Verslun
Leit
Frosti Viðar (1)
Dómaramál

Starfar á mótasviði á skrifstofu KSÍ

KSÍ hefur ráðið Frosta Viðar Gunnarsson sem starfsmann dómaramála á mótasvið á skrifstofu KSÍ og hefur hann störf 1. desember.

Sem fyrr segir mun Frosti Viðar starfa á mótasviði með dómarastjóra og öðrum hjá KSÍ við að sinna almennri vinnu við dómaramál og önnur tilfallandi verkefni. Hann mun m.a. hafa umsjón með ferðatilhögun dómara, umsjón með búnaði dómara, aðstoða við niðurröðun á leiki, við skipulag námskeiða, við útgáfu námsefnis tengt dómaramálum og styðja félögin við fjölgun dómara. 
Frosti Viðar á að baki langan feril sem aðstoðardómari bæði á innlendum jafnt sem alþjóðlegum vettvangi. Auk þess hefur hann setið í dómaranefnd KSÍ og starfað sem eftirlitsmaður og þjálfari dómara.
Ingi Rafn Ingibergsson hefur starfað við dómaramál en hann flytur sig um set innan mótasviðs og tekur við hlutverki leyfisstjóra KSÍ frá og með 1. nóvember af Fannari Helga Rúnarssyni sem lætur af störfum í haust og mun Ingi m.a. jafnframt vera starfsmaður mannvirkjanefndar.  
KSÍ býður Frosta Viðar velkominn til starfa.