• fim. 02. maí 2024
  • Mótamál

Önnur deild kvenna hefst á laugardag

Keppni í 2. deild kvenna hefst laugardaginn 4. maí þegar KR tekur á móti Vestra. Leikurinn tilheyrir þó 3. umferð mótsins.

Þann 9. maí fara tveir leikir fram í 2. deild kvenna. Annars vegar tekur Augnablik á móti Vestra, í leik sem tilheyrir 10. umferð, og hins vegar taka Haukar á móti Fjölni í fyrsta leik 1. umferðar.

Þrír leikir fara fram í 1. umferð laugardaginn 11. maí, einn þann 12. maí og umferðinni lýkur mánudaginn 13. maí.

2. deild kvenna

Mynd: Helgi Halldórsson