Search
SÍA

5. mars 2009

Byrjunarlið Íslands gegn Bandaríkjunum á Algarve

Ísland leikur sinn annan leik á Algarve mótinu þegar það mætir Bandaríkjunum og hefst leikurinn kl. 15:00.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og gerir hann eina breytingu frá leiknum gegn Noregi.

Landslið

5. mars 2009

Gestkvæmt á æfingum kvennalandsliðsins

Íslenska kvennalandsliðið undirbýr sig fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum sem fer fram á morgun kl. 15:00.  Liðið æfir tvisvar í dag og var gestkvæmt á æfingunni í morgun þar sem 5 sænskir þjálfarar fylgdust með æfingu liðsins.

Landslið

4. mars 2009

Fáklæddar kempur í fótbolta

Á dögunum fór fram knattspyrnuleikur innanhúss í Vodafonehöllinni sem Krabbameinsfélag Íslands stóð fyrir.  Þarna mættust valinkunnar knattspyrnuhetjur sem að mestu hafa lagt skóna á hilluna og yngri landsliðsmenn. 

Fræðsla

4. mars 2009

Frábær byrjun á Algarve

Íslenska kvennalandsliðið byrjaði þátttöku sína í B riðli Algarve Cup 2009 með frábærum hætti þegar sigur vannst á Noregi með þremur mörkum gegn einu.  Eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi, 1-1, tók íslenska liðið öll völd á vellinum og bar  verðskuldaðan sigur úr býtum.

Landslið

4. mars 2009

Æfingar hjá strákunum í U17 og U19 karla

Landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, hafa valið æfingahópa fyrir landslið U17 og U19 karla.  Framundan eru æfingar um komandi helgi.

Landslið

3. mars 2009

Byrjunarliðið er mætir Norðmönnum

Á morgun, miðvikudag, kl. 15:00 leikur íslenska kvennalandsliðið sinn fyrsta leik á Algarve Cup 2009.  Mótherjarnir eru hið sterka lið Noregs og hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, kynnt byrjunarlið sitt í leiknum.

Landslið

3. mars 2009

Héraðsdómaranámskeið 12. mars í höfuðstöðvum KSÍ

Fimmtudaginn 12. mars kl. 19:00 verður haldið héraðsdómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ.  Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 16 ára aldri og eru með unglingadómarapróf.

Fræðsla

3. mars 2009

Fyrsta æfingin á Algarve

Íslenska kvennalandsliðið er nú statt í Algarve í Portúgal þar sem liðið tekur þátt í Algarve Cup 2009.  Fyrsti leikur íslenska liðsins er við Noreg á morgun kl. 15:00 en liðið var á sinni fyrstu æfingu í morgun.

Landslið

3. mars 2009

Undirbúningsfundur leyfisráðs og leyfisdóms

Á mánudag var haldinn árlegur undirbúningsfundur leyfisstjórnar með leyfisráði og leyfisdómi.  Þessi fundur er jafnan haldinn áður en leyfisumsóknir félaga eru teknar fyrir og er hluti af gæðastaðal UEFA fyrir leyfisveitendur.

Leyfiskerfi

27. febrúar 2009

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar KSÍ

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var í gær, var m.a. skipað í embætti innan stjórnar sem og skipað í fastanefndir KSÍ.  Þeir Gylfi Orrason og Róbert Agnarsson koma nýir inn í stjórn KSÍ.

Ársþing

27. febrúar 2009

Sigurður Ragnar og María í Grafarholtinu

Þau Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna og María B. Ágústsdóttir landsliðsmarkvörður heimsóttu skóla í Grafarholtinu í dag.  Vel var tekið á móti þeim, bæði í Sæmundarskóla og Ingunnarskóla

Fræðsla

27. febrúar 2009

Breytingar á reglugerðum um deildarbikar karla og kvenna

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar breytingu á reglugerðum um deildarbikar karla og kvenna. Breytingin er gerð til samræmis við breytingu sem þegar hefur verið gerð á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót

Lög og reglugerðir

25. febrúar 2009

Skráning hafin í KSÍ B prófið

Laugardaginn 14. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).

Fræðsla

25. febrúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá ÍA

Unglingadómaranámskeið hjá ÍA verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Akranesi miðvikudaginn 4 .mars  kl. 17:00.  Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.

Fræðsla

25. febrúar 2009

Hópurinn valinn fyrir Algarve Cup 2009

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er heldur til Algarve næstkomandi mánudag og leikur þar á Algarve Cup.  Ísland er í riðli með Noregi, Bandaríkjunum og Danmörku.

Landslið

25. febrúar 2009

22 leikmenn í úrtaksæfingar hjá U17 karla

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 22 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og í Kórnum.  Leikmennirnir koma frá 16 félögum.

Landslið

24. febrúar 2009

Kristinn dæmir í Belgíu

Kristinn Jakobsson mun á fimmtudaginn dæma síðari leik Standard Liege og Braga í 32. liða úrslitum UEFA bikarsins.  Kristni til aðstoðar verða Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson og fjórði dómari Magnús Þórisson.

Dómaramál

24. febrúar 2009

Þinggerð 63. ársþings KSÍ

Hér að neðan má sjá þinggerð 63. ársþings Knattspyrnusambands Íslands, sem haldið var í höfuðstöðvum KSÍ 14. febrúar síðastliðinn.

Ársþing