10. október 2008
Karlalandsliðið undirbýr sig nú af kappi undir landsleikinn gegn Hollandi sem fer fram á morgun, laugardag. Aðstæður eru allar hinar bestu, æfingar hafa gengið vel og hópurinn í góðu standi. Í kvöld verður svo æft á keppnisvellinum, De Kuip, heimavelli Feyenoord.
10. október 2008
Knattspyrnusamband Íslands ákvað í dag að lækka umtalsvert miðaverð á landsleik Íslands og Makedóníu sem fram fer á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag kl. 18:00. Leikurinn er síðasti leikur Íslands á þessu ári í undankeppni HM.
10. október 2008
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Makedónía afhenta þriðjudaginn 14. október frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
9. október 2008
Íslenska U17 kvennalandsliðið tapaði í dag gegn Ítölum í undankeppni EM en riðill Íslands er leikinn á Ítalíu. Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimastúlkur eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.
9. október 2008
Stelpurnar í U17 kvenna leika sinn annan leik sinn í dag í undankeppni EM en riðillinn er leikinn á Ítalíu. Mótherjar Íslendinga í dag eru einmitt Ítalir og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
8. október 2008
Hollenski hópurinn er mætir Íslendingum í Rotterdam á laugardaginn og Norðmönnum á miðvikudag, er stjörnum prýddur og valinn maður í hverju rúmi. Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
8. október 2008
Áfram Ísland, stuðningsmannaklúbbur íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samstarfi við Icelandair verða með upphitun laugardaginn 11.október næstkomandi fyrir leik Hollendinga og Íslendinga sem hefst kl, 20:45.
8. október 2008
Nýr styrkleikalisti FIFA karla var birtur í dag og fór Ísland upp um fjögur sæti frá því að síðasti listi var birtur. Ísland er í 103. sæti á listanum en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.
8. október 2008
Knattspyrnumótum sumarsins 2008 er nú lokið og sigurvegarar hafa verið krýndir. Þúsundir leikja fóru fram með þátttöku iðkenda um land allt. Með sönnu má segja að knattspyrnan hafi mikil áhrif á mannlíf á Íslandi yfir sumarið og hefur svo verið áratugum saman.
7. október 2008
KSÍ samþykkti fyrr á þessu ári að taka þátt í risastóru fræðsluverkefni á vegum UEFA sem verður í gangi næstu 4 árin. Verkefnið kallast "UEFA study scheme". Að þessu sinni sendir KSÍ 10 þjálfara frá félögum af landsbyggðinni til Sviss.
7. október 2008
Stelpurnar í U17 kvenna hófu leik í morgun í undankeppni EM en riðill þeirra er leikinn á Ítalíu. Frakkar voru mótherjar í fyrsta leiknum og sigruðu með einu marki gegn engu. Sigurmark Frakka kom í uppbótartíma og vonbrigði íslenska liðsins því mikil.
7. október 2008
Þó svo að deildarkeppnin hér á landi hafi runnið sitt skeið á enda eru íslenskir knattspyrnumenn engu að síður önnum kafnir. Íslensk knattspyrnulandslið leika 23 landsleiki í september og október en flestir þessara leikja eru leiknir af yngri landsliðum okkar.
7. október 2008
Í dag leikur Ísland sinn fyrsta leik í undankeppni EM kvenna en leikið er á Ítalíu. Fyrstu mótherjar íslenska liðsins eru Frakkar og hefst leikurinn í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma. Kristrún Lilja Daðadóttir hefur tilkynnt byrjunarliðið.
6. október 2008
KÞÍ stendur fyrir þjálfaraferð í tengslum við karlalandsleik Hollendinga gegn okkur Íslendingum í Rotterdam næstkomandi laugardag, 11 október. Munu 26 þjálfarar fara á vegum KÞÍ og KSÍ í þessa ferð.
6. október 2008
KSÍ og Luka Kostic hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki ráðningarsamninga við Luka. Luka hefur þjálfað U21 árs lið karla og U17 ára lið karla undanfarin ár og náði m.a. þeim einstaka árangri að koma liðinu í 8 liða úrslitakeppni EM árið 2007.
6. október 2008
Dagana 16. og 17. október mun fara fram víðtækt gæðamat á skipulagi leyfiskerfis KSÍ og því starfi sem unnið er við rekstur þess. Matið er framkvæmt árlega af alþjóðlegu vottunarfyrirtæki.
6. október 2008
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hópinn er fer til Makedóníu til þess að leika í undankeppni EM U19 karla. Fyrsti leikur Íslands í riðlinum verður laugardaginn 11. október við Svía
6. október 2008
Í dag var dregið í umspilsleiki fyrir EM kvenna í Finnlandi 2009. Ísland dróst gegn Írlandi og verður fyrri leikurinn á útivelli. Ísland og Írland hafa mæst tvisvar sinnum. Árið 2007 gerðu þjóðirnar 1-1 jafntefli en fyrr á þessu ári lögðu Íslendingar Íra með fjórum mörkum gegn einu