17. mars 2009
George Burley, landsliðsþjálfari Skotlands, hefur valið 26 leikmenn í hóp sinn fyrir leiki gegn Hollandi 28. mars og Íslandi, miðvikudaginn 1. apríl. Skotar leika gegn Hollendingum í Amsterdam en leikurinn við Ísland verður á Hampden Park.
17. mars 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið úrtakshóp fyrir æfingar um næstu helgi og hefur valið 21 leikmann til þessara æfinga. Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum.
17. mars 2009
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna hefur valið úrtakshópa fyrir æfingar um komandi helgi. Æfingarnar fara fram á Stjörnuvelli og í Egilshöll og hafa 38 leikmenn verið boðaðir í þessum tveimur úrtakshópum.
17. mars 2009
Sex nýliðar eru í færeyska landsliðshópnum er mætir Íslendingum í vináttulandsleik í Kórnum, næstkomandi sunnudag kl. 14:00. Þrír leikmenn hópsins hafa leikið meira en 10 landsleiki.
17. mars 2009
Íslenska kvennalandsliðið dróst í sex liða riðil í undankeppni fyrir HM kvenna 2011 en úrslitakeppnin fer fram í Þýskalandi. Íslenska liðið mætir Frökkum enn einu sinni en þjóðirnar spiluðu saman í undankeppni fyrir EM 2009. Þjóðirnar eru svo einnig saman í riðli í úrslitakeppni EM í sumar. Leikdagar Íslands í keppninni hafa verið ákveðnir.</
17. mars 2009
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyjar afhenta fimmtudaginn 19. mars frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
17. mars 2009
Leyfisráð fundar í dag og er þetta annar fundur ráðsins í leyfisferlinu fyrir komandi keppnistímabil. Á fyrri fundi ráðsins voru þátttökuleyfi gefin út til 16 félaga en 8 félögum var gefinn vikufrestur til að klára útistandandi mál.
17. mars 2009
KSÍ mun taka virkan þátt í verkefninu "Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis". Markmið Heimsgöngunnar er að skapa vitundarvakningu sem hafnar öllu ofbeldi hvernig sem það birtist.
17. mars 2009
Í dag kl. 12:30 verður dregið í undankeppni UEFA fyrir HM kvenna 2011 sem fer fram í Þýskalandi. Dregið verður í höfuðstöðvum UEFA í Sviss og verða þau Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, og Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, viðstödd dráttinn.
16. mars 2009
Ísland og Færeyjar mætast í vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 22. mars kl. 14:00. Miðaverði á leikinn er stillt í hóf, 1000 krónur kostar fyrir 17 ára og eldri en frítt er fyrir börn 16 ára og yngri.
16. mars 2009
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands hefur opnað nýja og endurbætta heimasíðu félagsins. Þar má nálgast ýmsar fréttir og fróðleik um knattspyrnuþjálfun á Íslandi og erlendis.
16. mars 2009
Í kvöld verður sett 8. grasrótarráðstefna UEFA og fer hún fram að þessu sinni í Hamborg í Þýskalandi. Á þessa ráðstefnu mæta fulltrúar allra þeirra knattspyrnusambanda sem aðilar eru að grasrótarsáttmála UEFA.
16. mars 2009
Síðastliðinn sunnudag fóru fram úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla og var æft tvisvar í Fjarðabyggðahöllinni. Það voru landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, sem stjórnuðu æfingunum.
13. mars 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn er mætir Færeyingum í vináttulandsleik í Kórnum þann 22. mars næstkomandi kl. 14:00. Hópurinn er ungur að árum og hefur leikreyndasti leikmaðurinn leikið 11 A landsleiki.
12. mars 2009
Að fengnu samþykki formanns leyfisráðs hefur leyfisstjóri leiðrétt leyfisveitingar Fjölnis og Keflavíkur vegna þátttökuleyfis í efstu deild karla 2009.
12. mars 2009
Á dögunum fóru starfsmenn mótadeildar KSÍ á Laugarvatn og fræddu þar nemendur Menntaskólans á Laugarvatni um töfra innanhússknattspyrnu - Futsal. Tæplega 30 nemendur mættu og kynntu sér hinar einföldu reglur innanhúsknattspyrnunnar.
11. mars 2009
Unglingadómaranámskeið hjá KR verður haldið í KR heimilinu Frostaskjóli miðvikudaginn 18 .mars kl. 17:00. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.
11. mars 2009
Íslenska kvennalandslið hafnaði í 6. sæti á Algarvemótinu en Ísland lék lokaleik sinn á mótinu gegn Kína í dag. Kínversku konurnar fór með sigur af hólmi með tveimur mörkum gegn einu. Það var Harpa Þorsteinsdóttir sem skoraði mark Íslands.