17. október 2012
Íslenska kvennalandsliðið hélt utan snemma í morgun áleiðis til Sevastopol í Úkraínu þar sem leikið verður gegn heimastúlkum í umspilsleik fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð á laugardaginn. Leikið verður heima og heiman og verður seinni leikurinn hér á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október kl. 18:30.
16. október 2012
Svisslendingar höfðu betur gegn Íslendingum í kvöld á Laugardalsvelli þegar liðin mættust í undankeppni HM. Lokatölur urðu 0 - 2 fyrir gestina eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Næsti leikur íslenska liðsins í riðlinum verður gegn Slóveníu ytra, 22. mars.
16. október 2012
Lars Lägerback, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svisslendingum á Laugardalsvelli kl. 18:30 í undankeppni HM. Ein breyting er á liðinu frá því í leiknum gegn Albaníu, Eggert Gunnþór Jónsson kemur inn í liðið í stað Arons Einars Gunnarssonar sem er í leikbanni.
16. október 2012
Fyrir leik Íslands og Sviss í kvöld mun Jónas Sigurðsson og lítill hópur úr Lúðrasveit Þorlákshafnar hita upp með nokkrum lögum.  Það er því um að gera að mæta tímanlega á völlinn til að hlýða á þessa frábæru tónlist Jónasar og félaga.
16. október 2012
Það styttist í leik gegn Sviss en írski dómarinn, Alan Kelly, flautar til leiks kl. 18:30 á Laugardalsvelli. Veðurspáin fyrir kvöldið er góð en, eins vera ber í október, er betra að vera vel klæddur og öskra í sig hita. Eins og sjá má á myndum, leit völlurinn vel út í morgun en bar þess líka merki að vetur konungur er handan við hornið.
16. október 2012
Eins og öllum er kunnugt er leikur Íslands og Sviss í undankeppni HM í kvöld kl. 18:30 á Laugardalsvelli. Miðasala á leikinn gengur mjög vel og má búast við þéttsetnum velli. Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að forðast langar biðraðir. Völlurinn opnar klukkutíma fyrir leik, kl. 17:30.
15. október 2012
Ísland tekur á móti Sviss í undankeppni HM á Laugardalsvelli þriðjudaginn 16. október, kl. 18:30. Þarna eigast við þjóðirnar sem eru í efstu sætum riðilsins, Sviss hefur 7 stig en Ísland 6 stig eftir þrjá leiki. Miðasala á leikinn gengur vel og er hægt að kaupa miða í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is. Miðasala á leikdag hefst kl. 10:00 á Laugardalsvelli.
14. október 2012
Lars Lagerbäck, þjálfari A landsliðs karla, hefur valið tvo leikmenn í landsliðshópinn fyrir leikinn við Sviss á þriðjudag. Rúnar Már Sigurjónsson úr Val og Pálmi Rafn Pálmason, sem koma í stað Arons Einars Gunnarssonar, sem er í leikbanni, og Helga Vals Daníelssonar, sem hefur átt við veikindi að stríða.
12. október 2012
Íslendingar sækja Albani heim í dag og fer leikurinn fram á Qemal Stafa leikvanginum í Tirana. Leikurinn er í undankeppni HM og verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending þar kl. 16:50.
12. október 2012
Íslendingar unnu sigur á Albönum í undankeppni HM í kvöld en leikið var í Tirana. Lokatölur urðu 1 - 2 eftir að hvort lið skoraði eitt mark í fyrri hálfleiknum. Erfiðar aðstæður settu mark sitt á leikinn og var óvíst um tíma hvort hægt væri að klára leikinn vegna vallaraðstæðna. Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn á Laugardalsvelli þegar leikið verður gegn Sviss.
12. október 2012
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir leikinn við Albani.  „Við erum komnir með 6 stig. Auðvitað hefði ég heldur viljað vera með 9 stig eftir þrjá leiki, en ég er sáttur. Það geta allir unnið alla í þessum riðli, ég hef sagt það áður, og Albanía á eftir að fá stig hér á heimavelli."
11. október 2012
Framundan er annar heimaleikur Íslands í undankeppni HM 2014 og nú tökum við vel á móti Svisslendingum í Laugardalnum. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 16. október og hefst kl. 18:30. Stemningin á fyrsta heimaleik Íslands gegn Noregi var með eindæmum góð og gaf íslenska liðinu svo sannarlega byr undir báða vængi.
11. október 2012
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland – Sviss í undankeppni HM 2014 afhenta mánudaginn 15. október frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
10. október 2012
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur ákveðið að færa sig um set í þjálfun og hefur því ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við KSÍ um þjálfun U17 karlalandsliðsins.
10. október 2012
Knattspyrnusamband Evrópu hefur hrint af stað nýju verkefni fyrir landslið U16 karla og kvenna og hefur það göngu sína á næsta ári. Um er að ræða vináttulandsleiki sem settir eru upp á milli fjögurra þjóða og verður leikið í Wales á næsta ári, dagana 11. - 19. apríl.
10. október 2012
Á föstudag mætast Albanía og Ísland í undankeppni HM 2014 og fer leikurinn fram á Qemal Stafa leikvanginum í Tirana. Þetta verður næst síðasti leikurinn á þessum leikvangi, því hann verður rifinn eftir leik Albaníu og Slóveníu á þriðjudag.
10. október 2012
„Við eigum möguleika á móti öllum liðum og viljum keppa í efri hluta riðilsins, en til þess þurfum við að sýna stöðugleika frá einum leik til annars".  Þetta sagði þjálfarinn Lars Lagerbäck á blaðamannafundi sem haldinn var á hóteli íslenska liðsins í Tirana í Albaníu í dag, miðvikudag. 
9. október 2012
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið landsliðshópinn sem leikur í undankeppni EM í Danmörku. Leikirnir fara fram dagana 20. - 25. október og verða mótherjarnir, auk heimastúlkna, Slóvakía og Moldavía.