Verslun
Leit
SÍA

2. júlí 2012

100 milljónir evra til evrópskra félagsliða

Um það bil 580 knattspyrnufélög í öllum aðildarlöndum UEFA munu fá skerf af þeim fjármunum sem UEFA hefur aflað með úrslitakeppni EM sem lauk nýlega.  Þetta þýðir að þau félög sem áttu leikmenn í landsliðshópum Íslands í leikjum í undankeppninni fá greiðslur.

Landslið

21. júní 2012

Öruggur íslenskur sigur í Lovech

Íslenska kvennalandsliðið vann öruggan sigur á Búlgörum í dag í undankeppni EM en leikið var í Lovech. Lokatölur urðu 0 – 10 eftir að íslenska liðið hafði leitt með þremur mörkum í leikhléi. Liðið er því komið á topp riðilsins að nýju.

Landslið

21. júní 2012

U16 kvenna - Hópurinn valinn fyrir Norðurlandamótið í Noregi

Nýráðinn landsliðsþjálfari U17 kvenna, Úlfar Hinriksson, hefur valið hópinn sem tekur þátt á Opna Norðurlandamótinu sem fer fram í Noregi dagana 9. - 14. júlí. Ísland er þar í riðli með Finnum, Frökkum og Svíum.

Landslið

21. júní 2012

Ísland mætir Búlgaríu - Byrjunarliðið tilbúið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Búlgörum í dag kl. 15:00. Leikurinn er liður í undankeppni EM og fer fram í borginni Lovech í Búlgaríu. Hægt er að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.

Landslið

21. júní 2012

Ísland mætir Búlgaríu í dag kl. 15:00

Íslenska kvennalandsliðið mætir stöllum sínum frá Búlgaríu í dag í undankeppni EM og verður leikið í Lovech í Búlgaríu. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á heimasíðu UEFA. 

Landslið

20. júní 2012

Guðni og konurnar

Eins og vonandi flestum er kunnugt þá var kvenréttindadagurinn í gær, 19. júní, en þá voru 97 ár síðan að konur fengu kosningarétt til Alþingis.  Þessi kvenréttindadagur var ofarlega í huga Guðna Kjartanssonar í Búlgaríu og kom hann færandi hendi með bleikar rósir.

Landslið

20. júní 2012

Stelpurnar mæta Búlgörum - Viðtal við Sigurð Ragnar

Íslenska kvennalandsliðið er í Búlgaríu þar sem liðið undirbýr sig nú undir mikilvægan leik gegn heimastúlkum í undankeppni EM. Fer leikurinn fram í Lovech, fimmtudaginn 21. júní og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Heimasíðan heyrði í Sigurði Ragnari Eyjólfssyni á milli æfinga.

Landslið

18. júní 2012

U17 karla - Úrtaksæfingar um helgina hjá U17 karla

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 34 leikmenn til úrtaksæfinga sem fram fara um komandi helgi. Æfingarnar verða á gervigrasinu fyrir utan Kórinn, laugardag og sunnudag.

Landslið

18. júní 2012

A kvenna - Stelpurnar farnar til Búlgaríu

Kvennalandsliðið hélt í morgun til Búlgaríu þar sem leikið verður við heimastúlkur í undankeppni EM á fimmtudaginn. Leikið verður í Lovech í Búlgaríu og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

16. júní 2012

A kvenna - Öruggur sigur á Ungverjum

Íslenska kvennalandsliðið vann góðan sigur á Ungverjum í undankeppni EM en leikið var á Laugardalsvelli í dag. Lokatölur urðu 3 - 0 fyrir Ísland og leiddu stelpurnar með tveimur mörkum í leikhléi.  Búlgarir eru næstu mótherjar íslenska liðsins og fer leikurinn fram fimmtudaginn, 21. júní.

Landslið

16. júní 2012

Ísland - Ungverjaland - Byrjunarlið Íslands tilbúið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Ungverjum í leik sem er liður í undankeppni EM. Leikið er á Laugardalsvelli, laugardaginn 16. júní, og hefst leikurinn kl. 16:00.

Landslið

15. júní 2012

Ísland - Ungverjaland á laugardaginn - Allir á völlinn!

Stelpurnar taka á móti Ungverjum í undankeppni EM, laugardaginn 16. júní, á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst kl. 16:00 og er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið.  Það er því ljóst að stelpurnar munu spila til sigurs því möguleikinn á sæti í úrslitakeppni EM 2013 er mikill. Stuðningur áhorfenda getur því skipt sköpum á Laugardalsvelli á laugardaginn því mikið er í húfi.

Landslið

15. júní 2012

A kvenna - Hlín Gunnlaugsdóttir í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Ungverjum og Búlgörum í undankeppni EM. Hlín Gunnlaugsdóttir úr Breiðabliki kemur inn í hópinn í stað Soffíu Gunnarsdóttur sem á við meiðsli að stríða.

Landslið

14. júní 2012

Ísland - Ungverjaland - Frítt inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja

Frítt verður inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á landsleik Íslands og Ungverjalands í undankeppni EM kvenna. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 16. júní og hefst kl. 16:00. Með því að framvísa viðeigandi skírteinum geta ellilífeyrisþegar og öryrkjar komist frítt inn

Landslið

13. júní 2012

Ísland - Ungverjaland - Dómarar frá Rúmeníu

Það verða dómarar frá Rúmeníu sem verða við stjórnvölinn á leik Íslands og Ungverjalands í undankeppni EM. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 16. júní og hefst kl. 16:00.

Landslið

13. júní 2012

A kvenna - Rakel Logadóttir kölluð inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert aðra breytingu á landsliðshópnum er mætir Ungverjum á Laugardalsvelli, laugardaginn 16. júní. Rakel Logadóttir úr Val kemur inn í hópinn í stað Hallberu Guðnýjar Gísladóttur sem á við meiðsli að stríða.

Landslið

13. júní 2012

A kvenna - Sandra María í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum sem mætir Ungverjum í undankeppni EM á laugardaginn. Sandra María Jessen úr Þór kemur inn í hópinn í stað liðsfélaga síns, Katrínar Ásbjörnsdóttur, sem er meidd.

Landslið

13. júní 2012

Tap gegn Norðmönnum í Drammen

U21 landslið karla tapaði í gær gegn Norðmönnum, en liðin mættust á Marienlyst Stadion í Drammen. Norska liðið sótti mun meira í leiknum og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Sigurmarkið kom þegar aðeins um 5 mínútur voru eftir af leiknum.

Landslið