1. apríl 2009
Í kvöld mætast Skotland og Ísland í undankeppni fyrir HM 2010. Leikurinn fer fram á Hampden Park í Glasgow og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport. Byrjunarlið Íslands verður tilkynnt hér á síðunni þegar það verður tilbúið
31. mars 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Fram verður haldið í Framheimilinu fimmtudaginn 2. apríl kl. 18:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
31. mars 2009
Á milli æfinga og funda eru leikmenn í meðferð hjá starfsmönnum landsliðsins en með hópnum eru til taks læknir, sjúkraþjálfari og nuddari. Á myndinni sem fylgir má sjá Eggert Gunnþór Jónsson í meðferð hjá Stefáni Stefánssyni sjúkraþjálfara.
31. mars 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Njarðvík verður haldið í nýja vallarhúsinu 6. apríl kl. 18:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
31. mars 2009
Helgina 24.-26. apríl mun KSÍ halda 5. stigs þjálfaranámskeið. Þátttökurétt á það námskeið hafa aþjálfarar sem lokið hafa KSÍ I, KSÍ II, KSÍ III, KSÍ IV, skilað verkefni af KSÍ III og fengið það samþykkt og fengið að lágmarki 70 stig í skriflega KSÍ B prófinu.
31. mars 2009
Þjálfaraforritið Homeground 2 er nú komið til landsins og stendur þjálfurum hér á landi til boða. Forritið er á ensku og inniheldur nokkrar viðbætur frá því gamla. Homeground 2 forritið kostar 7.000 kr.
31. mars 2009
Undirbúningur íslenska hópsins fyrir leikinn gegn Skotum á morgun er í fullum gangi og var æft tvisvar sinnum í gær. Ein æfing verður í kvöld og fer hún fram á leikstaðnum sjálfum, Hampden Park.
31. mars 2009
Á fundi framkvæmdastjórnar UEFA á dögunum varð KSÍ formlega aðili að dómarasáttmála UEFA. Það voru þeir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ og Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ er undirrituðu sáttmálann
30. mars 2009
Strákarnir í íslenska landsliðinu eru nú í Glasgow þar sem þeir undirbúa sig fyrir landsleikinn við Skota á miðvikudaginn. Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2010 og verður leikinn á Hampden Park. Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
30. mars 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Selfossi verður haldið í íþróttahúsinu Iðu miðvikudaginn 1. apríl kl. 20:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.
27. mars 2009
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Þórhildur Ólafsdóttir lék ólögleg með ÍBV í leik gegn HK/Víkingi. sem fram fór í Lengjubikar kvenna, 21. mars síðastliðinn.
27. mars 2009
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Jóhann R. Pálsson lék ólöglegur með Völsungi í leik gegn Leikni F. sem fram fór í Lengjubikar karla, 24. mars síðastliðinn.
27. mars 2009
KSÍ stendur fyrir röð fræðslufunda í apríl sem m.a. eru ætlaðir fyrir framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur knattspyrnufélaga. Um er að ræða 4 fræðslufundi sem haldnir verða á tímabilinu 14. apríl til 7. maí.
27. mars 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Skotum á Hampden Park, miðvikudaginn 1. apríl næstkomandi. Ólafur hefur valið Davíð Þór Viðarsson úr FH í hópinn.
27. mars 2009
Þeir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og Egill Már Markússon verða eftirlitsmenn á vegum FIFA og UEFA á landsleikjum sem fara fram næstunni.  Leikirnir fara fram í Lúxemborg og Skotlandi.
27. mars 2009
Íslenska kvennalandsliðið situr nú í átjánda sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Ísland fer upp um eitt sæti frá síðasta lista en Bandaríkin eru á toppnum sem fyrr.
26. mars 2009
ÍSÍ boðar til fræðslukvölds í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl. 17.00 - 21.00 í dag, fimmtudaginn 26. mars. Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari mun fjalla um fjölmarga athyglisverða þætti er varða íþróttameiðsl.
26. mars 2009
Í dag, miðvikudaginn 26. mars, er Knattspyrnusamband Íslands 62 ára. Fjórtán félög og íþróttabandalög stofnuðu KSÍ 26. mars 1947 og var Agnar Klemens Jónsson fyrsti formaður KSÍ.