29. september 2009
Meistaraflokksráð BÍ/Bolungarvíkur leitar að þjálfara fyrir meistarflokk karla. Spilandi þjálfari kemur vel til greina. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 7.október nk.
29. september 2009
Strákarnir í U17 hófu leik í gær í undankeppni EM þegar þeir mættu Wales en riðillinn er leikinn þar í landi.  Lokatölur urðu 3 - 2 heimamönnum í vil eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. 
28. september 2009
Strákarnir í U17 leika í dag fyrsta leik sinn í undankeppni EM en leikið er í Wales.  Mótherjarnir í dag eru heimamenn en einnig leika Bosnía og Rússland í þessum riðli.  Leikurinn í dag hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma
25. september 2009
Stelpurnar í U19 báru sigurorð af Rúmenum í gær en leikurinn var liður í undankeppni fyrir EM. Lokatölur urðu 5 - 0 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í hálfleik. Stelpurnar tryggðu sér þar með sæti í milliriðlum keppninnar.
25. september 2009
Ísland er í 17. sæti á nýjum styrkleikalista kvenna sem FIFA gaf út í dag.  Ísland fer upp um 2 sæti og sitja í sautjánda sætinu ásamt Rússum.  Það eru Bandaríkin sem eru í efsta sæti listans en nýkrýndir Evrópumeistarar Þjóðverja eru í öðru sæti.
24. september 2009
Stelpurnar í U19 leika í dag gegn Rúmeníu í riðlakeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal. Íslenska liðið er með fjögur stig eftir 2 leiki eins og það svissneska en Rúmenía hefur þrjú stig. Jafntefli tryggir íslenska liðinu sæti í milliriðlum.
23. september 2009
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 23 leikmenn til æfinga um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram á Tungubökkum og verða þrjár talsins.  Leikmennirnir 23 koma frá 16 félögum víðsvegar af á landinu.
23. september 2009
Eins og undanfarin ár verða haldnar bikarúrslitaráðstefnur í tengslum við úrslitaleiki í VISA bikar karla og kvenna.  Úrslitaleikirnir fara fram sömu helgina að þessu sinni, laugardaginn 3. október leika Fram og Breiðablik hjá körlum en sunnudaginn 4. október mætast Valur og Breiðablik hjá konum.
23. september 2009
Kristinn Jakobsson verður á ferð á flugi í október ásamt öðrum íslenskum dómurum en þann 1. október næstkomandi dæmir hann leik Anderlecht og Ajax í Evrópudeild UEFA.  Þann 14. október næstkomandi dæmir Kristinn svo leik Búlgaríu og Georgíu í undankeppni fyrir HM 2010.
21. september 2009
Stelpurnar í U19 gerðu í dag jafntefli gegn stöllum sínum frá Sviss en leikurinn er í riðlakeppni EM U19 kvenna og er leikið í Portúgal. Lokatölur urðu 1 - 1 en þannig var staðan í hálfleik. Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði mark Íslands og jafnaði þá metin á 8. mínútu.
21. september 2009
Knattspyrnufélagið Valur leitar að þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Ragnhildi Skúladóttur yfirmann barna-og unglingasviðs í síma 414-8005 eða í netfangið ragnhildur@valur.is.
21. september 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið landsliðshóp sinn er heldur til Wales og leikur þar í undankeppni EM.  Mótherjar strákanna, ásamt heimamönnum, eru Rússland og Bosnía.
21. september 2009
UEFA gerði í síðustu viku ítarlega úttekt á leyfisgögnum íslenskra félaga. Hingað til lands kom einn starfsmaður frá UEFA og honum til aðstoðar voru þrír starfsmenn PwC á Íslandi, sem grandskoðuðu gögnin og gerðu tillögur um úrbætur.
21. september 2009
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 15. september Leyfisreglugerð KSÍ sem tekur við af Leyfishandbók KSÍ.  Ekki er um verulegar efnislegar breytingar að ræða frá handbókinni en reglugerðin tekur gildi þann 1. nóvember næstkomandi.
21. september 2009
Stelpurnar í U19 kvenna mæta Sviss í kvöld í undankeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal.  Þetta er annar leikur liðsins í riðlinum en sigur vannst á heimastúlkum í fyrsta leik með tveimur mörkum gegn engu.
19. september 2009
Stelpurnar í U19 hófu leik í dag í undankeppni fyrir EM U19 kvenna en riðillinn er að þessu sinni leikinn í Portúgal.  Íslensku stelpurnar unnu sigur á heimastúlkum í fyrsta leik en leikið var gegn heimastúlkum.  Lokatölur urðu 0 -2 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.
18. september 2009
Íslenska kvennalandsliðið vann í gær sinn stærsta sigur frá upphafi þegar að landslið Eistlands var lagt af velli með tólf mörkum gegn engu.  Það má segja að þetta hafi legið í loftinu því að skömmu fyrir leikinn mátti sjá glæsilegan regnboga yfir Laugardalsvelli
18. september 2009
Á landsleik Íslands og Eistlands í gærkvöldi vöktu fánaberarnir sérstaka athygli.  Um var að ræða átta fatlaðar stúlkur sem að héldu á fánum FIFA á meðan leikmenn gengu inn á völlinn og þjóðsöngvar þjóðanna voru leiknir.