Search
SÍA

19. maí 2009

Frestur til að sækja um störf til 20. maí

KSÍ auglýsir eftir þremur starfsmönnum í tímabundin störf en um er að ræða átaksverkefni sem einungis er ætlað þeim sem eiga bótarétt. Um er að ræða störf við skráningu leikskýrslna og starf við yfirumsjón með knattþrautum yngri kynslóðarinnar

Fræðsla

18. maí 2009

Þróttur þarfnast þjálfara

Knattspyrnudeild Þróttar vantar þjálfara til starfa fyrir yngri flokka félagsins.  Tekið verður við umsóknum fram til 22.maí nk. Áhugasamir hafið samband við Heiðar Birni, yfirþjálfara í síma 618-0317 eða heidar@trottur.is. 

Fræðsla

17. maí 2009

Kynningarfundir um dómgæslu og knattspyrnulögin

Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ verður leyfisumsækjandi að sýna fram á fulltrúar hans hafi sótt fundi eða kynningu um dómgæslu og knattspyrnulögin á vegum KSÍ á undangengnu ári.  Fyrr í þessum mánuði stóð KSÍ fyrir slíkum fundum.  Sá fyrri fór fram í Reykjavík 6. maí og sá síðari á Akureyri 10. maí.

Leyfiskerfi

15. maí 2009

Úrskurður í máli Kötlu gegn mótanefnd KSÍ

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Ungmennafélagsins Kötlu gegn mótanefnd KSÍ.  Kæran var vegna ákvörðun mótanefndar að veita KFK sæti í C riðli 3. deildar karla.

Agamál
Lög og reglugerðir

13. maí 2009

Þjálfari hjá HK í tímabundið bann

Á fundi aganefndar í dag, 12. maí 2009, var Guðmundur Sigurbjörnsson, HK,  úrskurðaður í tímabundið leikbann til 10. júní vegna atviks í leik Breiðabliks og HK í 3. flokki kvenna 26. apríl 2009. 

Agamál
Lög og reglugerðir

13. maí 2009

Finnland færist nær!

Miðasala á keppnina er nú í gangi og fær KSÍ úthlutað ákveðnum fjölda miða á hvern leik íslenska liðsins, fyrst á leikina þrjá í riðlakeppninni og síðan í útsláttarkeppnina í framhaldi af því ef liðið kemst upp úr riðlinum. Miðaverð á hvern leik er 20 evrur.

Landslið

12. maí 2009

Störf í boði hjá KSÍ

KSÍ auglýsir eftir þremur starfsmönnum í tímabundin störf en um er að ræða átaksverkefni sem einungis er ætlað þeim sem eiga bótarétt. Um er að ræða störf við skráningu leikskýrslna og starf við yfirumsjón með átaksverkefni í knattþrautum yngri kynslóðarinnar.

Fræðsla

12. maí 2009

Vel heppnuð heimsókn til Noregs

Í vikunni fóru 11 einstaklingar frá KSÍ í heimsókn til norska knattspyrnusambandsins til að kynna sér stöðu mála í menntun þjálfara í Noregi. Ferðin var á vegum UEFA og þótti heppnast vel í alla staði.

Fræðsla

12. maí 2009

Mótherjarnir klárir fyrir úrslitakeppni EM U19 kvenna

Í kvöld var dregið í riðla í úrslitakeppni U19 kvenna en keppnin fer fram í Hvíta Rússlandi dagana 13. - 25. júlí.  Dregið var í Minsk og lenti íslenska liðið í riðli með Englandi, Noregi og Svíþjóð.

Landslið

12. maí 2009

Dregið í úrslitakeppni EM U19 kvenna í kvöld

Í kvöld verður dregið í úrslitakeppni EM U19 kvenna en Ísland er ein af átta þjóðum sem á sæti þar.  Dregið verður í Minsk en úrslitakeppnin fer fram í Hvíta Rússlandi dagana 13. - 25. júlí.

Landslið

11. maí 2009

Ólöglegir leikmenn hjá ÍR í Lengjubikarnum

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Liliana Ramos og Sandra Björk Halldórsdóttir léku ólöglegar með ÍR í leik gegn GRV sem fram fór í B deild Lengjubikars kvenna.

Agamál
Lög og reglugerðir

11. maí 2009

Ólöglegur leikmaður hjá BÍ/Bolungarvík gegn Reyni

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Kristján Fannar Ragnarsson lék ólöglegur með BÍ/Bolungarvík í leik gegn Reyni Sandgerði

Agamál
Lög og reglugerðir

11. maí 2009

Vel heppnaðri ráðstefnu UEFA lokið

Á föstudaginn lauk ráðstefnu UEFA í viðburðastjórnun en hún var haldin í samvinnu við KSÍ hér á landi.  Ráðstefnan fór fram á Hilton Nordica hótelinu sem og á Laugardalsvelli. 

Fræðsla

11. maí 2009

Sigurður Ragnar fylgist með leikmönnum í Svíþjóð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, er í Svíþjóð en þar er hann að fylgjast með íslenskum leikmönnum.  Sigurður Ragnar fylgist með tveimur leikjum í þessari ferð en íslenskir leikmenn verða væntanlega fyrirferðamiklir í þessum leikjum.

Landslið

11. maí 2009

Fáni Heimsgöngunnar borinn inn á undan liðunum

Í öllum leikjum Pepsi-deildarinnar sem eru í beinni útsendingu sjónvarps er fáni Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis borinn inn á undan liðunum, ásamt fána Pepsi-deildarinnar og Mastercard - Leikur án fordóma.

Fræðsla

9. maí 2009

Dómarar í Henson búningum

Knattspyrnusamband Íslands og Henson hafa gert með sér samning um að dómarar muni klæðast Henson búningum í ár.  Hönnun búningana var í höndum KSÍ og Henson í samstarfi við íslenska dómara.

Dómaramál

9. maí 2009

Velkomin til leiks

Enn á ný fögnum við sumri og því í dag fer knattspyrnan í gang á völlum landsins. Tuttugu þúsund keppendur innan vébanda KSÍ ganga til leiks auk þúsunda annarra sem taka þátt í knattspyrnuleikjum án þess að vera skráðir þátttakendur í knattspyrnuhreyfingunni.

Pistlar

8. maí 2009

Samstarf KSÍ og Háskólans í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík (HR) íþróttafræðisvið og Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ)  hafa gert með sér samkomulag á sviði menntunar dómara, rannsókna og starfsnáms nema í íþróttafræðum við HR.

Fræðsla