13. júlí 2018
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik FC Kobenhavn og KuPS Kuopio í undankeppni Evrópudeildarinnar 19. júlí, en leikurinn fer fram í Kaupmannahöfn.
10. júlí 2018
Í júnímánuði sendi KSÍ kveðju og hamingjuóskir með nýtt knatthús til sveitarfélagsins Vágs og knattspyrnufélagsins VB í Færeyjum. Kveðjunni fylgdi skjöldur með áletraðri gylltri plötu.
10. júlí 2018
Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U18 ára landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Lettlandi í vináttulandsleikjum 19. og 21. júlí.
10. júlí 2018
Bryngeir Valdimarsson hefur verið valinn af UEFA sem einn af aðstoðardómurunum sem dæma í úrslitakeppni EM U19 karla, en hún fer fram í Finnlandi 16.-29. júlí.
10. júlí 2018
U16 ára lið kvenna lék á dögunum á Norðurlandamótinu, en það fór fram í Noregi. Á mótinu voru þó fleiri Íslendingar, en Eydís Ragna Einarsdóttir starfaði þar sem dómari.
9. júlí 2018
Íslenskir dómarar eru á faraldsfæti um Evrópu í vikunni, en Ívar Orri Kristjánsson og Þóroddur Hjaltalín dæma báðir í forkeppni Evrópudeildarinnar á miðvikudaginn.
8. júlí 2018
U16 ára lið kvenna tryggði sér í dag þriðja sætið á Norðurlandamótinu með sigri á Hollandi í vítaspyrnukeppni. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma, en strax var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Ísland sigraði.
7. júlí 2018
U16 ára lið kvenna mætir á sunnudag Hollandi í leik um þriðja sætið á Norðurlandamótinu, en leikið er í Noregi. Leikurinn hefst klukkan 11:00 að íslenskum tíma.
6. júlí 2018
U16 ára lið kvenna vann 1-0 sigur gegn Englandi í síðasta leik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins. Stelpurnar mæta því Hollandi á sunnudaginn í leik um 3. sætið.
6. júlí 2018
U16 ára lið kvenna mætir Englandi í dag, en um er að ræða síðasta leik riðlakeppninnar og kemur í ljós eftir hann um hvaða sæti liðið spilar um á sunnudaginn. Leikurinn hefst klukkan 16:30, en leikið er í Noregi.
5. júlí 2018
Dregið var í dag í forkeppni Futsal Meistaradeildar UEFA, en Vængir Júpíters unnu sér inn þáttökurétt þar með því að verða Íslandsmeistarar í Futsal. Riðillinn verður leikinn í Svíþjóð.
5. júlí 2018
Dregið hefur verið í undanúrslit Mjólkurbikars karla og kvenna, en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum KSÍ.
4. júlí 2018
U16 ára lið kvenna vann frábæran 2-1 sigur á Þýskalandi í dag á Norðurlandamótinu, en leikið er í Noregi. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland vinnur Þýskaland í þessum aldursflokki. Það var Ólöf Sigríður Kristinsdóttir sem skoraði bæði mörk Íslands. Frábær árangur hjá stelpunum!
4. júlí 2018
Knattspyrnuskóli KSÍ fer fram í Garði dagana 17.-21. júlí, stúlkur æfa 17.-19. júlí og drengir 19.-21. júlí.
4. júlí 2018
A landslið karla leikur vináttulandsleik gegn Frakklandi, fimmtudaginn 11. október næstkomandi, og verður leikið í Guingamp. Leikurinn er liður í undirbúningi Íslands fyrir leikinn gegn Sviss í Þjóðadeild UEFA þann 15. október. Þetta verður í 13. skiptið sem þessar þjóðir mætast hjá A landsliði karla og hafa Frakkar unnið 9 leiki og 3 sinnum hefur orðið jafntefli.
4. júlí 2018
U16 ára lið kvenna mætir í dag Þýskalandi í öðrum leik liðanna á Norðurlandamótinu. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma, en leikið er í Noregi.
2. júlí 2018
U16 ára lið kvenna tapaði 0-2 gegn Svíþjóð í fyrsta leik liðsins á Norðurlandamótinu, en leikið er í Noregi. Ísland mætir Þýskalandi í næsta leik liðsins á mótinu á miðvikudaginn, en leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma.
2. júlí 2018
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 landsliðs Íslands, útskrifaðist nýlega með UEFA Pro þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu.