6. mars 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Dönum í leik um 5. sætið á Algarve Cup. Leikurinn hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með leiknum á Facebooksíðu KSÍ.
6. mars 2012
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Norðmönnum í dag á La Manga. Þetta er annar leikur liðsins í þessari ferð en fyrsta leiknum tapaði Ísland gegn Skotum, 0 - 1.
5. mars 2012
Íslendingar lögðu Kínverja í dag í lokaleik liðsins í riðakeppni Algarve Cup. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Fanndís Friðriksdóttir skoraði sigurmarkið á 79. mínútu.
5. mars 2012
Um komandi helgi verða æfingar hjá U17 og U19 karla og fara þær fram í Kórnum og Egilshöllinni. Tveir hópar verða við æfingar hjá U17 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið hópa fyrir þessar æfingar.
5. mars 2012
Stelpurnar í U19 eru nú staddar á La Manga þar sem þær leika þrjá vináttulandsleiki.  Leikið var gegn Skotum í gær í fyrsta leik liðsins og höfðu þær skosku betur, 1 - 0.  Næsti leikur Íslands er á morgun, þriðjudag, en þá verður leikið gegn Noregi.
4. mars 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kínverjum á Algarve Cup á morgun, mánudaginn 5. mars. Leikurinn hefst kl. 15:30 að íslenskum tíma og er síðasti leikur Íslands í riðlakeppninni.
4. mars 2012
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Skotum á æfingamóti á La Manga. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma en aðrar þjóðir á mótinu eru Noregur og England.
2. mars 2012
Svíar lögðu Íslendinga með fjórum mörkum gegn einu í annarri umferð á Algarve Cup í dag. Svíar lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik þar sem þær léku mjög vel en öll mörk leiksins komu á fyrstu 45. mínútunum og hófst markasúpan strax á fyrstu mínútu.
1. mars 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Svíum á Algarve Cup. Þetta er annar leikur Íslands á mótinu en liðið tapaði gegn Þjóðverjum í fyrsta leiknum, 0 - 1. Svíar lögðu Kínverja í fyrsta leik sínum, 1 - 0.
29. febrúar 2012
Íslendingar biðu lægri hlut gegn Svartfellingum i vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Podgorica í kvöld. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir heimamenn eftir að markalaust hafði verið í leikhléi. Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslendinga og jafnaði þá metin.
29. febrúar 2012
Íslenska kvennalandsliðið hóf í dag leik á Algarve Cup og voru mótherjarnir Þjóðverjar. Þýskar höfðu sigur, 1 - 0 og kom markið í fyrri hálfleik. Næsti leikur er gegn Svíum á föstudaginn og hefst sá leikur kl. 13:30 að íslenskum tíma.
29. febrúar 2012
Strákarnir í U21 lutu í lægra haldi í dag fyrir Aserbaídsjan en leikið var í Bakú. Leiknum lauk með sigri heimamanna, 1 - 0 og kom markið á 41. mínútu leiksins. Heimamenn skutust upp fyrir Íslendinga í riðlinum, hafa fjögur stig eftir 5 leiki en Íslendingar hafa þrjú stig, einnig eftir 5 leiki.
29. febrúar 2012
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Aserum í Bakú kl. 14:00 í dag. Fylgst verður með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ en leikurinn er liður í undankeppni EM. Íslendingar hafa þrjú stig eftir 4 leiki fyrir þennan leik en Aserar eru með eitt stig eftir jafn marga leiki.
29. febrúar 2012
Lars Lagerbäck, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir vináttulandsleikinn við Svartfjallaland á Pod Goricom-leikvanginum í Podgorica í dag. Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og er þetta fyrsti knattspyrnulandsleikurinn milli þessara þjóða.
28. febrúar 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem hefur leik gegn Þjóðverjum í fyrsta leik liðsins á Algarve Cup. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með gangi mála á Facebook síðu KSÍ.
28. febrúar 2012
Strákarnir í U21 karla eru staddir í Bakú í Aserbaídsjan þar sem liðið leikur gegn heimamönnum í undankeppni EM á morgun. Breytingar urðu á hópnum á síðustu stundu en Atli Sigurjónsson úr KR er kominn inn í hópinn. Tveir leikmenn þurftu að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla, Björn Bergmann Sigurðarson og Kristinn Steindórsson.
28. febrúar 2012
Stelpurnar í A landslið kvenna leika sinn fyrsta leik á morgun, miðvikudag, við Þjóðverja en þá hefst hið sterka Algarve mót. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með leiknum á Facebook síðu KSÍ.
28. febrúar 2012
Þrír landsleikir fara fram á morgun, hlaupársdaginn 29. febrúar. Þá eru þrjú landslið í eldlínunni, A landslið karla og kvenna og U21 karla. Karlalandsliðið leikur í Svartfjallalandi, kvennalandsliðið leikur gegn Þjóðverjum á Algarve og U21 karla leikur í undakeppni EM gegn Aserbaídsjan í Bakú.