Search
SÍA

19. apríl 2007

Matarfundi KÞÍ á Kaffi Reykjavík frestað

Matarfundi KÞÍ sem vera átti á Kaffi Reykjavík föstudaginn 20. apríl hefur verið frestað vegna lélegrar þátttöku. KÞÍ stefnir á að halda fundinn 2. júní næstkomandi.

Fræðsla

18. apríl 2007

Vorfundur KÞÍ á Akureyri

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands heldur vorfund á Akureyri, laugardaginn 28. apríl næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Þórs, Hamri og er opinn öllum þeim er áhuga hafa á knatspyrnu og knatspyrnuþjálfun.

Fræðsla

18. apríl 2007

Úrslitakeppni EM 2012 í Póllandi og Úkraínu

Michel Platini, forseti UEFA, tilkynnti í dag að úrslitakeppni EM 2012 muni fara fram í Póllandi og Úkraínu. Þrjár umsóknir voru teknar fyrir við lokaákvörðunina en umsóknir Ítalíu og Ungverjalands/Króatíu hlutu ekki náð fyrir augum UEFA.

Landslið

17. apríl 2007

Ólöglegur leikmaður með Leikni F. gegn Hetti

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Adnan Mesetovic lék ólöglegur með liði Leiknis F. gegn Hetti í Lengjubikar karla fimmtudaginn 16. mars síðastliðinn.

Agamál
Lög og reglugerðir

16. apríl 2007

Ljóst hvaða þjóðir leika í úrslitakeppni EM U19 kvenna

Í gær skýrðist hvaða þjóðir munu leika hér á landi í úrslitakeppni EM U19 kvenna. Keppnin fer fram dagana 18. - 29. júlí og er leikið á sjö völlum hér á landi. Sjö þjóðir tryggðu sér farseðilinn til Íslands eftir keppni í milliriðlum.

Landslið

12. apríl 2007

Ólöglegur leikmaður með Keflavík gegn Fjölni

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Guðmundur Steinarsson lék ólöglegur með liði Keflavíkur gegn Fjölni í Lengjubikar karla miðvikudaginn 4. apríl síðastliðinn.

Agamál
Lög og reglugerðir

11. apríl 2007

Ólöglegur leikmaður með Dalvík/Reyni gegn Magna

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Jón Örvar Eiríksson lék ólöglegur með Dalvík/Reyni gegn Magna í Lengjubikar karla sunnudaginn 1. apríl síðastliðinn.

Agamál
Lög og reglugerðir

11. apríl 2007

Leikið við England á Roots Hall

Kvennalandsliðið leikur vináttulandsleik við England 17. maí næstkomandi.  Leikið verður á Roots Hall, heimavelli Southend United.  Völlurinn tekur rétt tæplega 12.500 manns í sæti.

Landslið

11. apríl 2007

Matarfundur KÞÍ á Kaffi Reykjavík

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands stendur fyrir matarfundi á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík við Vesturgötu í Reykjavík, föstudaginn 20. apríl kl. 19.00.  Miðaverð er 3500 kr. og innifalið í því þriggja rétta glæsilegur kvöldverður.

Fræðsla

10. apríl 2007

Ólöglegur leikmaður með Fram gegn KR

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Igor Pesic lék ólöglegur með liði Fram gegn KR í Lengjubikar karla mánudaginn 2. apríl síðastliðinn.

Agamál
Lög og reglugerðir

10. apríl 2007

Fyrsti leikur í riðli Íslands leikinn á morgun

Á morgun fer fram fyrsti leikur í riðli Íslands í undankeppni fyrir EM kvenna í Finnlandi 2009.  Taka þá Frakkar á móti Grikkjum og verður Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari á meðal áhorfenda á leiknum.

Landslið

10. apríl 2007

Styttist í úrslitakeppni EM U19 kvenna

Úrslitakeppni EM U19 kvenna verður haldin hér á landi dagana 18. - 29. júlí.  Milliriðlar keppninnar hófust í gær og á sunnudaginn verður ljóst hvaða sjö þjóðir mæta hingað til leiks í úrslitakeppnina.

Landslið

7. apríl 2007

Úrskurður í máli Róberts Magnússonar gegn FH

Samninga- og félagaskiptanefnd hefur kveðið upp úrskurð í máli Róberts Magnússonar gegn Knattspyrnudeild FH.  Varðaði málið leikmannssamning Róberts Magnússonar.

Agamál
Lög og reglugerðir

6. apríl 2007

Breytt dagsetning á KSÍ V þjálfaranámskeiðinu

KSÍ V þjálfaranámskeiðið sem var fyrirhugað að halda helgina 13-15. apríl hefur verið fellt niður en ákveðið hefur verið að halda námskeiðið 27-29. apríl í staðinn.  Skráning er hafin hjá Ragnheiði á skrifstofu KSÍ (ragga@ksi.is) eða í síma 510-2900.

Fræðsla

4. apríl 2007

Riðlarnir klárir fyrir úrslitakeppni U17

Í dag var dregið í riðla í úrslitakeppni EM U17 karla sem fram fer í Belgíu.  Leikirnir fara fram dagana 2. - 13. maí.  Fimm efstu þjóðirnar tryggja sér sæti á HM 2007 í Suður Kóreu.

Landslið

4. apríl 2007

Dregið hjá U17 karla kl. 10:45 í dag

Í dag kl.10:45 verður dregið í riðla í úrslitakeppni EM U17 karla.  Úrslitakeppnin fer fram í Belgíu.  Átta þjóðir eru í pottinum og skiptast þær í tvo riðla.  Hægt er að fylgjast með drættinum á www.uefa.com.

Landslið

2. apríl 2007

Ólöglegur leikmaður með Leikni F. gegn Magna

Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Kjartan Bragi Valgeirsson lék ólöglegur með liði Leikni F. gegn Magna í Lengjubikar karla sunnudaginn 25. mars síðastliðinn.

Agamál
Lög og reglugerðir

2. apríl 2007

28 leikmenn boðaðir á æfingar hjá U17 karla

Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 28 leikmenn til æfinga á næstu dögum.  Æfingarnar fara fram á Fylkisvelli og í Fífunni, fimmtudag, föstudag og laugardag.

Landslið