Search
SÍA

14. ágúst 2009

Byrjunarliðið gegn Serbum á laugardag

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Serbíu í undankeppni HM 2010 á laugardag.  Íslenska liðið mun vafalaust sækja til sigurs gegn Serbum og það verður að segjast eins og er að uppstillingin er ekki árennileg.

Landslið

14. ágúst 2009

Átta leikmenn frá Masinac PZP í serbneska hópnum

Leikmenn frá serbenska liðinu Masinac PZP eru fjölmennir í landsliðshópi Serba fyrir landsleikinn gegn Íslendingum á Laugardalsvelli á laugardag.  Alls koma 8 leikmenn frá Masinac. 

Landslið

14. ágúst 2009

Serbarnir í hremmingum með keppnisbúningana

Stór hluti af farangri serbneska kvennalandsliðsins skilaði sér ekki til Íslands fyrir leikinn gegn Íslandi á Laugardalsvelli á laugardag.  Á meðal þess sem týndist, líklegast í millilendingu í París, er keppnisbúningasett liðsins og takkaskór nokkurra leikmanna.

Landslið

14. ágúst 2009

Með stjörnur í augum

Kannanir hafa sýnt að fyrirmyndir og markmiðasetning í íþróttum skipta gríðarlega miklu máli. Í dag njóta ungir knattspyrnuiðkendur þess að geta horft jafnt til Eiðs Smára og Margrétar Láru í leit sinni að fyrirmyndum.

Pistlar

14. ágúst 2009

Ætlar að vera í toppformi á EM

Á föstudag var haldinn blaðamannafundur fyrir landsleik Íslands og Serbíu, sem er fyrsti leikur þjóðanna í undankeppni HM 2011. Vefur KSÍ spjallaði stuttlega við landsliðskonuna Hólmfríði Magnúsdóttur og spurði hana um leikinn á morgun og EM sem framundan er.

Landslið

14. ágúst 2009

Kveðjum stelpurnar okkar með stæl!

Ætlar þú á leikinn hjá stelpunum okkar við Serbíu á laugardag?  Nældu þér þá í miða tímanlega. Handhafar A-aðgönguskirteina og börn 16 ára og yngri þurfa ekki miða.  Fjölmennum á leikinn og gefum stelpurnum okkar þá kveðjujöf sem þær eiga skilið!

Landslið

14. ágúst 2009

Knattþrautir hjá Þrótti, Ægi, HK og Selfossi

Knattþrautir KSÍ halda áfram að vekja mikla athygli og þátttakan hefur verið frábær hvar sem knattþrautirnar hafa verið kynntar.  Dagskrá næstu viku liggur fyrir og að venju mun Gunnar Einarsson, umsjónarmaður knattþrautanna, fara um víðan völl.

Fræðsla
Knattþrautir KSÍ

14. ágúst 2009

Fjallað um kvennalandsliðið á uefa.com Magazine

Fjallað er um kvennalandslið Íslands á Magazine hluta vefns UEFA - uefa.com og rætt við Sigurð Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfara, og Margréti Láru Viðarsdóttur, sóknarmann íslenska liðsins.

Landslið

14. ágúst 2009

Norræna dómararáðstefnan haldin hér á landi í ár

Norræna dómararáðstefnan, sem haldin er annað hvert ár, fer fram hér á Íslandi dagana 14. til 16. ágúst.  Ráðstefnuna sitja fulltrúar úr dómaranefndum allra Norðurlandanna, auk fulltrúa Norðurlandanna í dómaranefndum FIFA og UEFA.

Dómaramál

13. ágúst 2009

Þriðja viðureign Íslands og Serbíu á þremur árum

Kvennalandslið Íslands og Serbíu mætast í undankeppni HM 2011 á Laugardalsvelli á laugardag kl. 14:00.  Þetta er fyrsti leikur beggja liða í undankeppninni, en þriðja viðureignin á þremur árum.  Ísland og Serbía voru saman í riðli í undankeppni EM 2009.

Landslið

13. ágúst 2009

Sigurður Hannesson dómaraeftirlitsmaður á Dinamo Zagreb - Hearts

Sigurður Hannesson, eftirlitsmaður KSÍ, hefur verið settur dómaraeftirlitsmaður á viðureign króatíska liðsins Dinamo Zagreb og Heart of Midlothian frá Skotlandi, en liðin mætast á Maksimir-leikvanginum í Zagreb í Króatíu fimmtudaginn 20. ágúst. 

Dómaramál

13. ágúst 2009

Miðasölu á úrslitakeppni EM kvenna lokið hjá KSÍ

Eins og kunnugt er leikur kvennalandslið Íslands í lokakeppni EM í Finnlandi síðar í mánuðinum.  Hægt hefur verið að kaupa miða á leiki íslenska liðsins á skrifstofu KSÍ, en þeirri miðasölu er nú lokið.  Þó er enn hægt að kaupa miða í gegnum vef UEFA

Landslið

13. ágúst 2009

Fara á námskeið um "fimm dómara kerfið"

Kristinn Jakobsson, FIFA-dómari, og Guðmundur Ingi Jónsson, dómaraeftirlitsmaður, munu sækja námskeið á vegum UEFA 24. ágúst.  Efni námskeiðsins er hið svokallaða "5 dómara kerfi" sem prófa á í Evrópudeild UEFA í haust.

Dómaramál

13. ágúst 2009

Íslenskur dómarakvartett í Evrópudeild UEFA

Íslenskur dómarakvartett verður á leik austurríska liðsins FK Austria Wien og FC Metallurh Donetsk frá Úkraínu.  Um er að ræða síðari viðureign liðanna í umspili fyrir riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.  Leikurinn fer fram á Franz Horr-leikvanginum í Vín.

Dómaramál

12. ágúst 2009

Austurrískt dómaratríó á Ísland-Serbía

A landslið kvenna leikur fyrsta leik sinn í undankeppni HM 2011 á laugardag, þegar liðið tekur á móti Serbum á Laugardalsvellinum kl. 14:00.  Dómaratríóið á leiknum á laugardag kemur frá Austurríki. 

Landslið

12. ágúst 2009

1-1 jafntefli gegn Slóvökum

Ísland og Slóvakía skildu jöfn í vináttulandsleik þjóðanna í Laugardalnum í kvöld.  Lokatölur leiksins urðu 1-1 og gátu bæði lið verið nokkuð sátt með sinn hlut.  Kristján Örn Sigurðsson skoraði mark Ísland í leiknum, jafnaði metin í síðari hálfleik með hörkuskalla.

Landslið

12. ágúst 2009

Tveggja marka tap gegn Tékkum á KR-vellinum

U21 landslið karla tapaði fyrir Tékkum í undankeppni EM 2011 á KR-vellinum í dag.  Tékkar skoruðu tvö mörk í seinni hálfleik og reyndust það einu mörk leiksins.  Tékkar eru því með fullt hús stiga í riðlinum eftir tvo leiki og hafa ekki fengið á sig mark.

Landslið

12. ágúst 2009

Ólafur hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Slóvökum

Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir vináttulandsleikinn gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli í kvöld.  Sölvi Geir Ottesen Jónsson verður í miðverðinum, Ólafur Ingi Skúlason kemur inn á miðjuna og Heiðar Helguson í framherjastöðuna.

Landslið