3. október 2008
Á mánudaginn verður dregið í umspili fyrir EM kvenna 2009. Ísland er í pottinum og er í A flokki og mun dragast gegn gegn þjóð úr B flokki. Þjóðirnar þar eru Tékkland, Írland, Slóvenía og Skotland.
3. október 2008
Heiðursgestur úrslitaleiks VISA bikars karla verður menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Mun hún því í leikslok afhenda sigurvegurum leiksins farandbikar er VISA gefur og keppt er um í sjötta skiptið.
3. október 2008
Athygli er vakin á því að fyrirhuguð æfing hjá U19 karla sem átti að vera á Tungubökkum í dag, færist yfir á gervigrasvöll Fram. Hlutaðeigendur eru beðnir um að hafa þetta í huga. Æfingin hefst sem áður kl. 16:30.
2. október 2008
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn fyrir landsleikina gegn Hollandi og Makedóníu. Leikið verður við Holland í Rotterdam 11. október en við Makedóníu hér á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. október
2. október 2008
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 10.-12. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 17.-19. október.
30. september 2008
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag 16 manna landsliðshóp fyrir umspilsleik Íslands er fara fram í október. Í hópnum eru ekki að þessu sinni leikmenn úr Val og þeir leikmenn er leika erlendis.
30. september 2008
Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands standa fyrir sameiginlegri ráðstefnu í tengslum við bikarúrslitaleik KR og Fjölnis í VISA-bikar karla, sem fram fer á laugardaginn. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér að neðan.
29. september 2008
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið um næstu helgi, 3.-5. október. Drög að dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan en bikarúrslitaleikur KR og Fjölnis fléttast inn í námskeiðið. Dagskrá bikarúrslitaráðstefnunnar verður birt síðar.
29. september 2008
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla hefur valið æfingahóp sem mun æfa um helgina. Framundan er keppni í undankeppni EM og fer riðill Íslands fram í Makedóníu.
29. september 2008
Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt hópinn er leikur í riðlakeppni EM á Ítalíu dagana 7. - 12. október. Andstæðingar Íslands verða, auk heimamanna, Frakkland og Aserbaídsjan.
29. september 2008
Strákarnir í U17 karla leika lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þeir mæta Norðmönnum. Leikurinn hefst kl. 16:00 á Vodafonevellinum og hefur Lúka Kostic tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
29. september 2008
Stelpurnar í U19 kvenna leika lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þær mæta Írum í Ísrael. Stelpurnar eru snemma á ferðinni því leikurinn hefst kl. 08:00 að íslenskum tíma. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
29. september 2008
Stelpurnar í U19 kvenna léku síðasta leik sinn í undankeppni EM í dag þegar þær mættu Írum en riðillinn var leikinn í Ísrael. Írar reyndust sterkari í dag og sigruðu með fimm mörkum gegn einu.
29. september 2008
Strákarnir í U17 léku lokaleik sinn í undankeppni EM í dag þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Norðmenn á Vodafonevellinum. Noregur og Sviss komast áfram í milliriðla en Íslendingar sitja eftir.
27. september 2008
Íslenska kvennalandsliðinu tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM í dag en litlu munaði það. Frakkar höfðu betur með tveimur mörkum gegn einu. Íslenska liðsins bíða umspilsleikir og verður ljóst 6. október hvaða þjóð það verður er Íslendingar mæta.
27. september 2008
Loksins er dagurinn runninn upp, íslensku stelpurnar munu mæta Frökkum í dag kl. 14:00 í La Roche-Sur-Yon. Með jafntefli tryggir liðið sig í úrslitakeppni EM 2009 í Finnlandi. Hér að neðan má sjá myndband sem að Sigurður Ragnar sýndi stelpunum á fundi í gærkvöldi. Sjón er sögu ríkari!
26. september 2008
Strákarnir í U17 karla báru lægri hlut gegn Úkraínumönnum í dag með einu marki gegn tveimur á KR vellinum í dag. Staðan í hálfleik var jöfn 1-1. Síðasti leikur liðsins verður gegn Norðmönnum á Vodafonevellinum á mánudaginn kl. 16:00.
26. september 2008
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Frökkum á morgun í undankeppni fyrir EM 2009. Íslenska liðinu dugir jafntefli til þess að tryggja sig í úrslitakeppni EM í Finnlandi 2009.