Search
SÍA

2. júní 2009

Fleiri breytingar á U21 hópnum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert þrjár breytingar á hóp sínum fyrir vináttulandsleik gegn Dönum næstkomandi föstudag.  Eyjólfur hefur valið þá Almar Ormarsson, Kristin Jónsson og Eið Aron Sigurbjörnsson í hópinn.

Landslið

29. maí 2009

Magnús í eldlínunni í Wales

Magnús Þórisson verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir vináttulandsleik Wales og Eistlands.  Leikurinn fer frá á Parc y Scarlets í Llanelli.  Magnúsi til aðstoðar eru þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson.

Dómaramál

29. maí 2009

Breytingar á hópnum hjá U21 karla

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingar á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Dönum í Árósum.  Inn í hópinn koma þeir Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Jósef Kristinn Jósefsson og Rafn Andri Haraldsson.

Landslið

29. maí 2009

Hollenski hópurinn tilkynntur

Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollands, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir landsleiki gegn Íslendingum og Norðmönnum.  Það er óhætt að segja að það sé valinn maður í hverju rúmi hjá hollenska liðinu sem mætir Íslendingum.

Landslið

29. maí 2009

Miðar á Ísland - Holland fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Holland afhenta miðvikudaginn 3. júní frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

28. maí 2009

Mætum öll í bláu

Það hefur löngum verið siður stuðningsmanna knattspyrnuliða að klæðast litum sinna liða á kappleikjum.  Þetta þekkjum við vel frá knattspyrnuleikjum félagsliða, hér á landi sem annars staðar.  Þessi siður er enn sterkari þegar kemur að landsliðum

Pistlar

28. maí 2009

Knattspyrnuskóli stúlkna á Laugarvatni 8. - 12. júní

Knattspyrnuskóli stúlkna fer fram á Laugarvatni dagana 8. til 12. júní.  Félögin hafa tilnefnt þátttakendur í skólann en þeir eru fæddir árið 1995.  Það er Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, sem hefur yfirumsjón með skólanum.

Fræðsla

28. maí 2009

Klæðum stúkuna í bláan lit!

Allir áhorfendur sem leggja leið sína á Laugardalsvöllinn laugardaginn 6. júní, þegar Íslendingar og Hollendingar mætast í undankeppni HM 2010, eru hvattir til að klæðast bláum lit, þannig að sá litur verði áberandi í stúkunni. 

Landslið

27. maí 2009

Grasrótarnámskeið fyrir þjálfara 7. júní

Sunnudaginn 7. júní mun KSÍ standa fyrir Grasrótarnámskeiði fyrir þjálfara.  Námskeiðið er opið öllum þjálfurum, en hentar mjög vel þjálfurum yngri flokka og kennurum og aðstoðarmönnum í knattspyrnuskólum félaga.

Fræðsla

26. maí 2009

Eyjólfur velur hóp fyrir vináttulandsleik við Dani

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Dönum þann 5. júní næstkomandi.  Leikið verður í Álaborg á heimavelli AaB.

Landslið

26. maí 2009

Hópurinn valinn fyrir Holland og Makedóníu

Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag voru tilkynntur landsliðshópur hjá A landsliði karla.  Framundan tveir leikir í undankeppni HM 2010.  Tekið verður á móti Hollandi á Laugardalsvellinum, laugardaginn 6. júní kl. 18:45. Að neðan má sjá viðtal við landsliðsþjálfarann.

Landslið

26. maí 2009

Héraðsdómaranámskeið þriðjudaginn 2. júní

Námskeiðið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ og hefst kl. 19:30. Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.  Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara.  Aldurstakmark 16 ára og er námskeiðið ókeypis.

Dómaramál

25. maí 2009

Hópurinn tilkynntur á morgun fyrir Holland og Makedóníu

Á morgun verður haldinn blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ og hefst hann kl. 13:00. Á fundinum verður tilkynntur A landsliðshópur karla er mætir Hollandi á Laugardalsvelli 6. júní og Makedóníu ytra 10. júní.  Þá verður tilkynntur hópurinn hjá U21 karla en liðið leikur vináttulandsleik gegn Dönum, föstudaginn 5. júní.

Landslið

25. maí 2009

Glæsilegir Íslandsleikar Special Olympics

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu fóru fram síðastliðinn sunnudag og tókust þeir ákaflega vel.  Umsjónaraðili leikanna var KR í samstarfi við ÍF og KSÍ.  Forseti Íslands afhenti öllum keppendum verðlaun.

Fræðsla

25. maí 2009

Miðasala á Ísland - Holland í fullum gangi

Miðasala á leik Íslands og Hollands í undankeppni HM 2010 er nú í fullum gangi. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 6. júní og hefst kl. 18:45.  Miðasala fer fram sem fyrr í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

22. maí 2009

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða haldnir sunnudaginn 24. maí á íþróttasvæði KR.  Umsjónaraðili leikanna verður KR í samstarfi við ÍF og KSÍ.  Upphitun hefst kl.12:30 í umsjá Grétars Sigfinns Sigurðssonar. 

Fræðsla

20. maí 2009

Leikið við England á heimavelli Colchester 16. júlí

Vináttulandsleikur Englands og Íslands þann 16. júlí næstkomandi fer fram á heimavelli Colchester, Weston Homes Community Stadium.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Setanta.

Landslið

19. maí 2009

Héraðsdómaranámskeið hjá Selfossi

Héraðsdómaranámskeið verður haldið hjá Selfossi föstudaginn 22. maí kl. 17:00 í íþróttahúsinu Iðu.  Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.  Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.

Fræðsla