29. október 2026
Allir með leikarnir verða haldnir í Laugardalshöll laugardaginn 31. október klukkan 10:00 - 14:00.
Tilgangur leikanna er að gefa börnum með sérþarfir tækifæri á að prófa allskonar íþróttir og kynna fyrir foreldrum hvað er í boði. Leikarnir eru einnig kjörið tækifæri fyrir íþróttafélög, sem hafa verið að velta fyrir sér að byrja, að koma og sjá að þjálfa börn með sérþarfir er ekki svo ólíkt því að þjálfa ófötluð börn.
Skráning fer fram á Abler og er þátttökugjald 1.500 kr.
Endilega kíkið við og takið þátt í gleðinni.