Norðurlöndin sækja um EM 2025
Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð, með stuðningi Færeyja og Íslands - hafa lagt inn umsókn til Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) um að halda lokakeppni EM A landsliða kvenna á Norðurlöndunum 2025. Umsóknin hefur verið í undirbúningi í fjögur ár og hafa öll Norðurlöndin unnið ötullega saman að henni.
Í umsókninni kemur fram að leikið yrði í átta borgum (í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð) og að úrslitaleikurinn yrði leikinn á Friends Arena í Stokkhólmi, sem tekur 50.000 áhorfendur og er stærsti leikvangurinn á Norðurlöndunum. Markmiðið er að selja 800.000 miða alls á leiki keppninnar.
Umsóknir hafa ennig borist UEFA frá Frakklandi, Póllandi og Sviss,og mun ákvörðun UEFA liggja fyrir þann 25. janúar 2023.
Nánar má lesa um umsóknina á vefsíðum knattspyrnusambandanna fjögurra.