4. nóvember 2008
A landslið kvenna náði sl. fimmtudag þeim langþráða áfanga að vinna sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni EM. Aldrei fyrr hefur KSÍ átt landslið í úrslitakeppni A landsliða.
4. nóvember 2008
Vert er að minna á ákvæði um samningsskyldu leikmanna í Landsbankadeild karla eins og fram kemur í grein 23.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Ákvæði þetta verður virkt þann 1. janúar 2009.
3. nóvember 2008
Eysteinn Húni Hauksson, knattspyrnuþjálfari hjá Grindavík, hlaut á dögunum styrk KSÍ til fræðslumála og nýtti hann til að kynna sér knattspyrnuþjálfun hjá West Ham.
3. nóvember 2008
A-landslið kvenna mun leika í efri styrkleikaflokki á Algarve Cup 2009, sem fram fer í Portúgal í byrjun mars á næsta ári. Þetta þýðir að stelpurnar okkar munu leika gegn nokkrum af sterkustu landsliðum heims.
30. október 2008
Í nepjunni í Laugardalnum í kvöld tryggði íslenska kvennalandsliðið sér sæti í úrslitakeppni EM 2009 sem fram fer í Finnlandi. Frábær 3-0 sigur staðreynd og á köldum Laugardalsvelli var stiginn trylltur stríðdans í leikslok. Ísland er komið á EM!
30. október 2008
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 6. nóvember kl. 19:30. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara. Aldurstakmark 16 ára og er námskeiðið ókeypis.
30. október 2008
Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir viðureign Íslands og Írlands í dag á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst kl. 18:10 og er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið.
30. október 2008
Fyrir viðureign Íslands og Írlands í umspili EM kvenna 2009 verður gefin út leikskrá með ýmsum áhugaverðum og gagnlegum upplýsingum. Leikskráin verður seld við innganginn á Laugardalsvelli fyrir leik og kostar aðeins kr. 500
30. október 2008
Í kvöld fer fram einn allra mikilvægasti leikur íslenskrar knattspyrnusögu þegar Íslendingar taka á móti Írum á Laugardalsvelli. Leikurinn er seinni leikur þjóðanna í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2009 sem fram fer í Finnlandi. Fyrri leiknum lauk með jafntefli, 1-1 og því ljóst að sigurvegarinn í kvöld tryggir sér sæti í úrslitakeppninni á næsta ári.
29. október 2008
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Írum á morgun. Leikurinn hefst kl. 18:10 á Laugardalsvelli og eru allir er vettlingi geta valdið hvattir til þess að mæta á þennan stórleik.
29. október 2008
Miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 12:00 á morgun, fimmtudaginn 30. október, á leik Íslands og Írlands í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2009. Miiðinn kostar 1.000 krónur en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri. Ekki er selt í númeruð sæti og er sætaval því frjálst.
29. október 2008
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi hópinn fyrir leikinn gegn Írum sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun, fimmtudaginn 30. október kl. 18:10.
28. október 2008
Ólafur Þór Guðbjörnsson og Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfarar U19 og U17 kvenna, hafa valið leikmenn til æfinga sem fram fara um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum.
28. október 2008
Helgina 21.-23. nóvember heldur KSÍ 5. stigs þjálfaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir sem fengu 70 stig eða fleiri í KSÍ B prófinu. Námskeiðsgjald er 20.000 krónur og skráning er hafin.
28. október 2008
Mánudaginn 10. nóvember, milli kl. 16:30 og 18:30, stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt
28. október 2008
Sem fyrr þá hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, þann háttinn á að hann sýnir stelpunum myndbönd fyrir leikina. Myndbandið sem Sigurður Ragnar sýndi stelpunum fyrir Íraleikinn ytra kallar hann "Hver er ég?".
28. október 2008
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Írland afhenta miðvikudaginn 29. október frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
28. október 2008
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um hvort til standi að fresta viðureign kvennalandsliða Íslands og Írlands vill KSÍ að fram komi að leikdagurinn, leiktíminn og leikstaðurinn stendur - fimmtudagurinn 30. október kl. 18:10 á Laugardalsvelli.