11. september 2012
Lars Lägerback, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kýpur í dag í undankeppni HM 2014. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu hjá RÚV, þar sem útsending hefst kl. 16:50.
11. september 2012
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið æfingahóp til æfinga um komandi helgi og fara æfingarnar fram í Kórnum. Gunnar velur 37 leikmenn fyrir þessar æfingar og koma þeir frá 21 félagi.
11. september 2012
Eins og öllum er eflaust kunnugt um leikur íslenska kvennalandsliðið afar mikilvægan leik gegn Norður Írlandi næstkomandi laugardag kl. 16:15 á Laugardalsvelli. Með sigri í leiknum tryggir liðið sé a.m.k. leik í umspili um sæti í lokakeppni EM 2013. Frítt er á leikinn fyrir 16 ára og yngri og hvetjum við aðildarfélög til þess að skipuleggja hópferðir á leikinn.
11. september 2012
Íslenska karlalandsliðið mætir Kýpur í dag í undankeppni HM en leikið verður á Antonis Papadopoulos vellinum á Larnaca. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður sýndur í beinni útsendingu hjá RÚV og hefst útsending kl. 16:50.
11. september 2012
Strákarnir í U21 töpuðu lokaleik sínum í undankeppni EM en leikið var gegn Belgum í Beveren. Lokatölur urðu 5 - 0 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu leitt með einu marki í leikhléi. Íslendingar enduðu undankeppnina með þrjú stig í riðlinum og kom sigurinn heima gegn Belgum.
11. september 2012
Stelpurnar í U17 leika í dag lokaleik sinn í riðlakeppni EM en riðill þeirra er leikinn í Slóveníu. Leikið verður gegn Tékkum í dag kl. 14:30 að íslenskum tíma og þarna keppa tvö efstu lið riðilsins um efsta sæti riðilsins sem gefur beint sæti í milliriðlum. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
10. september 2012
Framundan er annar heimaleikur Íslands í undankeppni HM 2014 og nú tökum við vel á móti Svisslendingum í Laugardalnum. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 16. október og hefst kl. 18:30. Stemningin á fyrsta heimaleik Íslands gegn Noregi var með eindæmum góð og gaf íslenska liðinu svo sannarlega byr undir báða vængi.
10. september 2012
Strákarnir í U21 leika í kvöld lokaleik sinn í undankeppni EM en leikið verður í Beveren í Belgíu. Þetta er lokaleikur Íslands í riðlinum en íslenska liðið hefur þrjú stig eftir 7 leiki en sigur vannst á Belgum í heimaleiknum. Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt byrjunarliðið en leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma og má fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.
10. september 2012
Strákarnir i U19 lögðu Eistlendinga í dag í öðrum vináttulandsleik liðanna á þremur dögum. Leikið var í Grindavík og urðu lokatölur 3 - 0 eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi. Fyrri leiknum, sem fram fór á Víkingsvelli síðastliðinn föstudag, lauk einni með sigri Íslands, 4 - 0.
8. september 2012
Stelpurnar í U17 unnu öruggan sigur á jafnöldrum sínum frá Eistlandi í dag, 5 - 1, en þetta var annar leikur liðsins í undankepnni EM en riðillinn er leikinn í Slóveníu.  Fyrri leiknum lauk einnig með sigri Íslands en Íris Björk Eysteinsdóttir sendi okkur umfjöllun um leikinn.  Síðasti leikur liðsins í riðlinum er svo gegn Tékkum á þriðjudaginn.
8. september 2012
Það er gömul saga og ný að tala um að stuðningur áhorfenda geti skipt sköpum á knattspyrnuvellinum. Allir þeir sem staddir voru á Laugardalsvelli í gækvöldi geta samt vitnað um hversu miklu máli slíkur stuðningur getur skipt.
8. september 2012
Ísland tekur á móti Norður Írlandi í undankeppni EM, laugardaginn 15 september kl. 16:15 á Laugardalsvelli. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur í vegferð liðsins til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM 2013. Með sigri er íslenska liðið öruggt með sæti í umspili fyrir úrslitakeppninni sem fram fer í Svíþjóð.
7. september 2012
Lars Lagerbäck hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Norðmönnum á Laugardalsvelli kl. 18:45 í kvöld. Fólk streymir á völlinn enda skartar Laugardalurinn sínu fegursta í blíðunni í kvöld. Ef einhver er að velta þessu fyrir sér er viðkomandi hvattur til að skella sér á völlinn hið snarasta.
7. september 2012
Strákarnir í U19 liðinu unnu í dag öruggan sigur á jafnöldrum sínum frá Eistlandi. Lokatölur urðu 4 - 0 fyrir Ísland eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1 - 0. Sigurinn var nokkuð öruggur eins og tölurnar gefa til kynna en þjóðirnar mætast aftur í Grindavík á sunnudaginn kl. 16:00.
7. september 2012
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt æfingahóp leikmanna sem fæddir eru árið 1998. Hópurinn kemur saman á æfingar helgina 15.-16. september og er þetta liður í undirbúningi fyrir úrslitakeppni EMU17 kvenna sem fram fer á Íslandi í júní 2015.
7. september 2012
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir liði Eistland í vináttulandsleik í dag. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli og hefst kl. 15:00. Þetta er fyrri vináttulandsleikur þjóðanna en seinni leikurinn fer fram í Grindavík á sunnudaginn kl. 16:00
7. september 2012
Eins og öllum er kunnugt er leikur Íslands og Noregs í undankeppni HM í kvöld kl. 18:45 á Laugardalsvelli. Miðasala á leikinn gengur mjög vel og má búast við þéttsetnum velli í kvöld. Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að forðast langar biðraðir. Völlurinn opnar klukkutíma fyrir leik, kl. 17:45. Miðasala á Laugardalsvelli opnar kl. 12:00 og eru þeir sem enn eiga eftir að fá sér miða, hvattir til þess að koma tímanlega til að tryggja sér miða
7. september 2012
Stelpurnar í U17 kvenna byrjuðu undankeppni EM á besta máta í gær þegar þær lögðu Slóveníu 3:0 Í Evrópukeppni U17 kvenna en riðillinn er haldinn í Slóveníu.  Íris Björk Eysteinsdóttir sendi okkur eftirfarandi umsögn um leikinn.