3. febrúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Sindra verður haldið í Nýheimum laugardaginn 7. febrúar kl. 11:00. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
3. febrúar 2009
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir þeim framboðum sem tilkynnt voru til skrifstofu KSÍ hálfum mánuði fyrir þing.
3. febrúar 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið æfingahóp sem mun koma saman nú um helgina til æfinga. Það eru 26 leikmenn er skipa þennan hóp en hann skipa einungis leikmenn er leika hér á landi.
2. febrúar 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn er mætir Liechtenstein í vináttulandsleik á La Manga. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 11. febrúar og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.
2. febrúar 2009
Leyfisstjórn hefur nú lokið fyrri yfirferð leyfisgagna. Ýmsar athugasemdir hafa verið gerðar við gögnin eins og venja er og hefur félögunum verið gefinn frestur til 20. febrúar til að ganga frá lausum endum.
2. febrúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá HK verður haldið í Fagralundi miðvikudaginn 4. febrúar kl. 18:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
30. janúar 2009
Æfingahelgi U17 karlalandsliðsins sem átti að vera 14. og 15. febrúar hefur verið færð fram um eina helgi og verður dagana 7. og 8. febrúar. U19 karla mun æfa 14. og 15. febrúar eins og áður var ákveðið.
30. janúar 2009
Ársþing KSÍ, það 63. í röðinni, verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 14. febrúar næstkomandi. Hér að neðan má sjá þær tillögur er liggja fyrir þinginu sem og dagskrá þingsins sem sett verður kl. 11:00.</
30. janúar 2009
Á fundi framkvæmdarstjórnar UEFA í gær var samþykkt að KSÍ yrði aðili að dómarasáttmála UEFA. Sjö nýjar þjóðir voru samþykktar á þessum fundi og verður aðild KSÍ staðfest formlega með undirskrift síðar.
30. janúar 2009
Mánudaginn 2.febrúar nk. munu hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR. Æfingatímar verða eftirfarandi: mánudagar kl. 20:30 fyrir eldri hóp (13 ára og eldri) og laugardagar kl. 15:30 fyrir yngri hóp (12 ára og yngri).
29. janúar 2009
Enski dómarinn Mike Riley mun dæma vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer sunnudaginn 22. mars í Kórnum.  Aðstoðardómarar leiksins sem og fjórði dómari leiksins munu verða íslenskir.
28. janúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá KS verður haldið í efra skólahúsinu sunnudaginn 1.febrúar kl. 10:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
28. janúar 2009
Dregið hefur verið í riðla á Norðurlandamóti U17 kvenna en mótið fer fram í Värmaland í Svíþjóð dagana 29. júní til 4. júlí. Ísland er í riðli með Þýskalandi, Hollandi og Noregi.
26. janúar 2009
Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og verður æft í Kórnum og Egilshöllinni. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna og Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hafa valið hópa til þessara æfinga.
26. janúar 2009
Dagana 16. - 23. janúar stóð Knattspyrnusamband Íslands fyrir 6. stigs þjálfaranámskeiði í Lilleshall á Englandi. 30 þjálfarar sátu námskeiðið. Ferðin þótti heppnast ágætlega en þrír erlendir kennarar héldu fyrirlestur á námskeiðinu.
26. janúar 2009
Íslenska kvennalandsliðið leikur tvo vináttulandsleiki í júlí og má segja að þessir leikir verði lokahnykkurinn í undirbúningi fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi. Leikið verður við England16. júlí og Danmörku 19. júlí. Báðir leikirnir verða leiknir í Englandi.
26. janúar 2009
Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp til úrtaksæfinga hjá U16 karla. Leikmennirnir koma frá félögum á Norðurlandi en æfingarnar fara fram í Boganum.
26. janúar 2009
Þróttur Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir í að leggja sitt af mörkum til að efla yngri flokkana hjá félaginu og vinna skv. stefnu félagsins. Reynsla af þjálfarastörfum og þjálfaramenntun frá KSÍ skilyrði.