Per Ravn Omdal sérstakur gestur á ársþingi KSÍ
Per Ravn Omdal, heiðursforseti norska knattspyrnusambandsins og einn af varaforsetum UEFA, verður sérstakur gestur á ársþingi KSÍ sem fram fer á Hótel Loftleiðum á laugardag og er um leið fulltrúi UEFA.
Omdal hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Bæði fyrir Knattspyrnusamband Noregs og UEFA. Hann hefur setið í framkvæmdastjórn UEFA frá árinu 1992 og verið varaforseti UEFA síðan 1996.