23. júní 2009
Úrtaksæfingar vegna U18 landsliðs karla verða haldnar um helgina. Alls hafa 28 leikmenn, fæddir 1992 og síðar, frá 19 félögum víðs vegar af landinu verið boðaðir á æfingarnar, sem fara fram laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júní á Tungubökkum í Mosfellsbæ. Þjálfari liðsins er Kristinn Rúnar Jónsson.
