11. febrúar 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Liechtenstein í vináttulandsleik í dag. Leikurinn fer fram á La Manga á Spáni og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma. Fylgst er með leiknum hér á heimasíðunni.
11. febrúar 2009
Laugardaginn 14. febrúar næstkomandi fer fram 63. ársþing KSÍ í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Alls hafa 132 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 107 fulltrúa.
10. febrúar 2009
Knattspyrnusambönd Íslands og Georgíu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 9. september næstkomandi.
10. febrúar 2009
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, mætast Ísland og Liechtenstein í vináttulandsleik og verður leikið á La Manga. Hópurinn mun æfa tvisvar sinnum í dag en fyrsta æfingin fór fram í gær.
9. febrúar 2009
Íslenska karlalandsliðið mætir Liechtenstein í vináttulandsleik á La Manga og fer leikurinn fram á miðvikudaginn. Allur hópurinn er nú kominn á staðinn og var fyrsta æfing liðsins í dag.
9. febrúar 2009
Í dag hófst miðasala á landsleik Skotland og Íslands í undankeppni fyrir HM 2010. Leikurinn fer fram á hinum glæsilega Hampden Park í Glasgow, miðvikudaginn 1. apríl næstkomandi. Miðaverð á leikinn er 4.500 krónur.
9. febrúar 2009
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið leikmenn til æfinga um komandi helgi. Kristinn velur tvo hóp til æfinga og er annar hópurinn skipaður leikmönnum fæddum 1991 en hinn hópinn skipa leikmenn fæddir 1992.
8. febrúar 2009
Loksins náði A landslið þeim merka áfanga að vinna sér sæti í lokakeppni stórmóts í knattspyrnu. Það var ekki A landslið karla eins og svo marga hefur dreymt um heldur A landslið kvenna sem sló í gegn og vann sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Finnlandi í lok ágúst og byrjun september 2009.
6. febrúar 2009
Knattspyrnusamband Íslands birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2008. Þrátt fyrir mikið gengistap er staða KSÍ traust um áramót, lausafjárstaða betri en nokkru sinni fyrr, handbært fé tæpar 650 milljónir króna og eigið fé 184 milljónir króna.
6. febrúar 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á landsliðshóp sínum er mætir Liechtenstein á La Manga á miðvikudaginn. Þeir Sölvi Geir Ottesen og Garðar Jóhannsson koma inn í hópinn.
5. febrúar 2009
Laugardaginn 14. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).
5. febrúar 2009
Helgina 27. febrúar til 1. mars mun Knattspyrnusamband Íslands halda 4. stigs þjálfaranámskeið á Akureyri. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir sem lokið hafa KSÍ I, KSÍ II og KSÍ III þjálfaranámskeiðum og skilað fullnægjandi verkefni af KSÍ III.
5. febrúar 2009
Helgina 20.- 22. febrúar mun Knattspyrnusamband Íslands halda 3. stigs þjálfaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ. Dagskrá námskeiðsins verður gefin út síðar en skráning er í fullum gangi.
4. febrúar 2009
Umsóknarfrestur í Mannvirkjasjóð KSÍ er til 1. apríl en sjóðnum er ætlað að styðja við nýframkvæmdir knattspyrnumannvirkja til þess að skapa iðkendum, stjórnendum, áhorfendum og öðrum sem besta aðstöðu.
4. febrúar 2009
Í dag var dregið í riðla fyrir EM 2011 hjá U21 karla en úrslitakeppnin fer fram í Danmörku árið 2011. Íslands dróst í riðil með Þýskalandi, Tékklandi, Norður Írum og San Marino.
4. febrúar 2009
KSÍ hefur þegið boð sænska sambandsins um að taka þátt í 4 þjóða móti fyrir U18 landslið karla í Svíþjóð í júlí. Auk heimamanna og Íslendinga taka Norðmenn og Walesbúar þátt í mótinu. Leikdagar eru 14., 16. og 18. júlí.
3. febrúar 2009
Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að fá í hendur og birta þær lokaritgerðir sem nemendur á háskólastigi hafa gert á sviði knattspyrnu. Ritgerðirnar yrðu birtar á fræðsluvef KSÍ.
3. febrúar 2009
Á morgun, miðvikudaginn 4. febrúar, verður dregið í riðla í EM 2011 hjá U21 karla. Drátturinn fer fram í "Musikhuset" í Árósum en úrslitakeppnin fer fram í Danmörku 2011. Ísland er í fjórða styrkleikaflokki en dregið verður í 10 riðla.