3. desember 2018
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar hjá liðinu. Æfingarnar fara fram dagana 14.-15. desember í Kórnum og Akraneshöllinni.
3. desember 2018
UEFA hefur tilkynnt að ný Evrópukeppni muni hefjast tímabilið 2021/22. Keppnin hefur ekki jenn fengið nafn, en er kölluð Europa League 2 sem stendur.
2. desember 2018
Dregið hefur verið í undankeppni EM 2020 og nú hefur verið birt leikjaplan riðils Íslands. Liðið byrjar á tveimur útileikjum, gegn Andorra og Frakklandi.
2. desember 2018
Dregið hefur verið í undankeppni EM 2020 og dróst Ísland í riðil með Frakklandi, Tyrklandi, Albaníu, Moldóva og Andorra. Riðillinn verður allur leikinn árið 2019 og hefst hann í mars.
30. nóvember 2018
Dregið verður í undankeppni EM 2020 á sunnudaginn og hefst útsending frá athöfninni klukkan 11:00 að íslenskum tíma.
29. nóvember 2018
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ) verður haldinn í veitingasal Smárans í Kópavogi, 2. hæð, fimmtudaginn 13. desember nk.
28. nóvember 2018
Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ III þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 11.-13. janúar 2019.
27. nóvember 2018
Á fundi formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ þann 24.nóvember síðastliðinn fór formaður KSÍ, Guðni Bergsson, yfir nokkra þætti í starfsemi sambandsins. Í fréttinni má nálgast kynninguna á pdf formi.
27. nóvember 2018
Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, hefur verið ráðinn sem yfirmaður knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong en um er að ræða tveggja ára samning.
27. nóvember 2018
Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að ráða þjálfara í fullt starf. Meginverkefni er umsjón með hæfileikamótun KSÍ, úrtaksæfingum og önnur verkefnum tengd yngstu landsliðum Íslands.
26. nóvember 2018
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að fresta ráðningu í starf yfirmanns knattspyrnumála framyfir ársþing KSÍ sem er haldið í febrúar.
26. nóvember 2018
Æfingar fyrir U15 karla og kvenna fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni föstudaginn 30. nóvember, en um er að ræða æfingar fyrir Austurland. Þorlákur Árnason, þjálfari liðanna, stjórnar æfingunum.
26. nóvember 2018
Tveir leikmenn léku sinn allra fyrsta landsleik þegar U21 ára lið karla keppti á móti í Kína á dögunum og fengu þeir afhent nýliðamerki KSÍ að móti loknu.
26. nóvember 2018
Dregið hefur verið í milliriðla fyrir EM 2019 hjá U17 og U19 kvenna. U17 er með Danmörku, Ítalíu og Slóveníu í riðli á meðan U19 er með Hollandi, Rússlandi og Búlgaríu.
26. nóvember 2018
Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ III þjálfaranámskeið helgina 4.-6. janúar 2019. Námskeiðið fer fram á höfuðborgarsvæðinu.
24. nóvember 2018
Á laugardag, fór fram hinn árlegi fundur formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ og fór hann fram í höfuðstöðvum KSÍ.
23. nóvember 2018
UEFA hefur tilkynnt um sigurvegara háttvísisverðlauna sambandsins fyrir tímabilið 2017/18 og er Finnland sigurvegari þetta árið. Þrír flokkar eru metnir, heildar háttvísi, bæting á háttvísi á milli ára og hegðun áhorfenda.
23. nóvember 2018
Dregið hefur verið í undankeppni EM 2020 hjá U17 og U19 kvenna. Hjá U17 kvenna er Ísland með Frakklandi, Hvíta Rússlandi og Möltu í riðli, en hjá U19 verða mótherjarnir Kasakstan, Spánn og Grikkland.