Search
SÍA

26. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Hvöt Blönduósi

Unglingadómaranámskeið hjá Hvöt verður haldið í Grunnskóla Blönduóss föstudaginn 30. janúar  kl. 17:00.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

22. janúar 2009

Breytingar á Alþjóðlegu lyfjareglunum

Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands hefur kynnt nýjar alþjóðlegar lyfjareglur sem tóku gildi um síðastu áramót.  KSÍ hvetur aðildarfélög sín til að halda vöku sinni í þessum málaflokki og minnir á ábyrgð þeirra að kynna þessi mál fyrir leikmönnum sínum.

Fræðsla

22. janúar 2009

Kvennalandsliðið á uefa.com

Á heimasíðu UEFA má finna viðtal við Sigurð Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfara, um árangur íslenska kvennalandsliðsins í ljósi þess að liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í Finnlandi í ágúst.

Landslið

21. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Þór Akureyri

Unglingadómaranámskeið hjá Þór verður haldið í Hamri þriðjudaginn 27. janúar  kl. 17:00.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

21. janúar 2009

Leikjaniðurröðun fyrir Algarve tilbúin

Leikjaniðurröðun hefur verið birt fyrir Algarve Cup 2009 en þar leikur íslenska kvennalandsliðið í B riðli.  Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Noregi, miðvikudaginn 4. mars.

Landslið

20. janúar 2009

Fylkir auglýsir eftir þjálfara fyrir 2. flokk karla

Knattspyrnudeild Fylkis auglýsir eftir þjálfara fyrir 2.flokk karla og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem allra fyrst.  Umsækjendur þurfa að hafa lokið KSÍ B þjálfaragráðu Knattspyrnusambands Íslands.

Fræðsla

20. janúar 2009

Leyfisgögn Eyjamanna komin í hús

Leyfisgögn ÍBV hafa nú skilað sér til leyfisstjórnar með póstinum og sýnir stimpillinn frá póstinum að gögnin hafi verið póstuð innan tímamarka, þ.e. fimmtudaginn 15. janúar.

Leyfiskerfi

19. janúar 2009

Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla framundan

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verður æft í Egilshöll og Kórnum.  Landslliðsþjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið úrtakshópa fyrir þessar æfingar.

Landslið

19. janúar 2009

Jafnréttisviðurkenning KSÍ

Á 62. ársþingi KSÍ þann 9. febrúar 2008 síðastliðinn var samþykkt jafnréttisáætlun KSÍ en samkvæmt áætluninni skal veita jafnréttisviðurkenningu KSÍ á næsta ársþingi KSÍ sem fram fer þann 14. febrúar næstkomandi.

Ársþing

16. janúar 2009

Kristinn og Sigurður Óli til Englands

Kristinn Jakobsson og Sigurður Óli Þorleifsson halda til Englands á morgun þar sem þeim hefur verið boðið að taka þátt í æfingum og fræðsluráðstefnu Úrvaldseildardómara í Englandi. 

Fræðsla

16. janúar 2009

Aukinn fjárhagslegur stuðningur við aðildarfélög í meistaraflokki

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í gær, 15. janúar, aukinn fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins.  Áætlað er að verðmæti þessara aðgerða séu tæplega 100 milljónir króna.

Leyfiskerfi

16. janúar 2009

Pósturinn kominn með leyfisgögn

Leyfisgögn Fjarðabyggðar og ÍA bárust með póstinum til KSÍ í morgun og staðfestir póststimpillinn á báðum sendingum að gögnin hafi verið póstuð fimmtudaginn 15. janúar, innan tímamarka leyfisferlisins.

Leyfiskerfi

16. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið á Reyðarfirði

Unglingadómaranámskeið verður haldið í Grunnskólanum á Reyðarfirði mánudaginn 19. janúar  kl. 19:15.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

16. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Keflavík

Unglingadómaranámskeið hjá Keflavík verður haldið í K-húsinu miðvikudaginn 21. janúar  kl. 18:00.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

15. janúar 2009

Skagamenn hafa póstað sín gögn

Samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar hafa Skagamenn póstað sín leyfisgögn og ættu þau því að berast leyfisstjórn á föstudag eða mánudag.  Gögnin sem félögin eru að skila núna snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum.

Leyfiskerfi

15. janúar 2009

Gögn Eyjamanna farin í póst

ÍBV hefur sett leyfisgögn sín í póst og ættu þau því að berast leyfisstjórn á föstudag eða mánudag.  Svo framarlega sem stimpill pósthússins í Eyjum sýnir sendingardaginn í dag, þá teljast Eyjamenn hafa skilað gögnunum innan tímamarka.

Leyfiskerfi

15. janúar 2009

Þróttarar níundu í röðinni

Reykjavíkur-Þróttarar eru níunda Landsbankadeildarfélagið til að skila fylgigögnum með umsókn um þátttökuleyfi í Landsbankadeildinni 2009.  Félögin tínast nú inn hvert af öðru eftir því sem líður á daginn.

Leyfiskerfi

15. janúar 2009

Tveir þriðju hlutar Landsbankadeildarfélaga komnir

Breiðablik hefur nú skilað sínum leyfisgögnum og hafa þá tveir þriðju hlutar Landsbankadeildarfélaga skilað, eða átta af tólf félögum.  Þau félög sem eiga eftir að skila eru Fram, Grindavík, ÍBV og Þróttur.

Leyfiskerfi