Search
SÍA

14. apríl 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Gróttu

Unglingadómaranámskeið hjá Gróttu verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Seltjarnarnesi 20. apríl kl. 20:00.  Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 manna bolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

14. apríl 2009

U19 hópur kvenna valinn fyrir milliriðilinn

Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir milliriðil EM sem fram fer í Póllandi dagana 23. - 28. apríl.  Átján leikmenn eru í hópnum, sem fer til Póllands 21. apríl.

Landslið

14. apríl 2009

Héraðsdómaranámskeið á Akureyri 18. apríl

Laugardaginn 18. apríl verður haldið héraðsdómaranámskeið á Akureyri. Aðaláherslan verður lögð á hagnýta dómgæslu, svo sem staðsetningar, samvinnu, bendingar og fleira.

Fræðsla

8. apríl 2009

Gleðilega páska - Páskakveðja frá KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands sendir öllum landsmönnum sínar bestu óskir um gleðilega páska.  Vonum að vel fari um alla yfir hátíðirnar hvort sem er í starfi eða leik.

Fréttir

8. apríl 2009

Ísland fellur um 18 sæti á styrkleikalista FIFA

Á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun, fellur karlalandslið Íslands niður um 18 sæti á listanum.  Ísland er nú í 93. sæti listans en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og eru ósigraðir í  31 landsleik í röð.

Landslið

7. apríl 2009

Lyfjaeftirlitsmál og misnotkun lyfja í íþróttum

Knattspyrnusamband Íslands tekur skýra afstöðu gegn allri misnotkun lyfja/efna og notkunar á bönnuðum aðferðum sem stuðla eiga að bættum árangri í íþróttum.  Hér á heimasíðunni má finna leiðbeiningar til knattspyrnufólks er varða lyfjamál.

Fræðsla

7. apríl 2009

Fyrsti fundurinn í fræðslufundaröð KSÍ 2009

Fyrsti fræðslufundurinn í fræðslufundaröð KSÍ 2009 verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl.  Umfjöllunarefnin eru þjónusta við fjölmiðla, öryggismál á leikvöngum, viðburðastjórnun og samstarfssamningar við fyrirtæki.

Fræðsla
Leyfiskerfi

7. apríl 2009

KSÍ V þjálfaranámskeið haldið 24. - 26. apríl

Helgina 24.-26. apríl mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt hafa þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í KSÍ B prófinu (UEFA B prófinu).

Fræðsla

7. apríl 2009

Sigurður Ragnar fylgist með leikmönnum í Svíþjóð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, verður á ferðinni í Svíþjóð nú um páskana.  Mun hann fylgjast með leik Kristianstads og Djurgården í efstu deild kvenna en sá leikur fer fram nú á mánudaginn.

Landslið

7. apríl 2009

U19 karla leikur vináttulandsleiki við Skota

Knattspyrnusambönd Íslands og Skotlands hafa komist að samkomulagi um að U19 karlalandsliðs þjóðanna mætist í tveimur vináttulandsleikjum.  Leikirnir munu fara fram dagana 7. og 9. september og verður leikið í Skotlandi.

Landslið

7. apríl 2009

Námskeið í þjálfun barna - Haldið á Akureyri

Sunnudaginn 19. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði sem haldið verður í Glerárskóla og Boganum á Akureyri.

Fræðsla

7. apríl 2009

Norðurlandamót U17 karla í Þrándheimi

Norðurlandamót U17 karla fer fram að þessu sinni í Þrándheimi í Noregi og hefst 28. júlí.  Ísland er í riðli með Finnum, Skotum og Svíum og verður fyrsti leikur íslenska liðsins gegn Skotum, þriðjudaginn 28. júlí.

Landslið

7. apríl 2009

Námskeið í þjálfun barna - Haldið í Kórnum

Laugardaginn 18. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði sem haldið verður í Kórnum í Kópavogi.

Fræðsla

3. apríl 2009

Leikið í Álaborg hjá U21 karla

Það hefur verið ákveðið að vináttulandsleikur Danmerkur og Íslands hjá U21 karla, fari fram í Álaborg á heimavelli AaB.  Leikurinn fer fram 5. júní og hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma.

Landslið

3. apríl 2009

Úrtaksæfingar hjá U19 kvenna um páskana

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið úrtakshóp til æfinga um páskana.  U19 kvenna leikur í milliriðli fyrir EM sem leikinn verður í Póllandi.  Þar er liðið í riðli með heimastúlkum, Dönum og Svíum.

Landslið

1. apríl 2009

Eins marks tap á Hampden Park

Skotar lögðu Íslendinga í kvöld í undankeppni fyrir HM 2010 en leikið var á Hampden Park.  Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir heimamenn eftir að staðan hafði verið 1 - 0 í hálfleik.  Indriði Sigurðsson skoraði mark Íslendinga þegar hann jafnaði metin á 54. mínútu.

Landslið

1. apríl 2009

Byrjunarliðið er mætir Skotum á Hampden Park

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Skotum kl. 19:00 á Hampden Park. Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2010 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 18:30.

Landslið

1. apríl 2009

15 sæti á lausu til Skotlands - Aprílgabb!

Á öryggisfundi á leikstað í gærkvöldi sem haldinn var fyrir leik Skotlands og Íslands í undankeppni HM 2010, kom í ljós að búningur íslenska liðsins uppfyllti ekki reglur FIFA um merkingar á búningum.

Landslið