2. júlí 2009
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Þróttar R. gegn Haukum vegna leiks félaganna í 2. flokki karla B þann 8. júní síðastliðinn.  Úrskurðurinn hljómar upp á að úrslitum leiksins skuli breytt í 0 - 3 Þrótti R. í vil.
2. júlí 2009
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Keflavíkur gegn ÍR vegna leiks félaganna í Pepsi-deild kvenna sem fram fór 29. maí síðastliðinn.  Samkvæmt úrskurðinum skulu úrslit leiksins standa óbreytt.
2. júlí 2009
Stelpurnar í U17 mæta stöllum sínum frá Hollandi í dag en leikurinn er síðasti leikur liðsins í riðlakeppni opna Norðurlandamótsins. Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarliðið í leiknum gegn Hollendingum sem fram fer kl. 17 að íslenskum tíma.
2. júlí 2009
Eins og kunnugt er stendur KSÍ fyrir knattþrautum á meðal iðkenda 5. flokks hjá félögunum. Á dögunum voru nokkrir valinkunnir landsliðsmenn fengnir til þess að spreyta sig á þessum knattþrautum og gefa iðkendum góð ráð.
1. júlí 2009
Greinilegt er að krakkarnir í 5. flokki taka vel við knattþrautum KSÍ en í vikunni heimsótti Gunnar Einarsson Grindavík og Voga. Vel var tekið á móti honum og sýndu krakkarnir þrautunum mikinn áhuga og frammistaðan var eftir því.
1. júlí 2009
Íslenska stúlknalandsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri lék gegn Þjóðverjum í gær á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð. Þýska liðið er gríðarlega sterkt og fór með sigur af hólmi, 6 - 0.
1. júlí 2009
Guðrún Fema Ólafsdóttir dæmdi í gær sinn fyrsta opinbera landsleik á Opna Norðurlandamóti U17 kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Sunne í Svíþjóð. Þetta er jafnframt fyrsta alþjóðlega verkefni sem kemur í hlut íslensks kvendómara. 
30. júní 2009
Í dag heimsækir Gunnar Einarsson Voga og Sandgerði með knattþrautir KSÍ þar sem iðkendur 5. flokks karla og kvenna fá að spreyta sig. Kl. 13:00 verður Gunnar hjá Þrótti Vogum og kl. 16:00 verður hann í Sandgerði.
30. júní 2009
Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarlið U16 ára stúlknalandsliðsins gegn Þjóðverjum en leikið er í bænum Forshaga og hefst leikurinn kl. 19:00 að staðartíma, 17:00 að íslenskum tíma.
30. júní 2009
Stelpurnar í U17 kvenna báðu lægri hlut gegn Norðmönnum í fyrsta leik Norðurlandamóts U17 kvenna sem haldið er í Svíþjóð. Lokatölur urðu 5 - 2 fyrir norska liðið eftir að þær höfðu leitt í hálfleik, 4 - 2.
29. júní 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi en æft verður á Tungubökkum. 26 leikmenn eru valdir til þessara æfinga.
29. júní 2009
Stelpurnar í U17 hefja í dag leik í Norðurlandamóti U17 kvenna en það fer fram í Svíþjóð. Stelpurnar leika fyrsta leik sinn í dag kl. 17:00 en mótherjarnir eru stöllur þeirra frá Noregi. Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt fyrir leikinn í dag.
26. júní 2009
Það var líf og fjör í knattþrautum KSÍ í vikunni. Gunnar Einarsson, sem hefur yfirumsjón með knattþrautunum fyrir KSÍ, heimsótti Vestfirði fyrri part vikunnar og var hjá Haukum og Fram á miðvikudag og fimmtudag.
25. júní 2009
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt íslenska leikmannahópinn fyrir úrslitakeppni EM, sem fram fer í Hvíta-Rússlandi og hefst mánudaginn 13. júlí.
25. júní 2009
Magnús Þórisson mun dæma viðureign hvítrússneska liðsins FC Dinamo Minsk og FK Renova frá Makedóníu, en leikurinn, sem er í forkeppni Evrópudeildar UEFA, fer fram í Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 2. júlí.
25. júní 2009
Það verður nóg um að vera í Finnlandi þegar úrslitakeppni EM kvennalandsliða fer fram.  Sendiráð Íslands tekur þátt í sérstöku kynningarverkefni í Helsinki og hljómsveitin Hjaltalín mun halda þrenna tónleika.
25. júní 2009
Laugardaginn 6. júní útskrifuðust 27 þjálfarar með KSÍ A þjálfaragráðu, en KSÍ A þjálfaragráðan er hæsta gráða sem Knattspyrnusamband Íslands býður upp á í sínu þjálfaramenntunarkerfi.
24. júní 2009
Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir mál Keflavíkur gegn Breiðabliki vegna leiks í eldri flokki karla.  Úrskurðurinn er á þá leið að úrslitum leiksins skuli breytt og Keflavík dæmdur 3-0 sigur í leiknum.  Jafnframt er Breiðabliki gert að greiða sekt.