24. júní 2009
Knattþrautir KSÍ verða kynntar fyrir krökkum í 5. flokki karla og kvenna hjá Fram í Grafarholtinu í Reykjavík í dag, miðvikudag. Gunnar Einarsson hefur yfirumsjón með knattþrautunum.
24. júní 2009
Knattþrautir KSÍ verða kynntar fyrir krökkum í 5. flokki karla og kvenna hjá Haukum í Hafnarfirði á fimmtudag kl. 13:30. Gunnar Einarsson heimsækir félögin og fer yfir knattþrautirnar með iðkendum og þjálfurum.
24. júní 2009
UEFA stendur fyrir skemmtilegum leik á vefsíðu sinni þar sem þátttakendur eiga möguleika á að vinna eitt stykki litla rútu, Ford Minibus, ásamt öðrum verðlaunum. Félög um fjörvalla Evrópu geta tekið þátt.
24. júní 2009
Norðmenn hafa tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir úrslitakeppni EM kvennalandsliða, sem fram fer í Finnlandi í ágúst og september.  Um 22 manna hóp er að ræða og leika aðeins tveir leikmenn með liðum utan Noregs.
24. júní 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A landsliðs kvenna, mætti á æfingu hjá 5. flokki karla og 6. flokki karla og kvenna í Grindavík á dögunum, ásamt tveimur leikmönnum landsliðsins, þeim Söru Björk Gunnarsdóttir og Fanndísi Friðriksdóttir.
24. júní 2009
Guðrún Fema Ólafsdóttir knattspyrnudómari mun starfa við Opna NMU17 landsliða kvenna, sem fram fer í Svíþjóð um mánaðamótin.  Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kvendómari fær alþjóðlegt verkefni á erlendri grundu.
23. júní 2009
Úrtaksæfingar vegna U18 landsliðs karla verða haldnar um helgina. Alls hafa 28 leikmenn frá verið boðaðir á æfingarnar, sem fara fram laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júní á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
23. júní 2009
Gunnar Einarsson knattspyrnumaður ferðast um landið á vegum KSÍ í sumar og kynnir knattþrautir. Í dag, þriðjudag kl. 11:00, verður Gunnar á Ísafirði og kl. 14:00 í Bolungarvík.
22. júní 2009
U17 landslið kvenna tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð um næstu mánaðamót. Þorlákur Árnason, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt landsliðhópinn fyrir mótið.
19. júní 2009
Í júlí árið 1966 datt ökumanni nokkrum í hug að innleiða gula og rauða spjaldið í knattspyrnudómgæsluna – vegna umferðarljósa ! Saga gula og rauða spjaldsins.
19. júní 2009
Eins og áður hefur komið fram verður KSÍ með knattþrautir fyrir 5. flokk karla og kvenna í sumar og mun Gunnar Einarsson hafa yfirumsjón með þeim. Hann mun heimsækja félögin og fara yfir knattþrautirnar með iðkendum og þjálfurum.
19. júní 2009
Það er óhætt að segja að landslið Íslands í knattspyrnu verði á ferð og flugi í júlímánuði næstkomandi en þá fara fram um 20 landsleikir hjá nokkrum landsliðum Íslands. Leikirnir geta orðið fleiri en það fer eftir árangri liðanna í mótunum.
19. júní 2009
KSÍ hefur ráðið til starfa tvo nýja starfsmenn í sérstök átaksverkefni og er um tímabundnar ráðningar að ræða. Annars vegar er um verkefni í mótadeild að ræða, en hins vegar um útbreiðsluverkefni.
19. júní 2009
Föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí mun KSÍ halda endurmenntunarnámskeið fyrir KSÍ A (UEFA A) þjálfara í höfuðstöðvum KSÍ. Námskeiðið er eingöngu opið þjálfurum sem hafa KSÍ A eða UEFA A þjálfaragráðu.
18. júní 2009
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Stjörnunnar gegn HK vegna leiks félaganna í bikarkeppni 3. flokks karla sem fram fór 2. júní síðastliðinn.  Úrskurðurinn hljóðar upp á að úrslitum leiksins skuli breytt, 3-0, Stjörnunni í vil.
18. júní 2009
Knattspyrnusamband Ìslands mun vera með knattþrautir fyrir 5. flokk karla og kvenna ì sumar. Það er Gunnar Einarsson, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, sem mun heimsækja félögin á vegum KSÍ og aðstoða við framkvæmd þrautanna.
18. júní 2009
Sunnudaginn 28. júní mun sænskur þjálfari að nafni Eijlert Björkman halda fyrirlestur í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands. Eijlert Björkman er starfandi þjálfari í unglingaakademíunni hjá IFK Göteborg.
16. júní 2009
Frændur okkar Færeyingar munu heimsækja okkur í júlí með U17 og U19 kvennalandslið sín og leika fjóra landsleiki við íslenskar stöllur sínar. Leikið verður í Hveragerði, Þorlákshöfn og Hvolsvelli.