25. apríl 2017
Í hádeginu í dag verður dregið í riðla í undankeppni HM kvenna. Ísland er meðal þjóða og er íslenska liðið núna í öðrum styrkleikaflokki. Það kemur svo í ljós fljótlega eftir dráttinn hvenær íslenska liðið hefur leik í undankeppninni.
24. apríl 2017
Breytingar sem Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda (IFAB) gerir á knattspyrnulögunum hverju sinni taka alla jafna ekki gildi fyrir en 1. júní ár hvert, en að fenginni heimild IFAB tók stjórn KSÍ þá ákvörðun að nýja útgáfa laganna taki gildi í knattspyrnuleikjum á vegum KSÍ 2017.
21. apríl 2017
Vinna við að fá markmannsnámskeið KSÍ samþykkt og metið sem UEFA A markmannsþjálfaranámskeið er á lokastigi. KSÍ býður sem stendur upp á KSÍ markmannsþjálfaragráðu og hefur haldið tvö slík námskeið undanfarin 5 ár.
19. apríl 2017
Miðasala á leik Finnlands og Íslands í undankeppni HM sem fram fer laugardaginn 2. september í Finnlandi hefst mánudaginn 24. apríl klukkan 12:00 á Miði.is.
13. apríl 2017
U19 kvenna gerði 1-1 jafntefli við Ungverjaland þegar liðin mættust í vináttulandsleik á Grosics Gyula Stadion í Tatabánya í Ungverjalandi í morgun. Anna Rakel Pétursdóttir skoraði mark Íslands á 25. mínútu leiksins en Anna átti glæsilegt skot sem endaði í marki ungverska liðsins.
12. apríl 2017
KSÍ hefur tekið saman lista til upplýsinga fyrir félögin um þá leikmenn í meistaraflokki sem eiga eftir að taka út leikbönn vegna leikja fyrir keppnistímabilið 2016. Sérstök athygli er vakin á því að gefnir eru út tveir listar, annars vegar fyrir Íslandsmót og Meistarakeppni KSÍ og hins vegar fyrir bikarkeppni KSÍ.
12. apríl 2017
U19 kvenna leikur í fyrramálið, fimmtudag, seinni vináttuleikinn gegn Ungverjalandi. Liðin mættust á þriðjudaginn var og unnu Ungverjar þá 2-0 sigur. Leikirnir eru hluta af undirbúningi liðanna fyrir komandi verkefni.
12. apríl 2017
Á fundi stjórnar KSÍ 30. mars sl. samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga. Breytingar þessar eru til samræmis við samþykktir ársþings KSÍ 2017. Um er að ræða breytingar þess efnis að félögum og leikmönnum í 2. deild karla er nú heimilt að gera leikmannssamninga.
11. apríl 2017
U19 kvenna tapaði 0-2 gegn Ungverjalandi í vináttuleik sem fram fór í dag. Ungverjar komust í 2-0 í fyrri hálfleik en stelpurnar okkar sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og áttu góð færi til að skora.
11. apríl 2017
Kvennalandsliðið tapaði 0-4 gegn Hollandi í vináttuleik sem fram fór í Vijverberg í dag. Hollendingar voru sterkari aðilinn og stjórnuðu leiknum lengst af. Úrslitakeppni EM fer fram í Hollandi í sumar og var leikurinn hluti af undirbúningi liðanna.
11. apríl 2017
Holland og Ísland mætast í vináttuleik kvennalandsiða þjóðanna í dag. Leikurinn fer fram á Vijverberg leikvangnum í Doetinchem í Hollandi og hefst kl. 17:00. Um er að ræða 9. viðureign þjóðanna sem fyrst mættust í undankeppni EM árið 1995.
11. apríl 2017
U19 kvenna leikur í dag, þriðjudag, fyrri vináttuleikinn gegn Ungverjalandi. Liðin mætast að nýju á fimmtudaginn. Leikirnir eru hluta af undirbúningi liðanna fyrir komandi verkefni.
9. apríl 2017
A landslið kvenna er nú í Hollandi þar sem liðið dvelur á sama hóteli og það verður á þegar lokakeppni EM fer fram í sumar. Dvölin á hótelinu núna er einstakt tækifæri til að slípa til það sem í ólagi er og tryggja þannig að allt verði í góðu standi þegar stóra stundin rennur upp þann 14. júlí nk. en þá heldur liðið til Hollands.
9. apríl 2017
Ívar Orri Kristjánsson og Jóhann Ingi Jónsson halda til Englands í vikunni þar sem þeir munu m.a. fylgjast með undirbúningi dómara í ensku úrvalsdeildinni. Þeir munu einnig starfa á leikjum í U19 deildinni í Englandi sem og sækja ráðstefnu úrvaldsdeildardómara og aðstoðardómara.
7. apríl 2017
Líkt og leikmenn og aðrir, eru landsdómarar KSÍ í óða önn að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem er handan við hornið.  Dómarar hittast og funda reglulega og þann 8. apríl, fer fram ein af landsdómararáðstefnunum. 
6. apríl 2017
A landslið kvenna sigraði Slóvakíu 0-2 í vináttuleik í Senec í Slóvakíu í dag. Það voru þær Elín Metta Jensen og Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem skoruðu mörk Íslands. Sigur Íslands var nokkuð öruggur og hefði hæglega getað orðið stærri. Mark Berglindar var hennar fyrsta mark fyrir landsliðið og ljóst að það var langþráð.
6. apríl 2017
A landslið kvenna leikur vináttuleik gegn Slóvakíu í dag. Leikurinn fer fram í Senec í Slóvakíu og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma. Landsliðið hefur dvalið í Senec síðan á mánudag og hefur undirbúningur fyrir leikinn gengið vel.
5. apríl 2017
Á fundi stjórnar KSÍ á dögunum var skipað í nefndir KSÍ og má sjá nefndarskipan hér að neðan.  Einnig hefur verið skipað í embætti stjórnar og er Guðrún Inga Sívertsen varaformaður, Gísli Gíslason er gjaldkeri og Magnús Gylfason er ritari.