Verslun
Leit
SÍA

6. febrúar 2013

U21 karla - Tap gegn Wales í vináttulandsleik

Strákarnir U21 biðu lægri hlut gegn Wales í dag í vináttulandsleik sem leikinn var í Llanelli. Lokatölur urðu 3 - 0 fyrir heimamenn og komu öll mörkin á 10 mínútna kafla undir lok leiksins.  Næsta verkefni liðsins er svo 26. mars þegar liðið hefur leik í undankeppni EM 2015.  

Landslið

6. febrúar 2013

U21 karla - Byrjunarliðið gegn Wales

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Wales í vináttulandsleik í dag kl. 15:00. Leikið verður á Stebonheath vellinum í Llanelli en þetta er í fyrsta skiptið sem þessar þjóðir mætast í þessum aldursflokki.

Landslið

5. febrúar 2013

U21 karla - Æfingar hafa gengið vel

Strákarnir í U21 eru nú staddir í Wales en framundan hjá þeim er vináttulandsleikur gegn heimamönnum sem fram fer á morgun. Leikið verður á Stebonheath vellinum og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

4. febrúar 2013

U17 og U19 kvenna - Æfingar um komandi helgi

Landsliðsþjálfararnir Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið leikmenn til æfinga um komandi helgi og eru um 60 leikmenn boðaðir á þessar æfinga. Æft verður í Kórnum og Egilshöll en U17 mun leika tvo æfingaleiki á laugardeginum.

Landslið

4. febrúar 2013

Rússneska landsliðið gegn Íslandi

Rússar tilkynntu 25 manna landsliðshóp fyrir vináttulandsleikinn við Íslendinga í Marbella á Spáni á miðvikudag og kom hópurinn til Spánar á föstudag. Hópurinn er eingöngu skipaður leikmönnum sem leika í Rússlandi.

Landslið

4. febrúar 2013

Spánverjar sjá um dómgæsluna

Dómarakvartettinn á vináttuleik karlalandsliða Íslands og Rússlands á miðvikudag, sem fram fer í Marbella á Spáni, er spænskur.  Dómari er Antonio Miguel Mateu Lahoz, sem hefur dæmt í efstu deild Spánar síðan 2008 og varð FIFA-dómari árið 2011.

Landslið

4. febrúar 2013

"Þjóðarstoltið mun fleyta okkur langt"

Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, ræddi í dag við rússneska fjölmiðla í Marbella á Spáni og svaraði spurningum um íslenska og rússneska liðið fyrir vináttulandsleikinn við Ísland, sem fram fer á miðvikudag. 

Landslið

3. febrúar 2013

Hólmar Örn og Guðlaugur Victor í hópinn gegn Rússum

Aron Einar Gunnarsson og Hallgrímur Jónasson eiga við meiðsli að stríða og geta ekki verið með í vinàttulandsleik A landsliðs karla gegn Rùssum à Spàni à miðvikudag. Þà verður Ólafur Ingi Skùlason ekki með þar sem kona hans à von à barni à næstu dögum. Inn í hópinn koma þeir Hólmar Örn Eyjólfsson og Guðlaugur Victor Pàlsson.

Landslið

31. janúar 2013

U21 karla - Mætum Hvít Rússum í fyrsta leik

Í morgun var dregið í undankeppni EM hjá U21 karla og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon. Ísland er í 10. riðli og eru fyrrum lýðveldi gömlu Sovétríkjanna áberandi í þessum riðli. Úrslitakeppnin 2015 verður leikin í Tékklandi.

Landslið

30. janúar 2013

U21 karla - Dregið í undankeppni EM 2013 - 2015

Á morgun, fimmtudaginn 31. janúar, verður dregið í undankeppni EM hjá U21 karla og fer drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA. Um er að ræða undankeppnina sem hefst á þessu ári, 2013, en úrslitakeppnin verður í Tékklandi 2015.

Landslið

29. janúar 2013

U17 kvenna - Annar danskur sigur

Danir höfðu betur í vináttulandsleik gegn Íslandi hjá U17 kvenna en leikið var í Akraneshöll í dag. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Dani eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Þetta var annar vináttulandsleikur þjóðanna í þessum aldursflokki á þremur dögum en gestirnir unnu fyrri leikinn 3 - 0.

Landslið

29. janúar 2013

U17 kvenna - Leikið við Dani í dag

Stelpurnar í U17 leika í dag, þriðjudaginn 29. janúar, annan vináttulandsleik við Dani og hefst leikurinn kl. 15:00 í Akraneshöllinni. Fyrri leikurinn fór fram síðastliðinn sunnudag í Kórnum og þá höfðu gestirnir betur, 0 - 3.

Landslið

28. janúar 2013

U17 og U19 karla - Æfingar fara fram um komandi helgi

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Kristinn R. Jónsson, valið hópa fyrir þessar æfingar. Athugið að tveir hópar eru við æfingar hjá U19 karla.

Landslið

27. janúar 2013

U17 kvenna - Danskur sigur í fyrri leiknum

Stelpurnar í U17 töpuðu fyrri vináttulandsleik sínum gegn Dönum í dag en leikið var Kórnum. Lokatölur urðu 0 - 3 eftir að Danir höfðu leitt með tveimur mörkum í leikhléi. Seinni vináttulandsleikurinn fer svo fram á þriðjudaginn, 29. janúar, og verður leikið í Akraneshöllinni kl. 15:00.

Landslið

27. janúar 2013

U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Dönum í dag

Stelpurnar í U17 mæta Dönum í vináttulandsleik í dag og verður leikíð í Kórnum kl. 13:30. Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt en þjálfararnir Ólafur Þór Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson stjórna liðinu í þessum leikjum:

Landslið

25. janúar 2013

A kvenna - Vináttulandsleikur gegn Svíum 6. apríl

Knattspyrnusambönd Íslands og Svíþjóðar hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik ytra 6. apríl næstkomandi. Leikið verður í Växjö en á þeim velli mun íslenska liðið leika tvo af þremur leikjum sínum í riðlakeppni úrslitakeppni EM í sumar.

Landslið

25. janúar 2013

A karla - Hópurinn valinn fyrir Rússaleikinn

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, hefur valið hópinn sem mætir Rússum í vináttulandsleik, miðvikudaginn 6. febrúar. Leikið verður á Marbella á Spáni en þetta er í sjötta skiptið sem þjóðirnar mætast.

Landslið

25. janúar 2013

U21 karla - Hópurinn sem mætir Wales

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Wales í vináttulandsleik ytra, miðvikudaginn 6. febrúar. Mikil endurnýjun er í liðinu og af 19 leikmönnum í hópnum eru bara 6 leikmenn sem hafa leikið landsleik með liðinu áður.

Landslið