7. október 2009
Loksins er komin til landsins vönduð þjálffræðibók í knattspyrnu á íslensku. Höfundur bókarinnar er Dr. Jens Bangsbo og fjallar hún um loftháða og loftfirrta þjálfun í knattspyrnu – með sérstaka áherslu á þjálfun ungra leikmanna.
7. október 2009
Strákarnir í U19 verða í eldlínunni í dag en þá mæta þeir Bosníu í undankeppni EM en leikið er í Bosníu. Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
6. október 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið úrtakshóp sem æfir um komandi helgi. Æft verður í Kórnum og Egilshöll og hefur Gunnar valið 36 leikmenn til þessara æfinga.
6. október 2009
KSÍ hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna, ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Suður Afríku sem fram fer á Laugardalsvelli 13. október kl. 18:10. Jafnframt er öryrkjum og ellilífeyrisþegum boðinn ókeypis aðgangur að leiknum.
6. október 2009
Miðasala er hafin á vináttulandsleik Íslands og Suður Afríku sem fram fer á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 13. október kl. 18:10.  Miðaverði er stillt í hóf og er miðaverð í forsölu frá 1.000 krónum upp í 2.500 krónur.  Það er því um að gera að næla sér í miða í tíma.
5. október 2009
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 23. - 25. október og hins vegar 30. október - 1. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa KSÍ I þjálfararéttindi.
5. október 2009
Í dag fóru 11 fulltrúar frá Íslandi að kynna sér uppbyggingu kvennaknattspyrnu á Englandi.  Þessi ferð er hluti af stóru fræðsluverkefni UEFA sem KSÍ er aðili að og snýst um knattspyrnusamböndin geti fræðst um starfsemi og uppbyggingu knattpyrnunnar hjá hvoru öðru.
4. október 2009
Strákarnir í U17 gerðu jafntefli í gær við Bosníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM en leikið var í Wales. Lokatölur urðu 1 -1 en Bosníumenn höfðu eins marks forystu í leikhléi. Íslenska liðið lék manni færra allan síðari hálfleikinn eftir að þeir misstu mann af velli vegna tveggja áminninga undir lok fyrri hálfleiks.
2. október 2009
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hóp sinn er mætir Norður Írlandi og San Marínó í undankeppni EM og fara báðir leikirnir fram hér á landi.  San Marínó verða mótherjarnir á Akranesvelli, föstudaginn 9. október og Norður Írar mæta til leiks á Grindavíkurvöll, þriðjudaginn 13. október.  Báðir leikirnir hefjast kl. 15:00.
1. október 2009
Strákarnir í U17 gerðu í gærkvöldi jafntefli gegn Rússum í undankeppni EM en leikið er í Wales. Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að Rússar höfðu leitt í leikhléi. Kristján Gauti Emilsson jafnaði metin fyrir Ísland í síðari hálfleik.
30. september 2009
Framkvæmdastjórn FIFA fundaði í gær í Ríó og meðal þeirra ákvarðana sem þar voru teknar var að framvegis yrðu landsleikjadagar á þriðjudögum í stað miðvikudaga áður.  Einnig ítrekaði framkvæmdastjórnin áherslur sínar og dagsetningar varðandi TMS félagaskiptakerfið.
30. september 2009
Knattspyrnusamband Íslands framlengdi í dag samning við Ólaf Jóhannesson sem landsliðsþjálfara A landsliðs karla og gildir samningurinn til ársloka 2011.  Nýr samningur þess efnis var undirritaður í dag í höfuðstöðvum KSÍ.
30. september 2009
Strákarnir í U17 leika gegn Rússum í dag í undankeppni EM en leikið er í Wales. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og hefur Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
30. september 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Suður Afríku í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þriðjudaginn 13. október kl. 18:10.  Ísland og Suður Afríka hafa tvisvar áður mæst hjá A landsliðum karla.
29. september 2009
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið landsliðshóp sem leikur í Bosníu í undankeppni EM dagana 7. - 12. október. Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru ásamt heimamönnum, Norður Írar og Búlgarir.
29. september 2009
Framundan eru hjá íslenska kvennalandsliðinu gríðarlega mikilvægir leikir í undankeppni fyrir HM 2011. Leikið verður við Frakka 24. október og Norður Íra 28. október og fara báðir leikirnir fram ytra. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið æfingahóp vegna þessara leikja.
29. september 2009
Um næstu helgi (3. og 4. október) standa Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands sameiginlega að ráðstefnum í tengslum við bikarúrslitaleiki karla og kvenna.
29. september 2009
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október.