Search
SÍA

14. janúar 2009

HK hefur skilað leyfisgögnum

HK hefur nú skilað sínum leyfisgögnum, en um er að ræða fylgigögn með leyfisumsókn er varða aðra þætti en fjárhagslega.  Þau gögn sem skilað er nú varða m.a. uppeldi ungra leikmanna og mannvirkjaþætti.

Leyfiskerfi

14. janúar 2009

Bikarmeistarar KR búnir að skila

VISA-bikarmeistarar KR-inga hafa nú skilað fylgigögnum með leyfisumsókn, öðrum en fjárhagslegum, og eru þeir því fimmta Landsbankadeildarfélagið til að skila.  Fjárhagslegum gögnum á síðan að skila eigi síðar en 20. febrúar.

Leyfiskerfi

14. janúar 2009

Ísland upp um þrjú sæti á styrkleikalista FIFA

Á nýjum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið er birtur var í dag er íslenska landsliðið í 80. sæti og hefur farið upp um 3 sæti síðan listinn var síðast birtur.  Sem fyrr eru Spánverjar í efsta sæti listans en lítil hreyfing var á efst sætum listans að þessu sinni.

Landslið

14. janúar 2009

Skiladagur leyfisgagna er á fimmtudag

Fimmtudagurinn 15. janúar er stór skiladagur gagna í leyfiskerfinu, en þá skila leyfisumsækjendur þeim fylgigögnum með leyfisumsókn sem snúa að öðrum þáttum en fjárhagslegum.  Leyfiskerfið nær til félaga í efstu tveimur deildum karla. 

Leyfiskerfi

13. janúar 2009

Íslandsmeistararnir búnir að skila

Íslandsmeistarar FH urðu í dag fimmta félagið til að skila leyfisgögnum vegna leyfisumsóknar fyrir keppnistímabilið 2009.  Um er að ræða fylgigögn með leyfisumsókn og snúa þau að öllum þáttum öðrum en fjárhagslegum.

Leyfiskerfi

13. janúar 2009

Knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR

Á næstunni verður hleypt af stokkunum knattspyrnuæfingum fyrir fatlaða hjá KR og munu þeir kynna verkefnið á næstunni og æfingar hefjast í kjölfarið.  Markmiðið er að gefa fötluðum börnum og unglinum tækifæri að vera virkir þátttakendur hjá almennu knattspyrnufélagi.

Fræðsla

12. janúar 2009

Dagskrá KSÍ VI námskeiðsins tilbúin

Föstudaginn 16. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands KSÍ VI þjálfaranámskeið á Lilleshall á Englandi. Þetta verður í þriðja sinn sem KSÍ heldur slíkt námskeið á Englandi en fyrst var það haldið árið 2004.

Fræðsla

12. janúar 2009

Æfingahópar hjá U17 og U19 kvenna á ferðinni

Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið æfingahópa fyrir úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna sem fram fara um komandi helgi.

Landslið

12. janúar 2009

Þjálfararáðstefna í Englandi

Fullgildir meðlimir í KÞÍ eiga þess kost að slást í för með norska þjálfarafélaginu til Englands á þjálfararáðstefnu og fylgjast með  þjálfun og leikjum. Ferðin verður farin 23. febrúar og formlegri dagskrá lýkur 27. februar 2009.

Fræðsla

9. janúar 2009

Vináttulandsleikur við Færeyinga 22. mars

Knattspyrnusambandi Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 22. mars.

Landslið

9. janúar 2009

Landsliðsæfing hjá U17 kvenna í Boganum

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið leikmenn á landsliðsæfingu sem fram fer í Boganum miðvikudaginn 14. janúar næstkomandi.  Í hópinn eru valdir leikmenn frá félögum á Norðurlandi.

Landslið

9. janúar 2009

Mælt með umsóknum Willums og Þorvaldar á UEFA Pro Licence

Fjórir íslenskir þjálfarar sendu inn umsókn á UEFA Pro Licence námskeið á Englandi.  Ákvað fræðslunefnd KSÍ að mæla með umsóknum Willums Þórs Þórsssonar og Þorvaldar Örlygssonar.

Fræðsla

8. janúar 2009

KSÍ VI þjálfaranámskeið á Englandi

Föstudaginn 16. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands KSÍ VI þjálfaranámskeið á Lilleshall á Englandi. Þetta verður í þriðja sinn sem KSÍ heldur slíkt námskeið á Englandi en fyrst var það haldið árið 2004.

Fræðsla

7. janúar 2009

Leikurinn við Holland færður um tvo daga

Íslenska kvennalandsliðið leikur vináttulandsleik við Holland í Kórnum 25. apríl næstkomandi.  Leikurinn átti upphaflega að fara fram 23. apríl en hefur verið færður aftur um tvo daga að ósk Hollendinga.

Landslið

6. janúar 2009

Æfingar hjá U16 og U17 karla á nýju ári

Landsliðsþjálfararnir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson hafa valið æfingahópa til æfinga hjá U16 og U17 karla.  Æfingar fara fram í Kórnum og Egilshöll um næstu helgi.

Landslið

6. janúar 2009

Stjarnan hefur skilað leyfisgögnum

Stjarnan í Garðabæ kom við hjá leyfisstjórn í dag og varð fjórða félagið til að skila leyfisgögnum fyir keppnistímabilið 2009.  Þau gögn sem skilað er nú snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum.

Leyfiskerfi

6. janúar 2009

Knattspyrnuæfingar fatlaðra á Akranesi

Næstkomandi laugardag hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaðra á Akranesi og fara þær fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum.  Þessar æfingar eru samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambands Íslands, ÍA og Þjóts.

Fræðsla

5. janúar 2009

Námskeið á vegum FIFA fyrir félög í Landsbankadeild karla

Dagana 14. og 15. janúar næstkomandi munu fulltrúar FIFA halda námskeið um TMS kerfi FIFA fyrir félögin í Landsbankadeild karla 2009.   Félögum í Landabankadeild karla ber að nota kerfið strax á þessu ári.

Fræðsla