Search
SÍA

11. mars 2009

Ísland - Kína - Textalýsing

Núna kl. 11:30 hófst leikur Íslands og Kína en leikið er um 5. sætið á Algarvemótinu.  Fylgst verður með leiknum hér á síðunni en þetta er síðasti leikur Íslands á þessu móti.

Landslið

11. mars 2009

Finnskir dómarar í eldlínunni

Dómarar í leik Íslands og Kína sem hefst núna klukkan 11:30 eru frændur okkar Finnar.  Dómarinn er góðkunningji okkar Íslendinga og heitir Kirsi Savolainen.  Hún dæmdi einmitt úrslitaleik Þýskalands og Frakklands í úrslitakeppni EM U19 kvenna.

Dómaramál
Landslið

11. mars 2009

Ísland upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA

Í dag var birtur nýr styrkleikalisti FIFA hjá karlalandsliðum og fer íslenska liðið upp um tvö sæti og er nú í 75. sæti listans.  Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.

Landslið

10. mars 2009

16 félögum veitt þátttökuleyfi

Fyrsti fundur leyfisráðs fór fram í dag, þriðjudag, og voru teknar fyrir umsóknir 24 félaga um þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2009.  Gefin voru út þátttökuleyfi til handa 16 félögum, en 8 félögum var gefinn vikufrestur til að klára sín mál.

Leyfiskerfi

10. mars 2009

Byrjunarliðið gegn Kína - Leikurinn hefst kl. 11:30

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, leika Ísland og Kína um 5. sætið á Algarve Cup og hefst leikurinn kl. 11:30.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið fyrir leikinn.  Heimasíðan verður með textalýsingu frá leiknum.

Landslið

10. mars 2009

Leikið við Kína kl. 11:30

Ísland mætir Kína í leik um 5. sætið á Algarve mótinu en leikurinn hefst kl. 11:30 á morgun.  Leikið er um öll sæti á mótinu en úrslitaleikurinn á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna hefst kl. 16:00.

Landslið

9. mars 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Grindavík

Unglingadómaranámskeið hjá Grindavík verður haldið í gula húsinu við íþróttavöllinn mánudaginn 16. mars  kl. 17:00.  Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.

Fræðsla

9. mars 2009

Danskur sigur á Algarve

Danir lögðu Íslendinga í lokaumferðinni í riðlakeppni Algarve Cup í dag með tveimur mörkum gegn engu.  Danir höfðu eins marks forystu eftir fyrri hálfleikinn og þrátt fyrir að íslenska liðið hefði sótt meira í síðari hálfleik, bættu Danir við marki. Íslendingar mæta því Kínverjum í leik um 5. sæti mótsins.

Landslið

9. mars 2009

Ísland - Danmörk - Textalýsing

Núna kl. 15:00 hófst leikur Íslands og Danmörku í lokaumferð riðlakeppni á Algarve Cup.  Með jafntefli eða sigri tryggir Ísland sér annað sætið í riðlinum og þar með leik um 3. sætið á mótinu.  Fylgst verður með leiknum hér að neðan.

Landslið

9. mars 2009

Æfingar hjá U16 og U17 karla á Austurlandi

Um komandi helgi verða æfingar fyrir úrtakshópa hjá U16 og U17 karla á Austurlandi.  Það verða þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, er stjórna æfingunum.

Landslið

9. mars 2009

Dómararnir koma langt að

Fjörtíu dómarar eru að störfum á Algarve og koma þeir frá 27 þjóðlöndum.  Dómarar leiksins í dag koma langt að en dómari leiksins og annar aðstoðardómarinn koma frá Guyana á meðan hinn aðstoðardómarinn kemur frá Guatemala.

Landslið

8. mars 2009

Byrjunarliðið gegn Dönum á Algarve

Íslenska kvennalandsliðið mætir því danska á morgun, mánudaginn 9. mars og hefst leikurinn kl. 15:00.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Dönum en með jafntefli tryggir íslenska liðið sér 2. sæti riðilsins og þar með leik um þriðja sæti mótsins.

Landslið

7. mars 2009

Undirbúningur fyrir Danaleikinn hafinn

Í morgun æfði kvennalandsliðið á Algarve en þar með hófst undirbúningur fyrir leikinn gegn Danmörku sem fer fram kl. 15:00 á mánudaginn.  Allir leikmenn hópsins, fyrir utan Söru Björk Gunnarsdóttur, tóku þátt í æfingunni.

Landslið

6. mars 2009

Sigurmark Bandaríkjanna á síðustu stundu

Íslenska kvennalandsliðið tapaði ákaflega naumlega gegn því bandaríska á Algarve Cup í dag.  Lokatölur urðu 0-1 og kom sigurmark þeirra bandarísku á 89. mínútu.  Gríðarleg barátta var allan leikinn og fast leikið.

Landslið

6. mars 2009

Ísland - Bandaríkin - Bein textalýsing

Nú kl. 15:00 hófst leikur Íslands og Bandaríkjanna á Algarve Cup 2009.  Við fylgjumst með helstu atriðum leiksins hér á síðunni og flytjum ykkur jafnóðum.  Íslendingar leika svo lokaleik sinn í riðlinum á mánudaginn þegar Danir verða mótherjinn.

Landslið

6. mars 2009

Dómarar leiksins koma frá Þýskalandi

Ísland mætir Bandaríkjunum í dag á Algarve Cup kl. 15:00 og verður fylgst með leiknum hér á síðunni.  Dómarar leiksins koma frá Þýskalandi og er það Bibiana Steinhaus sem dæmir leikinn.

Dómaramál
Landslið

6. mars 2009

Fanndís kemur inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur kallað Fanndísi Friðriksdóttur inn í landsliðshópinn er leikur á Algarve.  Fanndís mun halda til Algarve á morgun, laugardag, og hitta hópinn síðar sama dag.

Landslið

6. mars 2009

Sameinumst gegn fordómum

Dagana 3. og 4. mars sl. átti ég þess kost að sækja 3. ráðstefnu Evrópska knattspyrnusambandsins og fleiri aðila um kynþáttafordóma, Unite Against Racism, sem haldin var í Varsjá í Póllandi. Var ráðstefnan ákaflega fróðleg en þó við hér á Íslandi teljum okkur ágætlega sett varðandi fordóma af ýmsu tagi þá megum við ekki sofna á verðinum.

Pistlar