4. maí 2007
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem leikur gegn Hollandi í kvöld. Þetta er annar leikur liðsins í úrslitakeppni EM í Belgíu en liðið tapaði gegn Englandi í fyrsta leiknum á miðvikudaginn.
3. maí 2007
Arnar Darri Pétursson, markvörður úr Stjörnunni, hefur verið valinn í hópinn hjá U17 karla er leikur nú í úrslitakeppni EM U17. Arnar kemur í stað Trausta Sigurbjörnssonar er meiddist í leiknum gegn Englandi í gær.
2. maí 2007
Íslenska U17 karlalandsliðið tapaði fyrsta leik sínum í úrslitakeppni EM U17 sem fram fer í Belgíu. Lokatölur urðu 0-2 en þannig var staðan í hálfleik. Íslensku strákarnir leika annan leik sinn í riðlinum á föstudaginn við Holland kl. 18:15.
2. maí 2007
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Englendingum kl. 14:00 í dag. Leikurinn er fyrsti leikur íslenska liðsins í úrslitakeppni EM U17.
2. maí 2007
Tvær efstu þjóðirnar í hvorum riðli komast í undanúrslit. Þær þjóðir er lenda í þriðja sæti í riðlunum munu hinsvegar leika leik um fimmta sætið en sigur í þeim leik tryggir þátttöku á HM U17 sem fram fer í Suður Kóreu í ágúst og september
28. apríl 2007
Í nýrri reglugerð um knattspyrnudómara og eftirlitsmenn er ein veigamikil breyting er snýr að aldri unglingadómara. Nú mega þeir er verða 15 ára á árinu starfa sem unglingadómarar í stað 16 ára áður.
27. apríl 2007
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum er heldur til Belgíu á mánudaginn til að taka þátt í úrslitakeppni EM U17 karla. Dofri Snorrason kemur inn í hópinn í stað Kristins Steindórssonar sem er meiddur.
27. apríl 2007
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum mánudaginn 23. apríl að greiða öllum félögum sem undirgengust leyfiskerfi KSÍ fyrir keppnistímabilið 2007 styrk fyrir vinnu við undirbúning leyfisumsókna.
25. apríl 2007
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Ivan Milekovich og Jón Bjarni Baldvinsson léku ólöglegir með liði Afríku gegn KFS í Lengjubikar karla sunnudaginn 22. apríl síðastliðinn.
25. apríl 2007
Að loknu leyfisferlinu á ári hverju fer fram svokallað árlegt endurmat, að kröfu UEFA. Einn mikilvægur þáttur í þessu endurmati er að óska eftir upplýsingum frá leyfisumsækjendum um hvað mætti betur fara.
25. apríl 2007
KSÍ heldur V.stigs þjálfaranámskeið um næstu helgi (27-29. apríl). Námskeiðið er upphafið að KSÍ A (UEFA A gráðu). Alls eru 20 þjálfarar skráðir á námskeiðið og því ennþá hægt að skrá sig. Námskeiðsgjald er 18.000 krónur.
24. apríl 2007
Unglingadómaranámskeið verður haldið í maí og er að mestu leyti um heimanám að ræða, þar sem þátttakendur sækja námsefnið á vef KSÍ, en námskeiðinu lýkur með prófi 25. og 26. maí.
24. apríl 2007
Ný lög KSÍ voru samþykkt á knattspyrnuþingi 10. febrúar síðastliðinn. Við gildistöku nýrra laga var jafnframt nauðsynlegt að ráðast í endurskoðun á reglugerðum sambandsins og starfsreglum nefnda og hefur stjórn KSÍ nú samþykkt nýjar reglugerðir og starfsreglur.
23. apríl 2007
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Bérés Ferenc lék ólöglegur með liði KS/Leifturs í Lengjubikar karla laugardaginn 14. apríl síðastliðinn.
21. apríl 2007
Um þessa helgi hittast um 40 landsdómarar á Hótel Örk í Hveragerði til þess að undirbúa sig fyrir sumarið. Farið verður yfir áherslur sumarsins sem og breytingar á knattspyrnulögunum.
20. apríl 2007
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem heldur til Belgíu til þess að taka þátt í úrslitakeppni EM U17 karla. Keppnin fer fram dagana 2. til 13. maí.
20. apríl 2007
Úrtaksæfingar verða hjá U19 karla um helgina og hafa landsliðsþjálfararnir Guðni Kjartansson og Kristinn Rúnar Jónsson valið alls 51 leikmenn til þessara æfinga. Hópnum er skipt í tvennt, leikmenn fædda 1988 og 1989
19. apríl 2007
Matarfundi KÞÍ sem vera átti á Kaffi Reykjavík föstudaginn 20. apríl hefur verið frestað vegna lélegrar þátttöku. KÞÍ stefnir á að halda fundinn 2. júní næstkomandi.