29. desember 2018
Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði A landsliðs kvenna er Íþróttamaður ársins 2018, eftir að hafa orðið hlutskörpust í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Verðlaunin voru afhent í Hörpu.
29. desember 2018
Birt hafa verið drög að niðurröðun í Pepsi og Inkasso deildum karla og kvenna á heimasíðu KSÍ.
21. desember 2018
UEFA hefur staðfest að Ísland sé í öðrum styrkleikaflokki fyrir dráttinn í undankeppni EM 2021. Á sama tíma var það tilkynnt að dregið verður 21. febrúar í stað 22. febrúar.
20. desember 2018
Opnað hefur verið fyrir skráningar í mót sumarsins hjá KSÍ. Vakin er sérstök athygli á því að skila ber staðfestu eintaki af þátttökutilkynningu fyrir fyrir 10. janúar á netfangið birkir@ksi.is.
20. desember 2018
Dagsetningar miðasölu á staka heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2020 liggja nú fyrir. Smellið hér til að skoða nánar.
20. desember 2018
Bókaútgáfan Tindur hefur gefið út bókina Íslensk knattspyrna 2018 eftir Víði Sigurðsson íþróttafréttamann en þetta er 38. bókin í þessum flokki sem hóf göngu sína árið 1981.
20. desember 2018
Breyting hefur orðið á öðrum leik A landsliðs karla í Katar í janúar. Stefnt var að því að mæta Kúveit þar en nú er ljóst að í staðinn mun liðið mæta Eistlandi. Ísland leikur einnig gegn Svíþjóð í ferðinni.
19. desember 2018
Erik Hamren hefur tilkynnt hóp A landsliðs karla sem tekur þátt í janúarverkefni liðsins í Katar.
18. desember 2018
Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, útskrifaðist á dögunum með UEFA Pro þjálfararéttindi.
18. desember 2018
Lúðvík Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, en hann tekur við af Þorláki Árnasyni.
18. desember 2018
Selfoss varð um helgina Íslandsmeistaratitilinn innanhúss hjá meistaraflokki kvenna. Liðið tryggði sér titilinn með 5-1 sigri gegn Álftanesi.
18. desember 2018
Mótanefnd KSÍ hefur lokið við niðurröðun leikja í Lengjubikarnum 2019. Verulegar breytingar hafa verið gerðar á leikjaniðurröðun mótsins frá áður útgefnum drögum.
17. desember 2018
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 4.-6. janúar. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.
17. desember 2018
Æfingar fyrir U15 karla og kvenna fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni fimmtudaginn 20. desember, en um er að ræða æfingar fyrir Austurland. Þorlákur Árnason, þjálfari liðanna, stjórnar æfingunum.
17. desember 2018
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U16 ára landsliðs karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 4.-6. janúar. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.
14. desember 2018
Þeir 750 ársmiðar sem fóru í sölu í hádeginu í gær á leiki Íslands í undankeppni EM 2020 eru uppseldir. Ekki munu fleiri ársmiðar fara í sölu.
14. desember 2018
Leikmannaval KSÍ hefur valið Gylfa Þór Sigurðsson og Söru Björk Gunnarsdóttur knattspyrnufólk ársins 2018. Þetta er í 15. sinn sem knattspyrnufólk ársins er sérstaklega útnefnt af KSÍ og eru það fjölmargir aðilar, m.a. fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni, sem velja.
12. desember 2018
A landslið karla mætir Svíþjóð og Kúveit í Katar í janúar, en um er að ræða leiki utan alþjóðlegra leikdaga.