær var veitti Jafnréttisráð kvennalandsliði Íslands viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir árið 2009.  Það var Katrín Jónsdóttir, fyrirliði, sem tók við viðurkenningunni úr hendi Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra fyrir hönd kvennalandsliðsins.

Landslið

12. nóvember 2009

U21 karla leikur gegn San Marínó á föstudag

Strákarnir í U21 leika gegn San Marínó á morgun, föstudaginn 13. nóvember, en leikurinn er liður í undankeppni EM.  Þetta er síðasti leikur Íslands á þessu ári í þessari keppni en liðið er í öðru sæti riðilsins sem stendur með níu stig eftir fjóra leiki. 

Landslið

12. nóvember 2009

Fjórir nýliðar léku gegn Íran

Fjórir nýliðar léku í vináttulandsleik gegn Íran síðastliðinn þriðjudag í Teheran en leiknum lauk með 1 - 0 sigri heimamanna.  Þrír þeirra voru í byrjunarliðinu og sá fjórði kom inn í leikhléi.  Þetta var fyrsti landsleikur á milli þessara þjóða.

Landslið

10. nóvember 2009

Eins marks tap í Teheran

Íslenska karlalandsliðið beið lægri hlut gegn Íran í dag í vináttulandsleik sem leikinn var í Teheran.  Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir heimamenn eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Framundan er svo vináttulandsleikur gegn Lúxemborg næstkomandi laugardag.

Landslið

10. nóvember 2009

Æfingar og æfingaleikur hjá U17 og U19 kvenna

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og hafa landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, valið hópa fyrir þessar æfingar.  Hóparnir munu einnig etja kappi í æfingaleik á sunnudaginn.

Landslið

10. nóvember 2009

Byrjunarliðið gegn Íran - Leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Íran í vináttulandsleik í dag kl. 14:30.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 14:20.  Leikið er á Azadi leikvangnum í Teheran.

Landslið

9. nóvember 2009

KSÍ I þjálfaranámskeið og unglingadómaranámskeið í Vestmannaeyjum

Helgina 20. - 22. nóvember mun Knattspyrnusamband Íslands halda 1. stigs þjálfaranámskeið í Vestmannaeyjum. Auk þess mun KSÍ halda unglingadómaranámskeið á sunnudeginum. Bæði þessi námskeið eru opin öllum sem áhuga hafa.

Fræðsla
Dómaramál

9. nóvember 2009

Æft á Azadi vellinum í dag

Íslenski landsliðshópurinn er um þessar mundir í Teheran þar sem leikinn verður vináttulandsleikur gegn Íran.  Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudag, og hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.  Útsendingin þar hefst kl 14:20.

Landslið

7. nóvember 2009

Breytingar á landsliðshópnum - Landsliðið hélt til Íran í morgun

Landsliðshópurinn hélt í morgun áleiðis til Teheran en leikinn verður vináttulandsleikur við Íran næstkomandi þriðjudag.  Þaðan verður svo haldið til Lúxemborg sem verða mótherjarnir í vináttulandsleik laugardaginn 14. nóvember. 

Landslið

6. nóvember 2009

ÍR-ingar hafa skilað leyfisgögnum fyrir 2010

Þótt leyfisferlið fyrir keppnistímabilið 2010 hefjist ekki fyrr en 15. nóvember næstkomandi gerðist það í dag, föstudaginn 5. nóvember, að ÍR-ingar skiluðu leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, vegna umsóknar um þátttökuleyfi í 1. deild sumarið 2010.

Leyfiskerfi

6. nóvember 2009

ÍR auglýsir eftir þjálfara hjá meistaraflokki kvenna

Knattspyrnudeild ÍR leitar eftir þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í uppbyggingu í meistaraflokki. Áhugasamir hafi samband við Úlfhildi í gsm: 695-8805/uoi@verkis.is eða Bjarna í gsm: 617-7759.

Fræðsla