21. ágúst 2009
Úrslitakeppni EM-kvennalandsliða verður í beinni útsendingu í þremur heimsálfum. Í flestum tilfellum eru sjónvarpsstöðvar að kaupa sýningarréttinn að ákveðnum leikjum í keppninni, en ein stöð, Eurosport, sýnir alla leiki keppninnar beint. RÚV sýnir beint frá keppninni á Íslandi.
21. ágúst 2009
Eins og kunnugt er hélt kvennalandslið Íslands til Finnlands á föstudagsmorgunn, þar sem liðið leikur í úrslitakeppni  EM.  Áður en stelpurnar héldu í flugvélina drógu þær út vinningshafa í EM-leik Fríhafnarinnar, sem m.a. var auglýstur á emstelpurnar.is.
21. ágúst 2009
Síðasta æfing stelpnanna hér á landi fyrir úrslitakeppnina fór fram í gær og þá mættu liðsmenn hljómsveitarinnar Hjaltalín færandi hendi. Gáfu þeir hópnum 30 eintök á nýjasta disknum sínum en Hjaltalín mun vera með tónleika í Finnlandi á meðan riðlakeppninni stendur.
20. ágúst 2009
UEFA hefur tilkynnt að keppnisvellirnir í Turku og Tampere í Finnlandi séu ekki í ákjósanlegu standi.  Af þeim sökum geta þau lið sem eiga leiki á þessum völlum á fyrsta leikdegi sínum ekki æft þar daginn fyrir leiki sína.  Ísland leikur fyrsta leik sinn á EM, gegn Frakklandi, í Tampere.
20. ágúst 2009
Biðin hefur verið löng og ströng síðan að áhangendur íslenska kvennalandsliðsins sungu hástöfum „ÍSLAND Á EM !!!“ þegar við skautuðum yfir Írana í vetur. Nú er leikurinn við Serbíu í HM búinn og við tekur EM 2009 í öllum sínum dýrðarinnar ljóma.
19. ágúst 2009
Stelpurnar í U17 kvenna leika á sunnudaginn æfingaleik við Aftureldingu/Fjölni og fer leikurinn fram á Fjölnisvelli en ekki Varmárvelli eins og áætlað var í fyrstu.  Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 18 leikmenn sem munu spreyta sig í þessum leik.
19. ágúst 2009
Það verður nóg að gera hjá leyfisstjórn í september þar sem framkvæmdar verða tvær úttektir á leyfiskerfi KSÍ og gögnum þeirra félaga sem undirgangast kerfið. Báðar skoðanirnar fara fram í sömu vikunni, en eru þó algerlega aðskildar og ólíkir þættir skoðaðir.
19. ágúst 2009
Dagana 3. - 10. september verður haldin hér á landi riðill í undankeppni EM hjá U17 kvenna. Ásamt Íslendingum leika þar Þýskaland, Frakkland og Ísrael. KSÍ óskar eftir sjálfboðaliðum til að starfa við þetta mótshald.
19. ágúst 2009
Einn hluti af hinni viðamiklu heimasíðu UEFA, Training Ground, hefur að undanförnu fjallað um þær þjóðir sem leika í úrslitakeppni EM í Finnlandi sem hefst nú eftir fimm daga.  Nú er röðin komin að íslenska liðinu og eru viðtöl við Margréti Láru og Sigurð Ragnar en þau voru tekin í Englandi í síðasta mánuði.
19. ágúst 2009
Núna stendur yfir undirbúningur hjá fræðsludeild KSÍ fyrir þjálfaranámskeiðin sem fyrirhuguð eru nú á haustmánuðum.  Ef félög á landsbyggðinni óska eftir að fá til sín námskeið er þeim bent á að hafa samband við Fræðsludeild KSÍ en lágmarksfjöldi þátttakenda á þeim námskeiðum eru tólf.
18. ágúst 2009
Búningar landsliðsins í Finnlandi verða sérmerktir hverjum leik í riðlakeppni úrslitakeppninnar.  Kemur fram heiti leiksins, leikdagur og leikstaður sem og að fornafn leikmanna verður aftan á treyjunni.
18. ágúst 2009
Á heimasíðu UEFA má finna draumaliðsleik fyrir úrslitakeppni EM kvenna sem hefst í Finnlandi næstkomandi sunnudag.  Þátttakendur velja þá sitt draumalið og fá stig í samræmi við frammistöðu sinna leikmanna í keppninni.
18. ágúst 2009
Mænuskaðastofnun er sjálfseignarstofnun sem hefur það að markmiði sínu að stuðla að því með öllum tiltækum ráðum að lækning á mænuskaða verði að veruleika.  Stofnunin leitaði til nokkurra landsliðskvenna til þess að vekja athygli á starfsemi stofnunarinnar og var það auðsótt mál.
17. ágúst 2009
Í dag er rétt vika í að íslensku stelpurnar þreyti frumraun sína í úrslitakeppni EM í Finnlandi þegar liðið mætir Frökkum, 24. ágúst í Tampere.  Mótið hefst þó degi áður þegar leikið verður í A riðli.
17. ágúst 2009
Íslendingar og Norðmenn mætast á Laugardalsvellinum laugardaginn 5. september kl. 18:45.  Þetta er lokaleikur íslenska liðsins í undankeppni HM 2010 og er miðasala á leikinn hafin.  Hægt er að kaupa miða í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
15. ágúst 2009
Eftir leik kvennalandsliða Íslands og Serbíu í undankeppni HM 2011, þar sem íslenska liðið vann glæsilegan 5-0 sigur, voru sjö leikmenn heiðraðir fyrir landsleikjaáfanga.  Fjórir leikmenn voru heiðraðir fyrir að hafa náð að leika 50 landsleiki.
15. ágúst 2009
Það er óhætt að segja að Margrét Lára Viðarsdóttir hafi tekið markaskóna með sér á Laugardalsvöllinn í dag. Hún skoraði fjögur mörk gegn Serbíu í 5-0 sigri íslenska liðsins, í fyrsta leik liðsins í undankeppni HM 2011.
15. ágúst 2009
Eins og greint var frá hér á vefnum í gær týndist stór hluti farangurs serbneska landsliðsins á ferðalaginu til Íslands. Þessi mál eru nú komin á hreint.  Serbneska liðið leikur í æfingasettinu sínu.   Ísland mun leika í alhhvítum búningum.