Search
SÍA

13. október 2009

Sigur á Suður Afríku í Laugardalnum

Íslendingar lögðu Suður Afríku að velli í vináttulandsleik í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur urðu 1 - 0 og kom sigurmarkið í síðari hálfleik og var Veigar Páll Gunnarsson þar á ferðinni með gott mark eftir lúmskt skot.

Landslið

13. október 2009

Byrjunarliðið gegn Suður Afríku tilbúið

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem að mætir Suður Afríku kl. 18:10 í kvöld á Laugardalsvelli.  Ólafur hefur einnig gert eina breytingu á hópnum, Björgólfur Takefusa kemur inn í hópinn í stað Eiðs Smára Guðjohnsen sem á við meiðsli að stríða.

Landslið

13. október 2009

Ísland - Norður Írland hjá U21 karla í dag kl. 15:00 - Byrjunarliðið tilbúið

Ísland tekur á móti Norður Írlandi í dag í undankeppni fyrir EM og fer leikurinn fram á Grindavíkurvelli kl. 15:00.  Þetta er fjórði leikur Íslands í undankeppninni og hefur liðið 6 stig úr leikjunum þremur til þessa. Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

12. október 2009

Ísland - Suður Afríka þriðjudaginn 13. október kl. 18:10

Ísland tekur á móti Suður Afríku á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 13. október og hefst leikurinn kl. 18:10.  Miðasala á þennan vináttulandsleik er í fullum gangi í miðasölukerfi hjá midi.is og á leikdag opnar miðasala á Laugardalsvelli kl. 12:00.

Landslið

12. október 2009

Miðar fyrir handhafa A passa á Ísland - Suður Afríka

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Suður Afríka afhenta mánudaginn 12. október frá kl. 12:00 - 16:00 og þriðjudaginn 13. október frá 09:00 - 12:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis. 

Dómaramál
Landslið

12. október 2009

Gylfi Þór inn í hópinn fyrir Norður Íra leikinn

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt Gylfa Þór Sigurðssyni inn í hópinn er mætir Norður Írum í undankeppni EM.  Leikurinn fer fram á Grindavíkurvelli, þriðjudaginn 13. október og hefst kl. 15:00.

Landslið

12. október 2009

Sigur gegn Búlgaríu hjá U19 karla

Strákarnir í U19 léku í dag síðasta leik sinn í undankeppni fyrir EM en riðill þeirra var leikinn í Bosníu.  Íslenska liðið lék gegn Búlgaríu og unnu góðan sigur með þremur mörkum gegn tveimur eftir að hafa verið undir í hálfleik, 1 – 2. 

Landslið

12. október 2009

Fylkir auglýsir eftir þjálfara fyrir 2. flokk karla

Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfara fyrir 2. flokk karla á komandi tímabil.  Krafa er gerð um að viðkomandi þjálfari hafi lokið KSÍ B og hafi reynslu af þjálfun eldri flokka í knattspyrnu. 

Fræðsla

12. október 2009

U19 karla mætir Búlgörum í dag - Byrjunarliðið tilkynnt

Strákarnir í U19 karla mæta Búlgörum í dag en leikurinn er lokaleikur liðsins í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Bosníu.  Með sigri getur íslenska liðið tryggt sér sæti í milliriðlum en verður þá að treysta á að Norður Írar vinni ekki sigur á heimamönnum.

Landslið

12. október 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Aftureldingu í sumarbústaðnum að Varmá

Unglingadómaranámskeið hjá Aftureldingu verður haldið í sumarbústaðnum að Varmá  15. október  kl. 20:00.  Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

12. október 2009

Íslenskir dómarar í eldlínunni á miðvikudaginn

Íslenskir dómarar verða á faraldsfæti í vikunni og eru þeir að störfum við tvö verkefni á erlendri grundu á miðvikudaginn.  Kristinn Jakobsson dæmir leik Búlgaríu og Georgíu í undankeppni HM 2010 og Jóhannes Valgeirsson dæmir leik Hvíta Rússlands og Albaníu í undankeppni U21 karla.

Dómaramál

11. október 2009

Vináttulandsleikur gegn Íran 10. nóvember

Knattspyrnusambönd Írans og Íslands hafa náð samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 10. nóvember næstkomandi.  Leikið verður á Azadi vellinum í höfuðborg Írans, Teheran.  Þetta er í fyrsta skipti sem að landsleikur í knattspyrnu fer fram á milli þessara þjóða.

Landslið

9. október 2009

Öruggur sigur Íslands á San Marínó

Íslendingar unnu öruggan sigur á liði San Marínó í undankeppni EM U21 karlalandsliða í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur urðu 8 - 0 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4 – 0 Íslandi í vil.

Landslið

9. október 2009

Bleika slaufan í tíunda sinn

KSÍ hefur ákveðið að leggja baráttunni gegn brjóstakrabbameini lið með því að vekja athygli á söfnunar- og árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands - Bleiku slaufunni.  Lit á forsíðu vefs KSÍ hefur verið breytt eilítið, eins og sjá má, og bleika litnum leyft að njóta sín.

Fræðsla

9. október 2009

U19 karla mætir Norður Írum í dag - Byrjunarliðið tilbúið

Strákarnir í U19 mæta jafnöldrum sínum frá Norður Írlandi í dag en leikurinn er liður í undankeppni EM.  Þetta er annar leikur liðsins í keppninni sem fer fram í Bosníu.  Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og gerir fjórar breytingar frá fyrsta leiknum.

Landslið

9. október 2009

Strákarnir í U21 mæta San Marínó í kvöld - Byrjunarliðið tilbúið

Strákarnir í U21 mæta San Marínó í kvöld en leikurinn er liður í undankeppni EM.  Leikið verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 19:00.  Þetta er þriðji leikur strákanna í riðlinum en þeir hafa þrjú stig eftir tvö leiki.

Landslið

8. október 2009

Breytt um leikvöll hjá U21 karla á morgun

Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur verið ákveðið að færa leik Íslands og San Marínó í undankeppni EM.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli kl. 19:00 á morgun en ekki á Akranesvelli kl. 15:00 eins áætlað var í fyrstu.

Landslið

7. október 2009

Aron Einar dregur sig út úr U21 hópnum

Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur þurft að draga sig út úr hópnum hjá U21 karla en leikið verður við San Marínó, föstudaginn 9. október.  Aron Einar á við meiðsli að stríða en hann mun verða í hópnum þegar A landsliðið mætir Suður Afríku í vináttulandsleik

Landslið