7. maí 2009
Fræðsludeild KSÍ hefur tekið saman upplýsingar um þá þjálfaramenntun sem þjálfarar í Pepsi-deild kvenna og 1. deild kvenna hafa yfir að ráða í upphafi keppnistímabilsins.
7. maí 2009
Í dag hefst ráðstefna á vegum UEFA í samstarfi við KSÍ og fer hún fram á Nordica Hilton hótelinu og á Laugardalsvelli. Viðfangsefnið er viðburðastjórnun og eru rúmlega 90 gestir sem sitja ráðstefnuna
6. maí 2009
Nú á dögunum útskrifaðist Atli Eðvaldsson úr Pro Licence námi hjá þýska knattspyrnusambandinu og er því þriðji Íslendingurinn sem er handhafi UEFA Pro Licence skírteinis. Hinir eru Teitur Þórðarson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
6. maí 2009
Annríki verður hjá íslenskum dómurum á erlendri grundu á næstunni en Kristinn Jakobsson mun dæma leik Kazakhstan og Englands í undankeppni fyrir HM 2010.  Þá mun Magnús Þórisson dæma vináttulandsleik Wales og Eistlands í Wales, 29. maí
5. maí 2009
Félögum og sveitarfélögum stendur til boða að fá gúmmí á sparkvelli KSÍ sér að endurgjaldslausu. Viðkomandi aðilar myndu einungis þurfa að standa straum af sendingarkostnaði.
4. maí 2009
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 30. apríl breytingar á reglugerð KSÍ á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál. Er um að ræða breytingu á ákvæði um viðurlög við brot skv. tilkynningu framkvæmdastjóra sbr. 18.grein í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál.
4. maí 2009
Þriðji fundurinn í fræðslufundaröð KSÍ verður haldinn fimmtudaginn 7. maí. Viðfangsefnið eru knattspyrnulögin, áherslur dómara og dómaranefndar, verkefni dómara, framkoma á leikvelli o.fl.
4. maí 2009
Þriðja fundi í fræðslufundaröð KSÍ er átti að fara fram í dag, mánudaginn 4. maí, hefur verið frestað. Ný dagsetning fundarins verður tilkynnt síðar.
1. maí 2009
Ný reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga er tekin gildi og leysir hún af hólmi reglugerð KSÍ um knattspyrnuvelli frá 1. maí 2009.
30. apríl 2009
Í gær komu heim, eftir langt og strangt ferðalag, sigurreifur hópur. Þarna voru á ferðinni hópurinn sem tryggði Íslandi sæti í úrslitakeppni EM hjá U19 kvenna. Leikmenn, þjálfarar og aðrir í hópnum voru himinlifandi með árangur ferðarinnar.
30. apríl 2009
Vert er að minna á ákvæði um samningsskyldu leikmanna í Pepsi-deild karla eins og fram kemur í grein 23.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Ákvæði þetta verður virkt þann 1. maí 2009.
29. apríl 2009
Dregið verður í úrslitakeppni EM hjá U19 kvenna þann 12. maí næstkomandi og verður dregið í Minsk en úrslitakeppnin fer fram í Hvíta Rússlandi. Ljóst er hvaða þjóðir leika í úrslitakeppninni.
29. apríl 2009
Stelpurnar í 19 ára landsliðinu fylgdu eftir góðum árangri A-liðsins og sigruðu erfiðan milliriðill sinn í Evrópumóti 19 ára landsliða. Þær eru nú einnig komnar í úrslitakeppni Evrópumótsins
29. apríl 2009
Nú má finna hér á heimasíðunni upptöku frá öðrum fræðslufundi KSÍ. Þar fluttu erindi þeir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ og Björn Ingi Victorsson, endurskoðandi KSÍ.
28. apríl 2009
Stelpurnar í U19 kvenna gerðu sér lítið fyrir í dag og tryggðu sér sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer í Hvíta Rússlandi í júlí. Ísland gerði jafntefli við Pólland í lokaumferðinni á meðan Svíar unnu Dani með einu marki gegn engu. Leikur Íslands og Póllands var gríðarlega spennandi og sveiflukenndur.
28. apríl 2009
Í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma eigast við Pólland og Ísland í milliriðli fyrir EM hjá U19 kvenna. Með sigri tryggir íslenska liðið sér sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram í Hvíta Rússlandi í júlí.
28. apríl 2009
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að í leikjum 3. deildar karla og 1. deildar kvenna skipi KSÍ dómara og aðstoðadómara til leiks í stað eldra fyrirkomulags þar sem heimalið sá um að leggja til aðstoðardómara.
28. apríl 2009
Dagana 4.-7. maí fer hópur kennara af þjálfaranámskeiðum KSÍ í heimsókn til norska knattspyrnusambandsins í þeim tilgangi að kynna sér fyrirkomulag Norðmanna í menntun þjálfara.