6. nóvember 2009
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, föstudaginn 20. nóvember næstkomandi klukkan 20:00.
5. nóvember 2009
Ómar Smárason, leyfis- og markaðsstjóri KSÍ, sótti í vikunni UEFA-námskeið sem haldið var í Istanbul í Tyrklandi. Námskeiðið var beint framhald af UEFA-námskeiði sem haldið var á Íslandi í maí 2009 og fjallaði um viðburðastjórnun (Event Management).
5. nóvember 2009
Í gær hófst undirbúningur dómara fyrir næsta keppnistímabil.  Æft er á tveimur stöðum á landinu þ.e.a.s. á Akureyri og í Reykjavík.  Í gær var fyrsta æfing vetrarins þar sem dómararnir voru mældir í bak og fyrir.
5. nóvember 2009
Helgina 20. – 22. nóvember nk. ætlar Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður í knattspyrnu að halda markvarðanámskeið á vegum Þórs í Boganum á Akureyri. Kostnaður við námskeiðið er 6500 krónur á hvern þátttakenda og fer skráning fram í tölvupósti hjá Hlyn Birgissyni yfirþjálfara Þórs Akureyri.
5. nóvember 2009
Þriðjudaginn 10. nóvember mun KSÍ bjóða upp á UEFA A endurmenntun. Hingað til lands koma þeir John Peacock og Dick Bate en báðir starfa þeir hjá enska knattspyrnusambandinu. Námskeiðið hefst kl. 17:00 og verður haldið í Kórnum, knattspyrnuhúsinu í Kópavogi. Námskeiðið kostar 2.000 krónur.
4. nóvember 2009
Knattspyrnudeild UMFG auglýsir eftir framkvæmdastjóra í fullt starf frá og með 1. janúar 2010. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu (ásamt andlitsmynd og meðmælum) skal senda á umfg@centrum.is síðasta lagi 15. nóvember næstkomandi.
3. nóvember 2009
Unglingadómaranámskeið hjá KA verður haldið í KA heimilinu  11. nóvember  kl. 17:00.  Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
2. nóvember 2009
Úrtaksæfingar verða hjá U17 og U19 karla um helgina en alls hafa 68 leikmenn verið boðaðir til æfinga af landsliðsþjálfurunum, Gunnari Guðmundssyni og Kristni Jónssyni.  Æfingarnar verða í Kórnum og í Egilshöll.
2. nóvember 2009
Pauliina Miettinen, þjálfari meistaraliðs bandarísku atvinnumannadeildar kvenna, heldur fyrirlestur í Smáranum föstudaginn 6. nóvember. Hún mun stjórna opinni æfingu í Fífunni föstudaginn 6. nóvember klukkan 18.00-19.00. Strax í kjölfarið heldur hún fyrirlestur um þjálfun í kvennaknattspyrnu.
2. nóvember 2009
FIFA hefur gert ýmsar breytingar á reglugerð um félagskipti leikmanna (FIFA Regulations on the Status and Transfer of Players) og tóku þær gildi 1. október síðastliðinn. Félögin beðin um að kynna sér þessar breytingar gaumgæfilega.
30. október 2009
Landslið U21 karla leikur gegn San Marínó í undankeppni EM 2011 og verður leikið ytra, föstudaginn 13. nóvember. Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn fyrir þennan leik en þetta er síðasti leikur liðsins á árinu.
30. október 2009
Í dag, 30. október, er rétt ár síðan að íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM í Finnlandi.  Mótherjarnir fyrir ári síðan voru Írar og er óhætt að segja vallaraðstæður hafi verið erfiðar báðum liðum. Hér má finna myndbrot úr leiknum og geta áhorfendur endurlifað stemninguna og yljað sér við minningarnar
30. október 2009
Síðastliðið vor ákvað útbreiðslunefnd KSÍ að bjóða knattspyrnuskólum félaga upp á úttekt á starfsemi skólanna en það er hluti af grasrótarsáttmála UEFA, sem KSÍ er aðili af. Félög gátu sótt um slíka úttekt sem síðar var framkvæmd með heimsókn starfsmanna útbreiðslunefndar í knattspyrnuskólann.
29. október 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópa fyrir tvo vináttulandsleiki sem fara fram 10. og 14. nóvember næstkomandi. Leikið verður við Íran í Teheran þriðjudaginn 10. nóvember og við Lúxemborg í Lúxemborg, laugardaginn 14. nóvember.
28. október 2009
Stelpurnar í íslenska liðinu unnu dýrmætan sigur á stöllum sínum frá Norður Írlandi en leikurinn var liður í undankeppni HM 2011.  Lokatölur á The Oval í Belfast urðu 0 - 1 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Það var Katrín Ómarsdóttir sem skoraði sigurmarkið á 79. mínútu leiksins.
28. október 2009
Framundan eru æfingar hjá U17 og U19 kvenna en úrtaksæfingar eru nú um helgina. Þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið úrtakshópa fyrir þessar æfingar sem fara fram í Kórnum og í Reykjaneshöllinni.
27. október 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Norður Írum í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikurinn hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma og fer fram á The Oval í Belfast.
25. október 2009
Stelpurnar okkar í A-landsliði kvenna biðu á laugardag lægri hlut gegn Frökkum í undankeppni HM 2011.  Frakkar unnu tveggja marka sigur í leiknum, sem fram fór á Stede Gerland-leikvanginum í Lyon.