Search
SÍA

23. október 2009

Breyting á reglugerð vegna hlutgengis leikmanna

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 22. október sl. nýtt ákvæði í reglugerð KSÍ um  félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga.  Umrætt ákvæði var áður til bráðabirgða í reglugerðinni en er nú samþykkt sem fullgilt ákvæði.

Lög og reglugerðir

23. október 2009

Soffíu Gunnarsdóttur bætt í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hefur bætt Soffíu Gunnarsdóttur, úr Stjörnunni, inn í hópinn sem mætir Frakklandi og Norður Írlandi.  Soffía hélt til móts við hópinn í dag og verður tilbúinn í slaginn á morgun þegar Ísland mætir Frökkum í Lyon.

Landslið

23. október 2009

Byrjunarlið Íslands gegn Frökkum

SIgurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Frökkum í undankeppni fyrir HM 2011 en leikið er í Lyon.  Leikurinn hefst kl. 14:30 og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

23. október 2009

Stelpurnar æfa á keppnisvellinum í dag

Íslenska kvennalandsliðið æfir í dag á Stade de Gerland, heimavelli Lyon, en þar mætir liðið Frökkum á morgun í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

22. október 2009

Fræðst um knattspyrnu kvenna í Englandi

Á dögunum fór 11 manna hópur frá Íslandi til Englands í þeim tilgangi að að kynna sér knattspyrnu kvenna þar í landi.  Þessi ferð er hluti af stóru fræðsluverkefni UEFA sem KSÍ er aðili að og snýst um að knattspyrnusamböndin geti fræðst um starfsemi og uppbyggingu knattpyrnunnar hjá hvoru öðru.

Fræðsla

21. október 2009

KSÍ IV þjálfaranámskeið 6.-8. nóvember

KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 6.-8. nóvember.  Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði.  Bóklegi hluti námskeiðsins fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og verklegi þátturinn í Kórnum í Kópavogi. 

Fræðsla

20. október 2009

Geysisterkur riðill Íslands á Algarve Cup

Íslenska kvennalandsliðið tekur sem fyrr þátt á Algarve Cup á næsta ári en mótið fer fram dagana 24. febrúar til 3. mars að þessu sinni.  Þarna mæta til leiks mörg af sterkustu landsliðum í kvennaknattspyrnunni en búið er að skipta í riðla.

Landslið

20. október 2009

Um 70 leikmenn á úrtaksæfingum hjá U17 og U19 karla um helgina

Úrtaksæfingar verða um komandi helgi hjá U17 og U19 karlalandsliðum Íslands.  Þjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið um 70 leikmenn til þessara æfinga sem fara fram í Egilshöll og Kórnum.

Landslið

20. október 2009

Kristinn dæmir í Ísrael

Kristinn Jakobsson dæmir á fimmtudaginn leik Hapoel Tel Aviv og Rapid Vín í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Tel Aviv.  Eins og áður hefur komið fram hefur UEFA verið með verkefni þar sem fimm dómarar starfa við leiki í Evrópudeildinni ásamt varadómara. 

Dómaramál

19. október 2009

Hópurinn sem mætir Frökkum og Norður Írum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn er mætir Frökkum og Norður Írum í undankeppni HM 2011 og fara báðir leikirnir fram ytra.  Leikið verður við Frakka laugardaginn 24. október í Lyon en leikurinn við Norður Íra fer fram í Belfast, miðvikudaginn 28. október.

Landslið

19. október 2009

KSÍ II þjálfaranámskeið á næstu vikum - Hefst næstu helgi

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 23.-25. október og hins vegar 30. október-1. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa KSÍ I þjálfararéttindi.

Fræðsla

17. október 2009

Vinnufundur um nýja leyfisreglugerð

Eins og greint hefur verið frá hafa UEFA og stjórn KSÍ samþykkt nýja leyfisreglugerð.  Á laugardag var haldinn fundur með þeim félögum sem undirgangast leyfiskerfið og farið yfir breytingar milli ára og ýmis önnur mál sem tengjast leyfiskerfinu og leyfisferlinu.

Leyfiskerfi

16. október 2009

Mikilvægir leikir framundan hjá kvennalandsliðinu

Framundan eru tveir mikilvægir landsleikir hjá kvennalandsliðinu síðar í mánuðinum og fara þeir báðir fram ytra.  Laugardaginn 24. október verður leikið gegn Frökkum og miðvikudaginn 28. október eru Norður Írar mótherjarnir.

Landslið

16. október 2009

Fjárhagsleg háttvísi

Ómar Smárason leyfisstjóri KSÍ og Lúðvík Georgsson formaður leyfisráðs sátu í vikunni ráðstefnu UEFA um sérstakt verkefni sem verið er að setja í gang og fjallar um fjárhagslega háttvísi hjá knattspyrnufélögum - Financial Fair Play.

Leyfiskerfi

16. október 2009

Ísland upp um níu sæti á styrkleikalista karla

Íslenska karlalandsliðið fer upp um níu sæti á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag.  Ísland er nú í 87. sæti listans en Brasilíumenn tróna á toppnum en Spánverjar koma þar skammt á eftir.

Landslið

14. október 2009

Hundraðasti sigur A landsliðs karla

Þegar Suður Afríkumenn voru lagðir á Laugardalsvelli í gærkvöldi var það hundraðasti sigur A landsliðs karla.  Landsleikirnir eru orðnir 376 talsins og hafa sigrarnir verið 100, jafnteflin 68 og tapleikirnir 208 talsins.

Landslið

14. október 2009

Úrtaksæfingar hjá stelpunum í U17 og U19 framundan

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og hafa þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson valið hópa til þessara æfinga.  Æft verður í Kórnum og Reykjaneshöllinni.

Landslið

13. október 2009

Baráttusigur á Norður Írum hjá U21 karla

Strákarnir í U21 lögðu Norður Íra að velli í dag í undankeppni EM en leikið var í Grindavík.  Lokatölur urðu 2 - 1 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið markalaust í leikhléi.  U21 liðið því nú náð sér í níu stig eftir fjóra leiki og eru í öðru sæti riðilsins á eftir Tékkum

Landslið