15. október 2018
Ísland tapaði 1-2 fyrir Sviss í Þjóðadeild UEFA, en leikurinn fór fram á Laugardalsvellinum. Það var Alfreð Finnbogason sem skoraði mark Íslands á 81. mínútu.
15. október 2018
Erik Hamrén, þjálfari A landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Sviss. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 18:45.
15. október 2018
U17 ára landslið karla mætir Gíbraltar á þriðjudag í þriðja og síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2019. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma, en leikið er í Bosníu og Hersegóvínu.
15. október 2018
U21 árs lið karla mætir Spáni á þriðjudag í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2019. Leikurinn fer fram á Floridana vellinum og hefst klukkan 16:45.
14. október 2018
A landslið karla mætir Sviss í Þjóðadeild UEFA á mánudag, en leikurinn hefst klukkan 18:45 og fer fram á Laugardalsvelli. Miðasala er í fullum gangi á tix.is.
13. október 2018
U17 ára lið karla mætir Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM 2019, en Davíð Snorri Jónasson, þjálfari liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
12. október 2018
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð aga- og úrskurðarnefndar KSÍ frá 11. september 2018 á hendur knattspyrnudeildar Vals.
12. október 2018
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U15 landsliða, hefur valið úrtakshópa af Austurlandi sem æfa helgina 20.-21. október. Æfingarnar fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni.
12. október 2018
U17 ára landslið karla mætir Bosníu og Hersegóvínu á laugardaginn í undankeppni EM 2019, en leikið er í Bosníu og Hersegóvínu. Ísland gerði 2-2 jafntefli við Úkraínu í fyrsta leik sínum í riðlinum á meðan heimamenn unnu stórsigur, 8-0, gegn Gíbraltar.
12. október 2018
Styrktartónleikar Parkinson samtakanna fara fram í Guðríðarkirkju í Grafarholti laugardaginn 13. október og hefjast þeir klukkan 17:00. Fram koma Valdimar, Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson, Bjartmar Guðlaugsson, Árný Árnadóttir, Parkrímur, Svavar Knútur, Teitur Magnússon og Tilbury.
11. október 2018
A landslið karla gerði 2-2 jafntefli við Frakkland, en leikið var í Guingamp. Strákarnir áttu frábæran leik, voru 1-0 yfir í hálfleik og hefðu getað skorað enn fleiri mörk. Frakkar skoruðu tvö mörk undir lok leiksins og jafntefli því niðurstaðan.
11. október 2018
U21 ára lið karla tapaði 0-1 gegn Norður Írlandi, en leikurinn fór fram á Floridana vellinum. Leikurinn var nokkuð jafn, en Norður Írum tókst að skora sigurmarkið alveg undir lok venjulegs leiktíma.
11. október 2018
A landslið karla mætir Frakklandi ytra og hefur Erik Hamren, þjálfari liðsins, tilkynnt byrjunarliðið. Leikurinn hefst klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
11. október 2018
U21 ára lið karla mætir Norður Írlandi í undankeppni EM 2019, en leikurinn fer fram á Floridana vellinum og hefst klukkan 16:45 í dag.
10. október 2018
U17 ára lið karla gerði 2-2 jafntefli gegn Úkraínu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2019, en leikið er í Bosníu og Hersegóvínu. Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði bæði mörk Íslands.
10. október 2018
U17 ára landslið karla mætir Úkraínu í dag í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2019, en leikið er í Bosníu og Hersegóvínu. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með textalýsingu á vef UEFA.
10. október 2018
A landslið karla mætir Frakklandi á fimmtudag ytra og hefst leikurinn klukkan 19:00 að íslenskum tíma. Hann fer fram í Guingamp og er liður í undirbúningi liðsins fyrir leikinn gegn Sviss í Þjóðadeild UEFA á mánudaginn.
9. október 2018
U21 árs lið karla mætir Norður Írlandi á fimmtudaginn í undankeppni EM 2019, en um er að ræða næstsíðasta leik liðsins í keppninni. Hann hefst klukkan 16:45 og fer fram á Floridana vellinum.