Search
SÍA

15. júní 2009

Úrslitakeppni EM U21 karla hefst í dag

Í dag hefst úrslitakeppni landsliða U21 karla en keppnin fer fram í Svíþjóð.  Fyrsti leikur keppninnar er í dag en þá eigast við England og Finnland.  Hægt er að fylgjast með leikjum keppninnar í beinni útsendingu á heimasíðu UEFA án endurgjalds.. 

Landslið

15. júní 2009

Niðurstöður KINE prófs sláandi

Fimmtudaginn 4. júní sl. hélt KSÍ fund með þjálfurum og leikmönnum U19 kvenna. Tilgangur fundarins var að kynna niðurstöður KINE prófs sem er forvarnarpróf vegna krossbandaslita. Niðurstöðurnar voru sláandi.

Pistlar

15. júní 2009

Undirbúningshópur hjá U19 kvenna valinn

Eftir tæpan mánuð heldur U19 landslið kvenna til Hvíta Rússlands þar sem úrslitakeppni U19 kvenna bíður þeirra.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið undirbúningshóp til æfinga um helgina en úrslitakeppnin hefst 13. júlí.

Landslið

12. júní 2009

Frakkar velja hópinn fyrir úrslitakeppnina í Finnlandi

Bruno Bini, landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Frakka, hefur valið hóp sinn fyrir úrslitakeppni EM kvenna í Finnlandi sem hefst í ágúst.  Frakkar verða fyrstu mótherjar Íslendinga í úrslitakeppninni en þjóðirnar mætast í Tampere 24. ágúst.

Landslið

11. júní 2009

Hvað hefur áunnist í helstu verkefnum Fræðslunefndar?

Á dögunum barst fyrirspurn í gegnum KÞÍ frá þeirra félagsmanni til Fræðslunefndar KSÍ.  Spurt var hvernig staðan væri í dag og hvað hefði áunnist á síðastliðnum 10 árum í þeim atriðum sem tilgreind eru til helstu verkefna hjá nefndinni.

Fræðsla

10. júní 2009

Tveggja marka tap í Skopje

Makedónía lagði Ísland í dag í undankeppni fyrir HM 2010 en leikið var í Skopje.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu haft eins marks forystu í hálfleik.

Landslið

10. júní 2009

Allt til reiðu í Makedóníu

Það styttist í leik Makedóníu og Íslands í undankeppni fyrir HM 2010 og hefst nú kl. 15:45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.  Mikill hiti er nú í Skopje og sýnir hitamælirinn á leikvellinum 38 gráður nú 90 mínútum fyrir leik.

Landslið

10. júní 2009

Hefðbundin gönguferð í styttra lagi

Íslensku landsliðsmennirnir undirbúa sig nú undir leikinn við Makedóníu sem hefst í Skopje kl. 15:45 að íslenskum tíma.  Í morgun kl. 10:00 að staðartíma brugðu leikmenn og fylgdarlið sér í hinn hefðbundna göngutúr á leikdag. 

Landslið

10. júní 2009

Makedónía - Ísland í dag kl. 15:45

Í dag kl. 15:45 mætast Makedónía og Ísland í undankeppni HM 2010 og verður leikið í Skopje.  Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst upphitun fyrir leikinn þar kl. 15:10. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.

Landslið

9. júní 2009

Eyjólfur í hóp dómaraeftirlitsmanna UEFA

Eyjólfur Ólafsson, fyrrum dómari, er kominn inn í hóp dómaraeftirlitsmanna UEFA en Eyjólfur hefur mikla reynslu af dómarastörfum og hefur setið í dómaranefnd KSÍ að undanförnu.

Dómaramál

9. júní 2009

Æft á keppnisvellinum í dag

Íslenska landsliðið æfði í dag á keppnisvellinum í Skopje.  Mjög heitt er í veðri, um 37 stiga hiti og ekki ský á lofti.  Leikurinn hefst á morgun kl. 15:45 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport.

Landslið

9. júní 2009

Engar spennur á vellinum - Frá Dómaranefnd KSÍ

Dómaranefnd KSÍ vill að gefnu tilefni vekja athygli á því að leikmönnum er óheimilt að bera hárspennur í leikjum. Notkun límbands (plástra) til að hylja skartgripi er ekki fullnægjandi.

Dómaramál

9. júní 2009

Æfingahópur fyrir Norðurlandamót hjá U17 kvenna

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi.  Framundan er Norðurlandamót U17 kvenna en það fer fram í Svíþjóð dagana 29. júní - 4. júlí.

Landslið

8. júní 2009

Landsliðið æfði í dag í Skopje

Íslenska karlalandsliðið æfði í dag í Skopje í Makedóníu en liðið kom þangað um hádegið í dag.  Þrír leikmenn hópsins eiga við meiðsli að stríða.  Þeir Emil Hallfreðsson og Stefán Gíslason eru á batavegi.

Landslið

8. júní 2009

Í sérstökum starfshópi um leyfismál

Ómar Smárason, leyfis- og markaðsstjóri KSÍ, hefur verið skipaður í sérstakan starfshóp á vegum UEFA, sem hefur það hlutverk að skoða ýmis mál tengd leyfiskerfinu í Evrópu og koma með tillögur að úrbótum þar sem við á.

Leyfiskerfi

8. júní 2009

Landsliðið komið til Skopje

Íslenska karlalandsliðið er nú komið til Skopje í Makedóníu en framundan er leikur í undankeppni HM 2010 við heimamenn.  Leikurinn fer fram miðvikudaginn 10. júní og hefst kl. 15:45 að íslenskum tíma.

Landslið

7. júní 2009

Fimm leikmenn kallaðir í hópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert fimm breytingar á landsliðshópnum sem mætir Makedóníu á miðvikudaginn.  Inn í hópinn koma þeir Jóhann Berg Guðmundsson, Hjálmar Jónsson, Guðmundur Steinarsson, Davíð Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason

Landslið

6. júní 2009

Hollenskur sigur í Laugardalnum

Hollendingar reyndust of sterkir fyrir Íslendinga í kvöld á Laugardalsvelli þegar þjóðirnar léku í undankeppni fyrir HM 2010.  Hollendingar sigruðu með tveimur mörkum gegn einu eftir að hafa leitt í leikhléi, 2-0.  Holland tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni HM 2010 sem fram fer í Suður Afríku.

Landslið