12. ágúst 2009
U21 landslið karla hefur leik í undankeppni EM í dag, þegar liðið mætir Tékkum á KR-velli kl. 15:30.  Aðeins einum leik í riðlinum er lokið, þar sem Tékkar unnu 8-0 stórsigur á San Marínó í júní.  Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
12. ágúst 2009
Ásta Árnadóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins og ein af EM stelpunum okkar, er kynnt sérstaklega á Training Ground kennsluvefnum hjá uefa.com. Um er að ræða kennsluefni og er Ásta að sýna hvernig hún tekur hin frægu heljarstökks-innköst sín.
12. ágúst 2009
Í dag, miðvikudag kl. 19:00, mætast á Laugardalsvelli Ísland og Slóvakía en um er að ræða vináttulandsleik á milli þjóðanna.  Miðasala á leikinn er í fullum gangi í miðasölukerfi hjá midi.is.
11. ágúst 2009
Landslið Slóvakíu hefur verið á mikilli uppleið að undanförnu og hefur gengið mjög vel í undankeppni HM 2010.  Í landsliðshópnum eru margir sterkir leikmenn og liðið er gríðarlega öflugt.
11. ágúst 2009
Góð þátttaka var í knattþrautum í Vestmannaeyjum þegar Gunnar Einarsson, umsjónarmaður knattþrauta KSÍ, og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, skelltu sér til Eyja og kynntu verkefnið, sem hefur hlotið gríðarlega góða undirtektir.
11. ágúst 2009
U17 landslið kvenna tekur þátt í undankeppni EM í byrjun september.  Riðill Íslands fer fram hér á landi og leikur íslenska liðið við Frakkland, Þýskaland og Ísrael. Næstkomandi föstudag, 14. ágúst, er fyrirhugaður æfingaleikur við mfl. kvenna hjá Stjörnunni.
11. ágúst 2009
Ólafur Jóhannesson þjálfari hefur gert fjórðu breytinguna á landsliðshópnum sem mætir Slóvökum á Laugardalsvelli á miðvikudag.  Ragnar Sigurðsson er veikur, og í hans stað hefur Ólafur valið Baldur Sigurðsson úr KR.
11. ágúst 2009
UEFA hefur ákveðið hvaða dómarar verða að störfum í úrslitakeppni EM kvennalandsliða, sem fram fer í Finnlandi í ágúst og september. Níu dómarar, tólf aðstoðardómarar og þrír varadómarar munu sjá um dómgæsluna á mótinu.
11. ágúst 2009
Tvö íslensk dómaratríó verða að störfum í vináttulandsleikjum á miðvikudag, annars vegar í Danmörku og hins vegar á Norður-Írlandi.  Jóhannes Valgeirsson dæmir leik Norður-Írlands og Ísraels og Kristinn Jakobsson dæmir viðureign Danmerkur og Chile.
10. ágúst 2009
Dómaratríóið í vináttuleik Íslands og Slóvakíu á miðvikudag kemur frá Danmörku.  Fjórði dómarinn er íslenskur, Gunnar Jarl Jónsson, sem og eftirlitsmaðurinn, Eyjólfur Ólafsson
10. ágúst 2009
Markvörðurinn Árni Gautur Arason og fyrirliðinn Hermann Hreiðarsson geta ekki verið með í vináttulandsleiknum gegn Slóvakíu á miðvikudag og í þeirra stað hafa Hannes Þór Halldórsson markvörður Fram og Bjarni Ólafur Eiríksson leikmaður Vals verið valdir.
10. ágúst 2009
Hvar er mesta fjörið á landsleikjum á Laugardalsvelli?  Hvar á maður að kaupa sér miða ef maður vill komast í brjálaða stemmningu?  Nú það er auðvitað í I-hólfinu, því þar er Tólfan!
7. ágúst 2009
Fjölmiðlamaðurinn góðkunni, Valtýr Björn Valtýsson, hefur farið af stað að nýju með íþróttaþáttinn sinn "Mín Skoðun".  Þátturinn er á dagskrá á útvarpsstöðinni Xið 977 og er á dagskrá á milli 8 og 10 á morgnana, alla virka daga.
7. ágúst 2009
Úrtökumót KSÍ fyrir drengi fædda árið 1994 fer fram að Laugarvatni 14. - 16. ágúst.   Rúmlega 60 leikmenn frá félögum víðs vegar af landinu hafa verið boðaðir.  Smellið hér að neðan til að skoða nánari upplýsingar um mótið.
7. ágúst 2009
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Slóvakíu afhenta mánudaginn 10. ágúst frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis. 
7. ágúst 2009
Síðastliðin ár hafa knattspyrnusambönd á Norðurlöndunum haft með sér samstarf um dómaraskipti og hafa þá dómarar ferðast á milli þessara landa og dæmt leiki.  Valgeir Valgeirsson dómari mun á sunnudaginn dæma leik í næst efstu deildinni í Svíþjóð. 
7. ágúst 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Slóvökum í vináttulandsleik næstkomandi miðvikudag á Laugardalsvelli.  Pálmi Rafn Pálmason kemur inn í hópinn í stað Arnórs Smárasonar sem er meiddur.
7. ágúst 2009
Síðustu tvö ár hafa þær Þóra Tómasdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir, fylgt íslenska kvennalandsliðinu eins og skugginn.  Afrakstur þess eltingaleiks er svo hægt að berja augum í Háskólabíói í næstu viku en þá verður frumsýnd heimildarmyndin "Stelpurnar okkar"