5. apríl 2019
A landslið kvenna mætir Suður Kóreu á laugardagsmorgun í vináttuleik. Leikurinn fer fram á Yongin Citizen Sports Park og hefst hann kl. 05:00 að íslenskum tíma.
5. apríl 2019
Ísland vann góðan 3-0 sigur gegn Bólivíu í öðrum leik sínum á UEFA Development Tournament. Ívan Óli Santos, Kristófer Jónsson og Hákon Arnar Haraldsson skoruðu mörk liðsins.
5. apríl 2019
Helgina 5. - 6. apríl fer fram hin árlega landsdómararáðstefna KSÍ, en þar hittast dómararnir til að undirbúa sig fyrir komandi tímabil.
5. apríl 2019
U19 ára landslið kvenna mætir Búlgaríu á laugardaginn í öðrum leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2019, en leikið er í Hollandi.
5. apríl 2019
KSÍ vinnur nú að undirbúningi umfangsmikils verkefnis um rafíþróttir og FIFA-tölvuleikinn í samráði og samstarfi við EA Sports.
5. apríl 2019
U16 ára landslið karla mætir Bólivíu í öðrum leik sínum á UEFA Development Tournament og hefur byrjunarlið leiksins verið tilkynnt.
4. apríl 2019
Dregið hefur verið í riðla fyrir úrslitakeppni EM U17 landsliða karla og verður Ísland í riðli með Portúgal, Ungverjalandi og Rússlandi.
4. apríl 2019
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt hegðunarviðmið sem hafa verið í endurskoðun hjá Þróunar- og fræðslusviði ÍSÍ. Hegðunarviðmiðin eru stuðningsskjal við siðareglur ÍSÍ.
4. apríl 2019
KSÍ býður barna- og unglingaráðum aðildarfélaga að fá til sín fyrirlesara sem mun fjalla um helstu verkefni og hlutverk ráðanna. Fyrirlesarinn er Daði Rafnsson, sem hefur áralanga reynslu af barna- og unglingaþjálfun.
4. apríl 2019
Dregið verður í úrslitakeppni EM 2019 hjá U17 ára landsliði karla í dag, en Ísland er í efri potti dráttarins. Athöfnin hefst kl. 17:30 og fer hún fram í Dublin.
3. apríl 2019
U16 ára landslið karla tapaði 3-4 gegn Króatíu í fyrsta leik sínum á UEFA Development Tournament. Það voru þeir Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson sem skoruðu mörk Íslands.
3. apríl 2019
U19 ára landslið kvenna gerði 2-2 jafntefli gegn Rússlandi í fyrsta leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2019, en leikið er í Hollandi.
3. apríl 2019
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag.
3. apríl 2019
U19 ára landslið kvenna mætir Rússlandi í dag í fyrsta leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2019, en byrjunarliðið hefur verið tilkynnt.
3. apríl 2019
KSÍ hefur tekið saman lista til upplýsinga fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn í Mjólkurbikarnum vegna leikja fyrir keppnistímabilið 2018.
2. apríl 2019
Talsverðar breytingar munu verða á knattspyrnulögunum í sumar, en þær taka gildi strax í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins þann 10. apríl næstkomandi.
2. apríl 2019
U16 ára landslið karla mætir Króatíu á miðvikudag í fyrsta leik liðsins á UEFA Development Tournament, en leikið er í Króatíu.
2. apríl 2019
Lið ÍBV var ólöglega skipað í leik gegn Selfossi í Lengjubikar kvenna þegar liðin mættust 23. mars síðastliðinn. Sara Suzanne Small og Laura Ruzugue léku með ÍBV í leiknum, en eru skráðar í erlend félög.