27. apríl 2009
Á fundi aganefndar, 24. apríl 2009, var Afrim Haxholli, Afríku, úrskurðaður í tímabundið leikbann til 2 mánaða vegna atviks í leik Afríku og Árborgar í meistaraflokki. karla 18. apríl. 
27. apríl 2009
Á morgun leikur íslenska U19 kvennalandsliðið lokaleik sinn í milliriðli fyrir EM en leikið er í Póllandi. Íslenska liðið er efst í riðlinum en efsta liðið fer beint í úrslitakeppnina sem leikin verður í Hvíta Rússlandi.
27. apríl 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Stjörnunni verður haldið í Stjörnuheimilinu 30. apríl kl. 19:30. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
27. apríl 2009
Í dag hófst miðasala á leik Íslands og Hollands í undankeppni HM 2010. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 6. júní og hefst kl. 18:45. Miðasala fer fram sem fyrr í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
27. apríl 2009
Vakin er athygli á því að 3. fundurinn í fræðslufundaröð KSÍ sem fyrirhugaður var fimmtudaginn 30. apríl hefur verið færður til mánudagsins 4. maí kl. 16:00 - 18:00. Á fundinum verður m.a. farið yfir samninga- og félagaskiptamál og reglugerðir KSÍ.
27. apríl 2009
Það hefur ekki farið framhjá forsvarsmönnum knattspyrnudeilda og knattspyrnuþjálfurum að KSÍ hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á menntun þjálfara.
25. apríl 2009
Ísland og Holland gerðu jafntefli í vináttulandsleik sem fram fór í Kórnum í dag. Lokatölur urðu 1 - 1 og það var Ólína G. Viðarsdóttir sem kom íslenska liðinu yfir í fyrri hálfleik.
25. apríl 2009
Stelpurnar í U19 kvenna náðu í gott stig í milliriðli fyrir EM en leikið er í Póllandi. Svíar voru mótherjarnir í dag og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Úrslitin þýða að Íslendingar eru með fjögur stig eftir tvo leiki
25. apríl 2009
Í dag leikur íslenska U19 ára stúlknalandsliðið annan leik sinn í milliriðli EM 2009 en leikið er í Póllandi. Íslenska liðið lagði Dani að velli 3-2 í fyrsta leik en í dag mæta þær Svíum og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma.
24. apríl 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Hollandi í vináttulandsleik í Kórnum kl. 16:00. Erna Björk Sigurðardóttir mun leika sinn 25. landsleik í þessum leik.
24. apríl 2009
Vináttulandsleikur Íslands og Hollands fer fram í Kórnum, laugardaginn 25. apríl kl. 16:00. Miðasala hefst í Kórnum kl. 14:00 og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.
24. apríl 2009
Dagana 25. apríl til 3. maí verður knattspyrnuvika Special Olympics haldin, sem hefur það að markmiði að styðja við og auka knattspyrnuiðkun þroskaheftra, og er þetta í 9. sinn sem þessi knattspyrnuvika er haldin.
24. apríl 2009
Þeir handhafar A passa sem ætla á vináttulandsleik Íslands og Hollands á laugardaginn í Kórnum er bent á að þeir geta sýnt passann við innganginn. Leikurinn hefst kl. 16:00 en miðasala hefst kl. 14:00.
23. apríl 2009
Stelpurnar í U19 kvenna byrjuðu milliriðilinn í EM frábærlega í dag þegar þær mættu stöllum sínum frá Danmörku. Íslensku stelpurnar fóru með sigur af hólmi með þremur mörkum gegn tveimur. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
23. apríl 2009
Stelpurnar í U19 kvennalandsliðinu eru staddar í Póllandi um þessar mundir og í dag hefja þær leik í milliriðli fyrir EM. Mótherjarnir eru Danir en ásamt heimastúlkum eru Svíar einnig í riðlinum. Leikur Íslands og Danmerkur hefst kl. 10:00.
22. apríl 2009
Landsliðsþjálfari Hollands, Vera Pauw, hefur valið 20 leikmenn sem munu mæta Íslendingum í vináttulandsleik í Kórnum næstkomandi laugardag kl. 16:00. Flestir leikmennirnir koma frá Hollandsmeisturum AZ eða fimm talsins.
22. apríl 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum er mætir Hollandi í vináttulandsleik á laugardaginn. Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir úr Stjörnunni kemur inn í hópinn í stað Guðbjargar Gunnarsdóttur
21. apríl 2009
Vegna dræmrar skráningar hefur verið ákveðið að fresta fyrirhugðu KSÍ V þjálfaranámskeiði sem átti vera um næstu helgi (24.-26. apríl). Ákvörðun um nýja dagsetningu námskeiðsins verður tekin næsta haust.